bmwkraftur.is https://www.bmwkraftur.is/spjall/ |
|
-SELDUR- BMW E36 316i ///M-Tech https://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=10&t=62894 |
Page 1 of 1 |
Author: | xdriver [ Mon 26. Aug 2013 21:00 ] |
Post subject: | -SELDUR- BMW E36 316i ///M-Tech |
Til sölu þessi beinskipti E36 316i með M-Tech útliti og fjöðrun. Framleiddur 26.9.1997 en fyrst skráður 1.7.1998. Fluttur inn nýr af B&L. Bíllinn er ekinn 195.813 km þegar þetta er skrifað. Ég er búinn að eiga hann síðan 2.9.2011, þá ekinn 181þ km. Þetta er ágætis snattari sem hefur reynst mér vel og M-fjöðrunin gerir hann skemmtilegan í akstri þótt vissulega mætti aflið vera meira. Ég keyri hann bara innanbæjar í vinnu og skutl, og hefur mæld eyðsla hjá mér við þær aðstæður verið 10-11 lítrar/100km. Uppgefin eyðsla á svona bíl er 10.4 innanbæjar, 6.8 langkeyrsla og 7.4 blandað. Það sem ég hef gert fyrir hann: Ný heilsársdekk í 184þ km. Nýr endakútur og hvarfakútur í 188þ km. Síðast smurður í 195þ km. Skoðaður athugasemdalaust í janúar 2013. Ástand: Lakkið er ekki sem best, það er komið yfirborðsryð í húddkant, brettakanta og einhverjar hurðar. Laghentari maður en ég getur eflaust gert lakkið meira aðlaðandi með smá ást og svita. Listi á fram farþegahurð dottinn af, en fylgir með í lausu. ABS ljós logar stundum og stundum ekki. Fékk ekki athugasemd á það í skoðun síðast. Miðstöðin blæs ekki sérlega heitu lofti. Vatnshitamælir á mótor sýnir venjulega eitthvað aðeins minna en miðjuna. Geri ráð fyrir að það tengist eitthvað. Göt í báðum framsætum, í lærastuðning nær dyrum (eins og vill gerast með sportsætin). Staðgreiðsluverð 350.000 Skiptiverð 450.000 Staðgreiðsla er æskilegust. Einu skiptin sem koma mögulega til greina eru á dýrari BMW sem ekki er fáránlega verðlagður. Skoða ása, þrista og fimmur, enga hauga, ekki 2ja/3ja dyra, beinskipt betra, max 2 mills. Áhugasamir hafið samband í einkaskilaboðum. Upplýsingar úr ökutækjaskrá: Skráningarnúmer: BU941 Fastanúmer: BU941 Verksmiðjunúmer: WBACA71000JE35760 Tegund: BMW Undirtegund: 3 Litur: Svartur Fyrst skráður: 01.07.1998 Staða: Í lagi Næsta aðalskoðun: 01.01.2014 C02 losun (gr/km): Eiginþyngd (kg): 1310 Fæðingarvottorð: Type Value VIN WBACA71000JE35760 Type code CA71 Type 316I (EUR) E series E36 (4) Series 3 Type LIM Steering LL Doors 4 Engine M43 Displacement 1.60 Power 75 Drive HECK Transmission MECH Colour COSMOSSCHWARZ METALLIC (303) Upholstery STOFF AMARETTA SIERRAROT (E7ZR) Prod.date 1997-09-26 Code Description (interface) Description (EPC) S240A LEDERLENKRAD Leather steering wheel S246A LENKSAEULENVERSTELLUNG MECHANISCH Manually adjust. steering column S296A LM RAEDER/CLASSIC BMW LA wheel, Classic S302A ALARMANLAGE Alarm system S320A MODELLSCHRIFTZUG ENTFALL Deleted, model lettering S411A FENSTERHEBER,ELEKTRISCH VORN/HINTEN Window lifts,electric,front/rear S423A FUSSMATTEN IN VELOURS Floor mats, velours S428A WARNDREIECK Warning triangle and first aid kit S431A INNENSPIEGEL,AUTOMATISCH ABBLENDEND Interior mirror with automatic-dip S441A RAUCHERPAKET Smoker package S481A SPORTSITZE FUER FAHRER/BEIFAHRER Sports seat S498A KOPFSTUETZEN IM FOND Headrests, rear, mechanically adjustable S520A NEBELSCHEINWERFER Fog lights S534A KLIMAAUTOMATIK Automatic air conditioning S669A RADIO BMW BUSINESS RDS Radio BMW Business RDS S672A CD WECHSLER 6-FACH CD changer for 6 CDs S690A CASSETTENHALTERUNG Cassette holder S704A M SPORTFAHRWERK M Sports suspension S715A M AERODYNAMIKPAKET M Aerodynamics package S719A SPORT EDITION Sports Edition S775A INDIVIDUAL DACHHIMMEL ANTHRAZIT Headlining anthracite S785A WEISSE BLINKLEUCHTEN White direction indicator lights S832A BATTERIE IM KOFFERRAUM Battery in luggage compartment S850A ZUSAETZL. TANKFUELLUNG EXPORT Additional Export tank filling S853A SPRACHVERSION ENGLISCH Language version English S863A SERVICE KONTAKT-FLYER EUROPA Retailer Directory Europe S880A ENGLISCH / BORDLITERATUR On-board vehicle literature English S925A VERSANDSCHUTZPAKET Transport protection package S548A KILOMETERTACHO Kilometer-calibrated speedometer S686A ANTENNENDIVERSITY Antenna-Diversity Nokkrar óhreinar myndir: /Kjartan |
Author: | xdriver [ Thu 05. Sep 2013 19:04 ] |
Post subject: | Re: -SELDUR- BMW E36 316i ///M-Tech |
...and it's gone |
Page 1 of 1 | All times are UTC |
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group https://www.phpbb.com/ |