bmwkraftur.is
https://www.bmwkraftur.is/spjall/

Seldur - '00 BMW E46 325i
https://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=10&t=62614
Page 1 of 1

Author:  Emil Örn [ Thu 01. Aug 2013 06:19 ]
Post subject:  Seldur - '00 BMW E46 325i

Seldur!

Quote:
Ætla að prófa að setja aftur á sölu, langar ekkert sérstaklega að selja en ætla að sjá hvað mér býðst.

10/2000 BMW 325i Sedan.

Ekinn tæplega 133 þús km.

2.5L I6, skráður 189 hö. (M54B25)
Sjálfskiptur með 5 gíra steptronic.
Svart leður
AUX Tengi (Nýtt 22. ágúst)
Projector ljós m/ xenon (Original)
Topplúga
Sætahiti
Bakkskynjarar
Regnskynjari (Auto rúðuþurrkur)
Dimmer á spegli
Spólvörn
Skíðapoki
Niðurfellanleg aftursæti


Selst á 16" Styling 45 felgur á góðum Hankook heilsársdekkjum.

Skoðaður '14, athugasemdalaust. Smurður síðast 3. sept, þá í 133.xxx km.

Þessi bíll er alveg einstaklega gott eintak. Lítið ekinn og aðeins 2 eigendur á undan mér á Íslandi. Fluttur inn frá Þýskalandi 2004.
Bíllinn er allur í toppstandi, smurður á réttum tíma, alltaf athugasemdalaust í gegnum skoðun og stráheill.
Það sér ekki á bílnum að innan né utan.
Mjög vel með farinn og engar breytingar hafa verið gerðar á honum nema sett BMW Professional CD útvarp í stað kasettutækis, cupholder í stað hólfs (á hólfið til) og ég skipti út krómnýrum og setti svört í staðinn.

Met hann á 1.390.000.
Annars vil ég fá tilboð í hann.

Sendið EP eða e-mail á emilornkr@hotmail.com

Áskil mér rétt á að hætta við sölu hvenær sem er.

Image

Image

Image

Author:  tolliii [ Thu 01. Aug 2013 23:20 ]
Post subject:  Re: '00 BMW E46 325i

Mjög flottur bíll og gott eintak, gangi þér vel með söluna :)

Author:  gunnarxl [ Fri 02. Aug 2013 00:54 ]
Post subject:  Re: '00 BMW E46 325i

tolliii wrote:
Mjög flottur bíll og gott eintak, gangi þér vel með söluna :)


Verð að vera þér algjörlega sammála,.. Sat margoft í og keyrði bílinn einnig mjög oft hjá Gumma sem átti hann hérna á Akranesi. Þetta eintak er tipptopp! Gangi þér vel með sölu Emil!

Author:  Emil Örn [ Mon 26. Aug 2013 20:15 ]
Post subject:  Re: '00 BMW E46 325i

Ætla að henda honum aftur inn að sökum peningaskorts.

Author:  GunnsiOrn [ Tue 27. Aug 2013 12:01 ]
Post subject:  Re: '00 BMW E46 325i

Flottur þessi gangi þér vel með söluna. :)

Page 1 of 1 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/