bmwkraftur.is https://www.bmwkraftur.is/spjall/ |
|
BMW e30 325i ´90 M-Technik II https://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=10&t=62250 |
Page 1 of 1 |
Author: | Stanky [ Wed 03. Jul 2013 17:18 ] |
Post subject: | BMW e30 325i ´90 M-Technik II |
Stel auglýsingu frá Jónka. Bíllinn sem um ræðir er BMW e30 325i ´90 M-TechnikII 4door. Bílnr: NI-564 ![]() Delphin Metallic (184) Bíllinn kemur af færibandinu þann 05.02.1990. Hann þeysti um götur og hraðbrautir heimalandsins þangað til 2005 og er hann skráður hér á landi þann 03.06.2005. Það var Smári Hamburg sem flutti bílinn inn fyrir Jónka og hafði hann orð á því að þetta væri besti e30 sem hann hafði nokkurn tímann keyrt og hefur hann keyrt þá þónokkra. Ég er fimmti eigandi af bílnum, eða í raun sá fjórði því fyrsti eigandi er fyrirtæki og hafði forstjórinn hann til umráða og svo þegar hann hættir þá fékk hann bílinn til eignar. Sá er fæddur 1930. Hann selur síðan bílinn til þess sem ég keypti hann af og ætlaði sá að nota hann sem leiktæki, var búinn að lækka hann, setja strutbrace að framan og aðrar felgur, en hann hafði aldrei tíma til þess að leika sér á honum og ákvað því að selja hann. Þegar bíllinn kemur heim þá er hann keyrður 166.800km. Eitt það fyrsta sem ég gerði var að kaupa original M-TechnikII kitt frá þýskalandi og þegar það var komið í mínar hendur þá tók við heilmálun sem fór fram í ágúst 2005. Eins og margir hérna vita að þá er ég með fullkomnunaráráttu og er ég búinn að vera að betrumbæta margt í gegnum tíðina. Það er búið að mála flest allt á bílnum einu sinni eða oftar eftir heilmálunina, það eina sem ekki er búið að mála aftur eru hurðar, þak og skottlok. Á bílnum er glænýtt original húdd($$$$$) sem var málað og sett á sumarið 2010, einnig er glæný original framsvunta ($$$$$) sem var máluð og sett á sumarið 2009. Bíllinn er keyrður í dag 207.xxx km en hefur verið keyrður mjög lítið síðustu þrjú sumur, aðeins á góðviðrisdögum og tyllidögum. Bíllinn fór í hjólastillingu hjá Birni B. Steffensen 03.04.2006 þá keyrður 175.384km En jæja þá skulum við kíkja á fæðingarvottorðið: Vehicle information VIN long : WBAAD11040AF51667 Type code: AD11 Type: 325i (EUR) Dev. Series: E30() Line: 3 Body Type: LIM Steering: RL Door count: 4 Engine: M20 Cubical capacity: 2.50 Power: 125 kw Transmission: HECK Gearbox: MECH Colour: DELPHIN METALLIC (184) Upholstery: ANTHRAZIT STOFF (0269) Prod. Date: 1990-02-05 Order options 215: POWER STEERING DEPENDING ON ENGINE SPEED 320: MODEL DESIGNATION, DELETION 339: SATIN CHROME 350: WAERMESCHUTZGLAS GRUEN, RUNDUM 400: SLIDING SUNROOF MANUAL 428: WARNING TRIANGLE 510: HEADLIGHT BEAM-THROW CONTR. F LOW BEAM 556: EXTERIOR TEMPERATURE DISPLAY 652: BMW BAVARIA C II 680: MANUAL AERIAL 704: M SPORT SUSPENSION 708: M-SPORT LEATHER STEERING WHEEL II 801: GERMANY VERSION Það sem er nýtt eða nýlegt er: Nýlegir Bremsuklossar + þreifarar framan og aftan (original) Tímareim, vatnsdæla og strekkjari (Bosch) skipt um í að mig minnir 190.xxxkm Nýjar pakkdósir aftan á gírkassa (original) Nýleg pönnupakkning á vél (original) Nýleg olía og sía á vél (original sía) Ný olía á drifi Ný sveif fyrir topplúgu (original) Nýleg kerti (Bosch 4ja póla) Nýjir mótorpúðar (original) Nýleg bensíndæla ( Tækniþjónusta bifreiða seldi mér hana því hún var ekki til original) Nýtt útvarpsloftnet (original) Nýr þéttikantur á skotti og einnig nýjir á afturljósum (original) Nýjir ljósabotnar á afturljósum (original) Það sem er búið að breyta í bílnum er: Fjöðrun: Spax með lækkun 70/50mm Strutbrace að framan sem er búið að mála í sama lit og bíllinn. Vél: K&N drop in sía, hvarfakútur fjarlægður og túbur setta í staðinn, Gpower endakútur á pústi ($$$$$), aðrir krómpúststútar á endakút OO, sem fylla betur útí gatið á svuntunni. Drifrás: Læst drif ( kom úr gráa 2door m-tech bílnum sem tjónaðist) Útlit: Full M-TechnikII kitt ($$$$$) Smokuð Hella framljós (Original Hella, sérpantað hjá N1 $$$$$) Xenon aðaljós Filmaður allan hringinn Borbet T felgur 16*9“ með póleruðum kanti og miðjur málaðar í sama lit og bílinn. Búið er að setja króm mælaborðshringi og rauðar nálar. M-Technik gírhnúður með ljósi (original) BMW sportsæti úr BS-187 sem þyrfti að skipta um áklæði á Höfuðpúðar á aftursætum Taumottur á gólfum (original) Klæðning innan á skottloki sett í og máluð svört (kom bara í special edition bílunum held ég) Gardína í afturhillu Dekk: Kumho Ecsta 215/40/16 Hljóðkerfi: Í bílnum er Alpine geilsaspilari og pioneer hátalarar í afturhillu, orginal hátalarar frammí. Þjófavörn: Viper þjófavörn með fjarstarti sem er virkt http://www.drdetailshop.com/V791XV.htm Bíllinn er skoðaður án athugasemda 2014. Verð: Tilboð. Þetta er gamli bílar meðlima þráðurinn: http://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtop ... =5&t=10746 |
Author: | Alpina [ Wed 03. Jul 2013 18:48 ] |
Post subject: | Re: BMW e30 325i ´90 M-Technik II |
Án vafa einn glæsilegasti E30 325 bíll landsins tökum mega OT..... ![]() ![]() eini E30 M20B25 sem ég hef heyrt um að hafi farið í 240 á mæli,,,,,, skuggalega vel gert ![]() |
Author: | Stanky [ Fri 05. Jul 2013 14:42 ] |
Post subject: | Re: BMW e30 325i ´90 M-Technik II |
oomph! |
Author: | halldor [ Mon 05. Aug 2013 18:37 ] |
Post subject: | Re: BMW e30 325i ´90 M-Technik II |
verð hugmynd? |
Author: | jonarnorthorsteins [ Mon 05. Aug 2013 19:38 ] |
Post subject: | Re: BMW e30 325i ´90 M-Technik II |
Verð hugmynd? |
Author: | Mart [ Mon 07. Oct 2013 03:52 ] |
Post subject: | Re: BMW e30 325i ´90 M-Technik II |
Til í skifti ?, |
Author: | Páll Ágúst [ Mon 07. Oct 2013 06:21 ] |
Post subject: | Re: BMW e30 325i ´90 M-Technik II |
löngu seldur þessi bíll |
Page 1 of 1 | All times are UTC |
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group https://www.phpbb.com/ |