bmwkraftur.is https://www.bmwkraftur.is/spjall/ |
|
-SELDUR- E32 730ia V8 - Sendiherrann feat. Borgó -SELDUR- https://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=10&t=60121 |
Page 1 of 1 |
Author: | srr [ Tue 19. Feb 2013 02:50 ] |
Post subject: | -SELDUR- E32 730ia V8 - Sendiherrann feat. Borgó -SELDUR- |
Er með til sölu glæsilegt eintak af E32. Sendiherrann feat. Borgó BMW 730ia V8 Framleiddur í september 1993. Orientblau metallic litur Sjálfskiptur Innfluttur notaður til Íslands árið 2000, þá ekinn 50.000 km. Er nú ekinn 199.000 km. Cruise control CD spilari Ljós leðursæti með armpúðum og rafmagni í framsætum Leður airbag stýri Viðarlistar í innréttingu Skíðapoki Bíllinn fór í skoðun í byrjun febrúar og fékk þá endurskoðun út á brotna gorma að framan. Þegar ég skipti um gormana þá tók ég eftir því að demparar, ballanstangarendar og allar stífur báðu megin að framan væri ónýtt. Allt það er því nýtt núna. Fékk fulla skoðun 15. febrúar 2013 og er hann því með 13 miða núna. Næsta skoðun í október 2013 þar sem fyrri eigandi fór ekki með bílinn í skoðun í fyrra (auk þess sem að ég get ekki farið með bílinn í 14 skoðun fyrr en í apríl) Svona lítur fæðingarvottorðið fyrir bílinn út: Vehicle information VIN WBAGD21040DF27254 Type code GD21 Type 730I (EUR) E series E32 () Series 7 Type LIM Steering LL Doors 4 Engine M60/1 Displacement 3.00 Power 160 Drive HECK Transmission AUT Colour ORIENTBLAU METALLIC (317) Upholstery (0438) Prod.date 1993-09-13 Code Description (interface) Description (EPC) S241A AIRBAG FAHRER/BEIFAHRER Air bag for driver and passenger S302A ALARMANLAGE Alarm system S320A MODELLSCHRIFTZUG ENTFALL Deleted, model lettering S423A FUSSMATTEN IN VELOURS Floor mats velours S428A WARNDREIECK Warning triangle and first aid kit S437A EDELHOLZAUSFUEHRUNG Dashboard, black S458A SITZVERSTELLUNG ELEKTR.FAHRER/BEIF. Electr. front seat adjustment S464A SKISACK Ski bag S472A MITTELARMLEHNEN VORN FAHRER/BEIF. Armrest, front, driver/passenger S510A LEUCHTWEITENREGELUNG ABBLENDLICHT Headlight vertical aim control S534A KLIMAAUTOMATIK Automatic air conditioning S540A GESCHWINDIGKEITSREGELUNG Cruise control S661* BMW BAV. CASS. III L804A SCHWEIZ-AUSFUEHRUNG NATIONAL VERSION SWITZERLAND S853A SPRACHVERSION ENGLISCH Language version, English Nýlegt viðhald: Nýir demparar framan b/m - Febrúar 2013 Nýir ballanstangarendar framan b/m - Febrúar 2013 Nýjir allir 4 control armar / stífur framan - Febrúar 2013 Skipt um gorma framan b/m (settir notaðir óbrotnir í) - Febrúar 2013 Skipt um bilað 1 háspennukefli - Febrúar 2013 Olíuskipti á mótor - Febrúar 2013 Nýr rafgeymir - Desember 2012 Bremsur endurnýjaðar 2012 að mestu eða öllu leyti (man ekki hvað nóturnar sögðu ![]() Þessi bíll er keyptur nýr af Fríverslunarsamtökunum EFTA (European Fair Trade Association) í Sviss árið 1993. Kjartan Jóhannsson var þá framkvæmdastjóri EFTA. Hann var með bílinn til umráða allan sinn feril hjá EFTA og þegar hann lætur af störfum fyrir EFTA árið 2000, flytur hann bílinn með sér til Íslands. Svo nokkrum árum síðar, 2004 selur hann bílinn hér á landi. Árið 2009 þegar bíllinn er aðeins ekinn 145.000 km, fær hann NÝJA vél. Vélin sem var kennsluvél í Borgarholtsskóla var sett ofan í bílinn árið 2009. Síðan þá er búið að keyra þann mótor 50.000 km Nokkrar myndir sem ég tók 15. febrúar 2013: Bíllinn er víst ekki gallalaus, enda orðinn 20 ára gamall. Það sem ég veit að er að: Drifskaptsupphengja slöpp eða búin sem veldur víbring - Ný upphengja fylgir með. Dropar olíu á milli vélar og sjálfskiptingar, mig grunar stóru pakkninguna aftan á sveifarás. Lömin á bensínlokinu er brotin, það lokast lokið en er eitthvað skakkt Hagkaupsbeygla á hægri afturhurð Einnig, bíllinn selst á öðrum 16" felgum, þar sem ein af þessum sem eru undir er víst skemmd. Það eru 16" style 16 felgur. s.s. svona: ![]() Verð: 550.000 kr. Skúli Rúnar s: 8440008 |
Author: | Alpina [ Tue 19. Feb 2013 13:22 ] |
Post subject: | Re: E32 730ia V8 - Sendiherrann feat. Borgó |
Flottur bill ![]() |
Author: | Danni [ Tue 19. Feb 2013 15:32 ] |
Post subject: | Re: E32 730ia V8 - Sendiherrann feat. Borgó |
8 cyl E32 ![]() Ekki til á hverju strái! |
Author: | Angelic0- [ Tue 19. Feb 2013 16:14 ] |
Post subject: | Re: E32 730ia V8 - Sendiherrann feat. Borgó |
Vantar klárlega nýjar felgur, OEM hvít stefnuljós að framan og að tinta afturljósin alveg rauð... að öðru leyti... MEGA flottur bíll... gangi þér vel að selja, þér vantar ekki E36 með M50 Turbo ![]() |
Author: | sosupabbi [ Tue 19. Feb 2013 16:55 ] |
Post subject: | Re: E32 730ia V8 - Sendiherrann feat. Borgó |
Bara flottur bíll, skoðaði þennan um daginn hjá skúla og þessi er ALLT fyrir peninginn ![]() |
Author: | IvanAnders [ Tue 19. Feb 2013 19:36 ] |
Post subject: | Re: E32 730ia V8 - Sendiherrann feat. Borgó |
Glæsilegur bíll!!! ![]() Ég á kickass sportstóla í þennan, fyrir þann sem kaupir hann! Dugar ekkert minna þegar menn eru á V8! ![]() |
Author: | oddur11 [ Thu 21. Feb 2013 20:30 ] |
Post subject: | Re: E32 730ia V8 - Sendiherrann feat. Borgó |
hagkaupsbeyglan er nú eftir haus á gaur sem var verið að henda út af Bar -_- |
Page 1 of 1 | All times are UTC |
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group https://www.phpbb.com/ |