bmwkraftur.is https://www.bmwkraftur.is/spjall/ |
|
BMW 325ix touring E30 https://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=10&t=57974 |
Page 1 of 1 |
Author: | maggib [ Mon 03. Sep 2012 16:44 ] |
Post subject: | BMW 325ix touring E30 |
Hættur við sölu í óákveðinn tíma. þakka öllum sem hafa sýnt áhuga fram að þessu!!!!! Jæja það styttist í vetur konung og hvað er betra fyrir harðkjarna BMW hnetur en að rúlla um á þessum ljúfling...? Ég er búinn að eiga bílinn í 1 og hálft ár og hefur hann þjónað mér alveg gríðar vel. E30 325ix touring 1988 keyrður um 215.000 vél M20B25 Beinskiptur viscous læsing í millikassa og afturdrifi Ljósbrúnt leður topplúga rafmagn í rúðum og lúgu Strut bar að framan fjarstýrðar samlæsingar check tölva litla obc Geislaspilari Ljóskastarar sportstólar viewtopic.php?f=5&t=50432&hilit=e30+fever ![]() ![]() fór með bílinn í skoðun í dag og þar var sett útá ballans stangar enda, brotinn gorm og hjörulið í stýrisstöng. kem til með að laga þetta og selja bílinn með fullri skoðun! lakkið hefur séð betri daga eins og gefur að skilja topplúgan virkar upp og niður en illa inn í toppinn það er saumspretta á bílstjórasæti sem ætti að vera hægt að laga, annars er leðrið flott ný spyrnugúmmí að framan rúðurnar óvirkar (stirðar) afturí sennilega af notkunarleysi (hef ekki gefið mér tíma í að kíkja á það) lélegar pumpur í afturhlera en halda honum uppi ef ekki er mikið rok! hér er tækifæri til að eignast einn duglegasta fólksbíl í snjó sem framleiddur hefur verið, hann hreint og beint mokast áfram í ófærðum. verður 25 ára á næsta ári og þar með hægt að skrá hann sem fornbíl! þá detta bifreiðagjöld út og tryggingar snarlækka bíllinn er staðsettur á Selfossi verðmiðinn er 400.000 kr Magnús 8660278 |
Author: | maggib [ Tue 04. Sep 2012 21:52 ] |
Post subject: | Re: BMW 325ix touring E30 |
smá bjartsýnis kast.... ![]() ef einhver skyldi eiga gamalt hjólhýsi sem þarfnast uppgerðar þá væri ég jafnvel til í að taka svoleiðis uppí! |
Author: | maggib [ Sun 23. Sep 2012 09:41 ] |
Post subject: | Re: BMW 325ix touring E30 |
verð að setja söluna á þessum í smá pásu því bíllinn hætti að hlaða í gær og er því óvirkur. einnig á ég eftir að laga hann fyrir fulla skoðun... |
Author: | svanthor [ Wed 03. Oct 2012 21:39 ] |
Post subject: | Re: BMW 325ix touring E30 |
Mikið þykir mér gaman að sjá að þessi bíll skuli ennþá vera í umferð. Ég átti þennan bíl á árunum 1998-1999 og þjónaði hann þá fjölskyldu minni ágætlega. Ég tek undir þetta með hæfileikann til að aka í snjó, ég man að það var frábært að spóla á öllum á þessari græju sem þetta var í mínum huga á þeim tíma. 170 hp þótti bara nokkuð gott þarna á hinni öldinni... núna eru litlir MB með 1794cc 4cyl hreyfli 164 hp. sem eru reyndar ekki sambærilegir hestar að mínu mati. Stefán Þór Sveinbjörnsson bílasali og eigandi Litlu Bílasölunnar átti þennan bíl á undan mér og mig minnir reyndar að hann hafi flutt hann inn frá Þýskalandi á sínum tíma. Ég varð fyrir því óláni að það brotnuðu framgormarnir í bílnum hjá mér og það gekk mjög illa að fá rétta gorma í hann. Þegar ég taldi mig svo hafa fengið þá (keypti þá hjá B&L "Bull og Lygi") og komst að því þegar ég var búinn að eyða talsverðri vinnu í að skipta um þá, að þetta voru ekki réttir gormar og bíllinn stóð upp á endann þegar þeir voru komnir í, svo mikið OF langir voru þeir. Ég varð frekar pirraður og svekktur og seldi bílinn í því ástandi. Einhver hefur svo lagfært þetta með því að setja lengri gorma að aftan og jafna þannig bílinn í hæð, það sést vel á myndunum að bíllinn er mun hærri en þegar ég fékk hann, enda var hann þá með M-tech fjöðrun og var því original lækkaður frá verksmiðju. Það kemur ekki fram í sölulýsingunni að það eru Recaro stólar í þessum bíl. Það þótti líka ansi flott. Smá innlegg frá fyrri eiganda. Þetta er eini BMW-inn sem ég hef átt en hef þó átt yfir 40 bíla þegar þetta er ritað. |
Author: | olinn [ Wed 03. Oct 2012 23:16 ] |
Post subject: | Re: BMW 325ix touring E30 |
Villt þú nokkuð skipti á corollu ![]() |
Page 1 of 1 | All times are UTC |
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group https://www.phpbb.com/ |