bmwkraftur.is https://www.bmwkraftur.is/spjall/ |
|
Aftur á sölu, BMW 540 400,000kr straðgreitt https://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=10&t=57749 |
Page 1 of 2 |
Author: | upgrade [ Tue 14. Aug 2012 20:33 ] |
Post subject: | Aftur á sölu, BMW 540 400,000kr straðgreitt |
Til sölu BMW e34 540 í ágætis standi. -Árgerð: 1993 -Litur: Vínrauður -Vélarstærð: 4,0 -Sjálfskiptur -Akstur: 259.xxx ef mig minnir rétt. Bíllinn er með: Topplúgu Hita, rafmagn og minni í sætum (Tausæti) Rafmagn í rúðum speglum og topplúgu. Þræddur fyrir græjur. Rosalega þéttur og góður bíll sem virkar vel. En það þarf aðeins að sníta honum, lakkið þarf ást. Hann var að fara í skoðun núna í mánuðinum og fékk endurskoðun útá spindilkúlu hægrameginn að framan og dempara hægrameginn að framan. Bíllinn er einnig með ónýtt drif. 400.000kr er fast verð, og eins og ég skrifaði með feitletruðu hér að neðan þá skoða ég engin skipti!!!! Skoða engin skipti. Hafa samband við mig hér bara, á mail gsteinsson@gmail.com Eða síma : 7763010. ![]() ![]() ![]() Stal þessari af fyrri eiganda. Á ekki betri myndir í augnablikinu Tek það fram að þessar felgur fara EKKI með bílnum. |
Author: | Jón Ragnar [ Tue 14. Aug 2012 21:52 ] |
Post subject: | Re: BMW E34 540 |
Myndinar virka ekki hostaðu þeim á www.imgur.com |
Author: | upgrade [ Wed 15. Aug 2012 12:57 ] |
Post subject: | Re: BMW E34 540 |
Svona það sem ég fann í auglýsingu síðan 2009 frá Johnsson hér á kraftinum. Quote: Ekinn 233.xxx km. Sjálfskiptur M60, 4.0L, V8, 286 hestöfl Framleiddur 12 mai 1993 Fyrst skráður 21 mai 1993 Fyrst skáður á Íslandi 22 sept 1997 Helsti aukabúnaður: - Tvívirk topplúga með auto stillingu - Viðarklæðning af dýrustu gerð. (ekkert plast drasl) - Loftkæling - Rafmagnssæti með minni, rafmagn í hauspúðum líka! - Mjóbaksstuðningur í bílstjórasæti - Létt stýri - Sætishitarar - Hvít stefnuljós - 17“ M-technic álfelgur (OEM) á 235-45/17" Pirelli dekkjum - Rafmagn í rúðum og speglum og ábyggilega eitthvað fleirra sem ég man ekki alveg í augnablikinu. Ekkert hefur verið sparað í viðhald á bílnum síðustu ca 1-2 ár og hefur meðal annars verið skipt um: - Rafgeymi - Kerti - Knastásskynjara - Sveifarásskynjara - Loftflæðiskynjara - Báða súrefnisskynjara í pústi - Bensíndælu - Lausagangsskynjara - Nýr Alternator - Vatnsdæla - Hvarfakútum var skipt út og túpur settar í staðinn, púst var yfirfarið og lagað í leiðinni. - Sjálfskiptingin var tekin upp af Bifreiðastillingu í Kópavogi $$$$$ - Miðstöðvarmótstöðu Það fylgja bílnum Þjónustubók og nótur fyrir rúma hálfa milljón, þar af 300þúsund í upptekninguna á skiptingunni. Þessar nótur fylgja bílnum ekki lengur hinsvegar. |
Author: | agustingig [ Wed 15. Aug 2012 13:03 ] |
Post subject: | Re: BMW E34 540 |
![]() Virkar ekki ennþá,, Er þetta brokatrot bíllinn? |
Author: | upgrade [ Wed 15. Aug 2012 15:01 ] |
Post subject: | Re: BMW E34 540 |
Núh, þetta virkar hjá mér í öllum tölvu. Sama hvort ég sé innskráður eða ekki. Ég uploada þeim þá uppá nýtt þegar ég er búinn að vinna í kvöld. Brokatrot bíllinn? |
Author: | tolliii [ Wed 15. Aug 2012 15:46 ] |
Post subject: | Re: BMW E34 540 |
Væntanlega sá bíll ef hann er vínrauður.. |
Author: | Jón Ragnar [ Wed 15. Aug 2012 16:59 ] |
Post subject: | Re: BMW E34 540 |
upgrade wrote: Núh, þetta virkar hjá mér í öllum tölvu. Sama hvort ég sé innskráður eða ekki. Ég uploada þeim þá uppá nýtt þegar ég er búinn að vinna í kvöld. Brokatrot bíllinn? Getur ekki hotlinkað beint í mailboxið þitt ![]() |
Author: | odinn88 [ Wed 15. Aug 2012 17:19 ] |
Post subject: | Re: BMW E34 540 |
flottur bíll hjá þér gunnar gangi þér vel með söluna |
Author: | upgrade [ Wed 15. Aug 2012 23:08 ] |
Post subject: | Re: BMW E34 540 |
Takk fyrir það ![]() Myndir komnar, vona að þær virki núna. Ég veit þær eru slæmar en þær segja samt meira en 1000 orð. |
Author: | upgrade [ Tue 21. Aug 2012 10:27 ] |
Post subject: | Re: BMW E34 540 |
Setjum þennan upp |
Author: | upgrade [ Wed 22. Aug 2012 22:22 ] |
Post subject: | Re: BMW E34 540 |
Kannski fínt að benda á að bíllinn er ekki á númerum og hann afhendist þannig |
Author: | upgrade [ Mon 27. Aug 2012 14:58 ] |
Post subject: | Re: BMW E34 540 |
Gengur ekki að hafa bílinn á síðu 2 |
Author: | upgrade [ Thu 30. Aug 2012 12:03 ] |
Post subject: | Re: ♠♠♠ BMW E34 540 [Fer á 480,000kr framyfir helgi] ♠♠♠ |
upp með hann svo hann fari nú ekki á bls 2 |
Author: | Dannii [ Thu 30. Aug 2012 16:35 ] |
Post subject: | Re: ♠♠♠ BMW E34 540 [Fer á 480,000kr framyfir helgi] ♠♠♠ |
ég á miðjur í þessar felgur ef þig vantar ![]() |
Author: | upgrade [ Fri 31. Aug 2012 09:48 ] |
Post subject: | Re: ♠♠♠ BMW E34 540 [Fer á 480,000kr framyfir helgi] ♠♠♠ |
Dannii wrote: ég á miðjur í þessar felgur ef þig vantar ![]() Ég á ekki þessar felgur, held að miðjurnar séu til í þær en takk samt |
Page 1 of 2 | All times are UTC |
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group https://www.phpbb.com/ |