bmwkraftur.is https://www.bmwkraftur.is/spjall/ |
|
BMW e36 323i coupe - sold https://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=10&t=57333 |
Page 1 of 1 |
Author: | BirkirB [ Sun 08. Jul 2012 22:32 ] |
Post subject: | BMW e36 323i coupe - sold |
Til sölu BMW e36 323i (upprunalega 320i). Búinn að eiga þennan í að verða 5 ár, langar að breyta til og það er ekkert verra að eiga pening á meðan maður er í skóla. Helstu upplýsingar: Skráningarnúmer: UU-099 Fastanúmer: UU-099 Tegund: BMW Undirtegund: 323i (skráður 320i) Litur: Fjólublár (madeira schwartz) Skráður seint árið 1996 (október eða eitthvað) Staða: Í lagi Næsta aðalskoðun: 2012 Vél: M52B25 Ekinn 186þús. km (mótor ekinn u.þ.b. 40þús km minna en ég get því miður ekki staðfest það 100%) Það bilaði víst 2l mótorinn sem var í bílnum þegar hann var keyrður u.þ.b. 40þús. km og B&L svöppuðu nýjum 2,5l mótor í staðinn (M52B25). Þar af leiðandi er litla drifið og öxlar í honum. Þó að þetta sé M52B25 skráður 170hö, þá gerir M50 soggreinin og opnara púst mikið fyrir þessar vélar og ég efast um að flækjurnar skemmi fyrir. Semsagt alveg sprækur bíll. Innrétting er í ágætu ástandi, blátt tauáklæði á sætum. Analog miðstöð og klukka Topplúga Armrest Niðurleggjanleg sæti Lakkið er alveg fínt miðað við 16 ára bíl, mjög lítið um grjótkast og laust við rispur. Ég hef hugsað vel um þennan bíl, þrifið hann og bónað reglulega og sinnt viðhaldi og olíuskiptum. Honum hefur verið lagt á veturnar í minni eigu þar til síðasta veturs. Geymdur inni ef ég hef haft tök á því. Þessi bíll spólar á Einari þannig að ég hef ekkert sett hann á hlið. Viðhald: Ný afturdekk í desember 2011, framdekk eru góð Skipt um bremsuklossa að framan haust 2011 Nýr rafgeymir í desember 2011, 75Ah Smurður (á ca. 5000km fresti) síðast í vor hjá Eðalbílum og tékkað á olíu á gírkassa og drifi. Allt í góðu þar. Skipt um stærri viftureimina í vor Breytingar: OEM Mtech framstuðari OEM Mtech speglar BBS RC303 18x8,5" felgur, pólíhúðaðar dökkgráar, án loka (fylgja samt með en eru mjög ljót) BMW merki á felgum. S50 flækjur (euro) M50 Soggrein Sérsmíðað púst frá flækjum með dtm stútum KW 60/40 lækkunargormar og demparar (keypt nýtt og sett í bílinn sumarið 2008) Setti einhverja fína Pioneer hátalara og spilara í bílinn árið 2008 minnir mig. USB tengi á spilaranum en þræddi nýja víra fyrir hátalara. Sándar alveg vel. ZHP gírhnúi Skiptiarmur úr Z3 1,8 sem virkar sem shortshifter í e36 Lip á skottloki og afturrúðu OEM projector ljós Svört nýru Svo á ég X-brace útí skúr sem SMG held ég smíðaði, hef bara ekki nennt að setja það í hann. Fylgir semsagt með. Gallar: Þessi klassísku e36 vandamál, Ryð í afturbretti farþegamegin, svo eru örsmáar ryðdoppur fremst á toppnum. Í frosti eða miklum hita eru rúðurnar með leiðindi, rofinn sem á að ýta þeim í efstu stöðu er svo slitinn. Bíllinn var eitthvað sprautaður árið 2006 eða 2007 og glæran lak smá, en lekinn er rétt hjá ryðblettinum á afturbrettinu. Bíllinn er ekki tjónlaus ABS og spólvarnarljósið logar, lét lesa af honum hjá Eðalbílum og þar kom upp ABS microprocessor error Samlæsingarnar hafa alltaf verið með vesen og ég þurfti að taka mótorinn úr farþegahurðinni til að geta notað hana. Eðalbílar gátu ekki sagt til um hvað væri nkl að. Fjarstýringin virkar ekki. Nokkrar ársgamlar myndir, bíllinn lítur eins út núna, græja nýjar myndir í vikunni. ![]() ![]() ![]() ![]() Gömul mynd, oem loftsíubox komið í núna. Er í rvk. Skemmtilegur bíll sem mér þykir vænt um og langar að selja einhverjum sem að mun sinna honum. PM Verð: 800þús. Skoða skipti. |
Author: | Lastorer [ Mon 09. Jul 2012 22:47 ] |
Post subject: | Re: BMW e36 323i coupe |
frábær bíll í allastaði upp með hann |
Author: | BirkirB [ Thu 12. Jul 2012 00:21 ] |
Post subject: | Re: BMW e36 323i coupe |
Smá myndahaugur, ég veit að ég ætti að vera löngu búinn að rífa þessar ógeðis filmur úr. Og felgurnar eru ekki til sölu nema með bílnum. ![]() ![]() ![]() ![]() ![]() ![]() ![]() ![]() ![]() ![]() ![]() ![]() |
Author: | Misdo [ Thu 12. Jul 2012 07:12 ] |
Post subject: | Re: BMW e36 323i coupe - nýjar myndir |
Mjög smekklegur að sjá |
Author: | ValliB [ Fri 13. Jul 2012 12:48 ] |
Post subject: | Re: BMW e36 323i coupe - nýjar myndir |
Eigandinn hugsar vel um þennan. Hann er ekki enn búinn að setja teningana í spegilinn, en það styttist í það segir hann. Hann er með þá klára. Svo átti Logi Geirsson bílinn ![]() |
Author: | jonthor [ Fri 13. Jul 2012 13:19 ] |
Post subject: | Re: BMW e36 323i coupe - nýjar myndir |
Fallegur bíll, kemur virkilega vel út á þessum felgum. |
Author: | BirkirB [ Mon 30. Jul 2012 22:21 ] |
Post subject: | Re: BMW e36 323i coupe - nýjar myndir |
lkfbömprkrg |
Author: | BirkirB [ Fri 03. Aug 2012 12:28 ] |
Post subject: | Re: BMW e36 323i coupe - nýjar myndir |
Bömp, djöfull er leiðinlegt að selja bíl. Held ég kaupi mér bara aldrei aftur bíl. |
Author: | Kristjan [ Sat 04. Aug 2012 11:45 ] |
Post subject: | Re: BMW e36 323i coupe - nýjar myndir |
Húsavík represent, mjög fallegur bíll hjá þér. |
Author: | SUBARUWRX [ Thu 16. Aug 2012 23:02 ] |
Post subject: | Re: BMW e36 323i coupe - nýjar myndir |
Skipti á Enduro hjóli?? Husaberg 550cc |
Author: | BirkirB [ Thu 16. Aug 2012 23:41 ] |
Post subject: | Re: BMW e36 323i coupe - nýjar myndir |
Nei takk, væri samt alveg til í hjól. |
Author: | BirkirB [ Wed 22. Aug 2012 15:04 ] |
Post subject: | Re: BMW e36 323i coupe - nýjar myndir |
Er í rkv núna þannig að það er hægt að skoða bílinn ![]() |
Author: | BirkirB [ Wed 12. Sep 2012 19:37 ] |
Post subject: | Re: BMW e36 323i coupe - nýjar myndir |
Nýjir stýrisendar, hjólastilltur, ný afturdekk, skoðaður 2013. |
Author: | BirkirB [ Sun 16. Sep 2012 15:52 ] |
Post subject: | Re: BMW e36 323i coupe - nýjar myndir |
Upp... ![]() |
Author: | BirkirB [ Wed 19. Sep 2012 20:48 ] |
Post subject: | Re: BMW e36 323i coupe - nýjar myndir |
Upp. Ég nenni ekki lengur að svara staðgreiðslukjaftæðinu... |
Page 1 of 1 | All times are UTC |
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group https://www.phpbb.com/ |