bmwkraftur.is https://www.bmwkraftur.is/spjall/ |
|
BMW e30 325i ´90 M-Technik II https://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=10&t=56146 |
Page 1 of 1 |
Author: | Jónki 320i ´84 [ Mon 16. Apr 2012 13:34 ] |
Post subject: | BMW e30 325i ´90 M-Technik II |
Þá er komið að því, ég hef verið að hugsa þetta í langan tíma og er búinn að taka ákvörðun um að setja bílinn á sölu og er hann því falur. Bíllinn sem um ræðir er BMW e30 325i ´90 M-TechnikII 4door. Bílnr: NI-564 Delphin Metallic (184) Bíllinn kemur af færibandinu þann 05.02.1990. Hann þeysti um götur og hraðbrautir heimalandsins þangað til 2005 og er hann skráður hér á landi þann 03.06.2005. Það var Smári Hamburg sem flutti bílinn inn fyrir mig og hafði hann orð á því að þetta væri besti e30 sem hann hafði nokkurn tímann keyrt og hefur hann keyrt þá þónokkra. Ég er fjórði eigandi af bílnum, eða í raun sá þriðji því fyrsti eigandi er fyrirtæki og hafði forstjórinn hann til umráða og svo þegar hann hættir þá fékk hann bílinn til eignar. Sá er fæddur 1930. Hann selur síðan bílinn til þess sem ég keypti hann af og ætlaði sá að nota hann sem leiktæki, var búinn að lækka hann, setja strutbrace að framan og aðrar felgur, en hann hafði aldrei tíma til þess að leika sér á honum og ákvað því að selja hann. Þegar bíllinn kemur heim þá er hann keyrður 166.800km. Eitt það fyrsta sem ég gerði var að kaupa original M-TechnikII kitt frá þýskalandi og þegar það var komið í mínar hendur þá tók við heilmálun sem fór fram í ágúst 2005. Eins og margir hérna vita að þá er ég með fullkomnunaráráttu og er ég búinn að vera að betrumbæta margt í gegnum tíðina. Það er búið að mála flest allt á bílnum einu sinni eða oftar eftir heilmálunina, það eina sem ekki er búið að mála aftur eru hurðar, þak og skottlok. Á bílnum er glænýtt original húdd($$$$$) sem var málað og sett á sumarið 2010, einnig er glæný original framsvunta ($$$$$) sem var máluð og sett á sumarið 2009. Bíllinn er keyrður í dag 201.xxx km en hefur verið keyrður mjög lítið síðustu þrjú sumur, aðeins á góðviðrisdögum og tyllidögum. Bíllinn fór í hjólastillingu hjá Birni B. Steffensen 03.04.2006 þá keyrður 175.384km En jæja þá skulum við kíkja á fæðingarvottorðið: Vehicle information VIN long : WBAAD11040AF51667 Type code: AD11 Type: 325i (EUR) Dev. Series: E30() Line: 3 Body Type: LIM Steering: RL Door count: 4 Engine: M20 Cubical capacity: 2.50 Power: 125 kw Transmission: HECK Gearbox: MECH Colour: DELPHIN METALLIC (184) Upholstery: ANTHRAZIT STOFF (0269) Prod. Date: 1990-02-05 Order options 215: POWER STEERING DEPENDING ON ENGINE SPEED 320: MODEL DESIGNATION, DELETION 339: SATIN CHROME 350: WAERMESCHUTZGLAS GRUEN, RUNDUM 400: SLIDING SUNROOF MANUAL 428: WARNING TRIANGLE 510: HEADLIGHT BEAM-THROW CONTR. F LOW BEAM 556: EXTERIOR TEMPERATURE DISPLAY 652: BMW BAVARIA C II 680: MANUAL AERIAL 704: M SPORT SUSPENSION 708: M-SPORT LEATHER STEERING WHEEL II 801: GERMANY VERSION Það sem er nýtt eða nýlegt er: Nýlegir Bremsuklossar + þreifarar framan og aftan (original) Tímareim, vatnsdæla og strekkjari (Bosch) skipt um í að mig minnir 190.xxxkm Nýjar pakkdósir aftan á gírkassa (original) Ný olía á gírkassa Ný pönnupakkning á vél (original) Nýleg olía og sía á vél (original sía) Ný olía á drifi Ný sveif fyrir topplúgu (original) Nýleg kerti (Bosch 4ja póla) Nýjir mótorpúðar (original) Ný bensíndæla ( Tækniþjónusta bifreiða seldi mér hana því hún var ekki til original) Nýtt útvarpsloftnet (original) Nýr þéttikantur á skotti og einnig nýjir á afturljósum (original) Nýjir ljósabotnar á afturljósum (original) Það sem er búið að breyta í bílnum er: Fjöðrun: Spax með lækkun 70/50mm Strutbrace að framan sem er búið að mála í sama lit og bíllinn. Vél: K&N drop in sía, hvarfakútur fjarlægður og túbur setta í staðinn, Gpower endakútur á pústi ($$$$$), aðrir krómpúststútar á endakút OO, sem fylla betur útí gatið á svuntunni. Drifrás: Læst drif ( kom úr gráa 2door m-tech bílnum sem tjónaðist) Útlit: Full M-TechnikII kitt ($$$$$) Smokuð Hella framljós (Original Hella, sérpantað hjá N1 $$$$$) Xenon aðaljós Filmaður allan hringinn Borbet T felgur 16*9“ með póleruðum kanti og miðjur málaðar í sama lit og bílinn. Búið er að setja króm mælaborðshringi og rauðar nálar. M-Technik gírhnúður með ljósi (original) BMW sportsæti úr BS-187 sem þyrfti að skipta um áklæði á Höfuðpúðar á aftursætum Taumottur á gólfum (original) Klæðning innan á skottloki sett í og máluð svört (kom bara í special edition bílunum held ég) Gardína í afturhillu Dekk: Kumho Ecsta 215/40/16 Hljóðkerfi: Í bílnum er pioneer geilsaspilari og pioneer hátalarar í afturhillu, orginal hátalarar frammí. Þjófavörn: Viper þjófavörn með fjarstarti sem er virkt http://www.drdetailshop.com/V791XV.htm Þetta er kerfið Bíllinn er skoðaður án athugasemda 2012 en númerin liggja inni núna í geymslu. Það er ábyggilega eitthvað sem ég er að gleyma svo það er bara um að gera að spyrja. Þessi bíll er búinn að vera gullmolinn minn síðan 2005 og langar mig ekkert til þess að selja hann, en vegna breyttra fjölskylduaðstæðna þá hef ég tekið þá ákvörðun að selja hann ef rétt verð fæst. Verðið er 1.500.000 Ég veit að það er í hærri kantinum en hann er ekki til sölu fyrir eitthvað klink, en ég skoða öll tilboð og skipti, en það þarf alltaf að vera peningur í milligjöf. Eins fer þessi bíll ekki til bara einhvers, ég áskil mér rétt til þess að neyta mönnum ef mér lýst ekki á þá eða þeirra hugmyndir. Þessi bíll fer aðeins í góðar hendur!!!! Ég nenni ekki að vera að sýna mönnum bílinn sem hafa ekki alvöru áhuga þar sem hann er í geymslu annarsstaðar en heima hjá mér þannig að ég nenni ekki neinum dekkjaspörkurum!! Þetta er gamli bílar meðlima þráðurinn: http://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=5&t=10746 Kv. Jón Knútur jonki@edalbilar.is s: 697-9021 myndir: ![]() ![]() ![]() ![]() ![]() ![]() |
Author: | Nonni325 [ Mon 16. Apr 2012 14:03 ] |
Post subject: | Re: BMW e30 325i ´90 M-Technik II |
Bara nettur og eigulegur E30! ![]() Væri alveg til að eiga smá pening núna ![]() |
Author: | Steinieini [ Mon 16. Apr 2012 19:45 ] |
Post subject: | Re: BMW e30 325i ´90 M-Technik II |
flott spoílerkítt hvað er hann að eyða ? |
Author: | Jökull [ Mon 16. Apr 2012 21:30 ] |
Post subject: | Re: BMW e30 325i ´90 M-Technik II |
Þessi er vægast sagt... Geðveikt flottur ![]() |
Author: | Bandit79 [ Tue 17. Apr 2012 09:18 ] |
Post subject: | Re: BMW e30 325i ´90 M-Technik II |
Flottur þessi og vönduð auglýsing! ![]() |
Author: | IcelandicPsycho [ Thu 19. Apr 2012 15:32 ] |
Post subject: | Re: BMW e30 325i ´90 M-Technik II |
hands down flottasti e30 landsins, og hreinlega bara einn af flottustu sem ég hef séð, gangi þér vel með söluna gamli |
Author: | Jónki 320i ´84 [ Mon 23. Apr 2012 14:24 ] |
Post subject: | Re: BMW e30 325i ´90 M-Technik II |
Takk fyrir commentin ![]() Ég gleymdi að taka það fram að hlutfallið í læsta drifinu er 3.73 |
Author: | Jónki 320i ´84 [ Sun 06. May 2012 10:39 ] |
Post subject: | Re: BMW e30 325i ´90 M-Technik II |
Það kom að því, bíllinn er seldur..... |
Page 1 of 1 | All times are UTC |
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group https://www.phpbb.com/ |