Til sölu:
Nú þarf ég að fara að selja glæsivagninn minn. Bíllinn er semsagt 1989 módel af 520 og er beinskiptur. Bíllinn er nokkuð mikið ekinn eða 272.000 km, en viðhaldið hefur að sama skapi verið mjög gott enda sonur fyrrverandi eiganda bifvélavirki sem sérhæfir sig í BMW.
Bíllinn er grár að lit og með ljósa innréttingu. Hann er eins og fyr segir beinskiptur og virkar bara í flesta staði mjög vel. Það sem ég veit að þarf að gera er að hann fékk ekki fulla skoðun út af ónýtum spindli bílstjóra megin og mun ég láta gera við það áður en bíllinn afhendist, eða ekki, bara eftir því hvað fólk vill.
Undir bílnum eru 15" álfelgur með ágætis sumardekkjum en einnig fylgja með stálfelgur með góðum nagladekkjum og BMW koppum.
Auðvitað er alltaf erfitt að segja til um verð en ég set 350.000 kr. á gripinn enda hin ágætasti bíll.
Annars er bara að spyrja.
Þórir s:663 5525
ichiro@simnet.is
