bmwkraftur.is
https://www.bmwkraftur.is/spjall/

BMW Z3 SELDUR
https://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=10&t=53893
Page 1 of 2

Author:  Birgir Sig [ Tue 15. Nov 2011 16:26 ]
Post subject:  BMW Z3 SELDUR

SELDUR



Upplýsingar

# Tegund & undirtegund - BMW Z3 Coupe
# Árgerð - 1999 (nýskráður ekinn 0km 8/2000)
# Litur - Topasblau Metallic
# Vélarstærð - Straight six 2800cc (M52B28TU)
# Afl - 193 hö - 280nm tog
# Kvartmíla - 14.3@97mph (Á handónýtum dekkjum)
# Sjálfskiptur/Beinskiptur - Beinskiptur
# Akstur - Aðeins 93þús
# Dyrafjöldi - 2 dyra


Aukahlutir & búnaður
# Glænýr rafgeymir
# Glær stefnuljós hringinn
# Stainless steel flækjur
# Búið að fjarlægja Y kút úr pústi
# K&N intake
# HELLA Projector framljós með angel eyes
# Þokuljós
# Svört nýru
# ///M upplýstur gírhnúður
# ///M stýri
# 3.46 drif
# Solid Álmótorpúðar
# Rafmagn í sætum
# Rafmagn í rúðum
# Rafmagn í speglum
# ASC skriðvörn og spólvörn (On/off takki)
# Topplúga með lituðu gleri
# Leður
# Air Condition
# Hiti í speglum og afturrúðu
# Smur & þjónustubók frá upphafi

Image

Image

koma myndir seinna

ásett verð er 2.190.000


skifti á dýrari og ódýrari

Birgir Sig Sími: 8487958

Author:  Birgir Sig [ Fri 18. Nov 2011 18:50 ]
Post subject:  Re: BMW Z3

fer á djók verði ef um seðla er að ræða

Author:  Birgir Sig [ Sun 20. Nov 2011 13:30 ]
Post subject:  Re: BMW Z3

:D:D:D:D:D

Author:  Djofullinn [ Sun 20. Nov 2011 13:36 ]
Post subject:  Re: BMW Z3

Birgir Sig wrote:
1,6 milla takk fyrir

Geggjað verð gamli!

Author:  Birgir Sig [ Mon 21. Nov 2011 18:44 ]
Post subject:  Re: BMW Z3

já enda komin með mikið að skiptibulli, en enginn með nógu sniðugt samt:D

Author:  Axel Jóhann [ Wed 23. Nov 2011 01:43 ]
Post subject:  Re: BMW Z3

Skal skipta við þig á sléttu á Korando '98, nýbónaður, fullur af olíu og eyðir um 10 á hundraðið. :santa:

Author:  Birgir Sig [ Thu 24. Nov 2011 20:24 ]
Post subject:  Re: BMW Z3

Axel Jóhann wrote:
Skal skipta við þig á sléttu á Korando '98, nýbónaður, fullur af olíu og eyðir um 10 á hundraðið. :santa:



heyrðu leifum snjónum að falla aðeins meira svo geturu hringt i mig :D

Author:  saemi [ Thu 24. Nov 2011 23:18 ]
Post subject:  Re: BMW Z3

Hægt að gera betur í fyrirsögninni :P

Author:  Freyr Gauti [ Thu 24. Nov 2011 23:26 ]
Post subject:  Re: BMW Z3

saemi wrote:
Hægt að gera betur í fyrirsögninni :P


Hvað vantar meira í fyrirsögnina á þessu en 90% fyrirsagna í þessum dálk? Þetta er til sölu dálkur fyrir BMW, hann setur típuheitið í fyrirsögnina, hvað vantar meira?

Author:  x5power [ Mon 28. Nov 2011 00:17 ]
Post subject:  Re: BMW Z3 '00 m52b28 blár á 17'' felgum gott staðgreiðsluve

viltu ekki bara vélsleða ef það ætlar að snjóa meira?

Author:  saemi [ Mon 28. Nov 2011 01:09 ]
Post subject:  Re: BMW Z3

Freyr Gauti wrote:
saemi wrote:
Hægt að gera betur í fyrirsögninni :P


Hvað vantar meira í fyrirsögnina á þessu en 90% fyrirsagna í þessum dálk? Þetta er til sölu dálkur fyrir BMW, hann setur típuheitið í fyrirsögnina, hvað vantar meira?


Kommon, Þú hlýtur nú að sjá það sem reyndur spjallverji :P

Í fyrsta lagi þá er hægt að vísa í bílnumer bílsins, fyrri eiganda eða eitthvað sem segir til um hvaða bíll þetta er. Þetta er þekktur bíll ásamt því sem seljandinn er nú vel kunnugur og aktívur á þessu spjallborði og ætti því að leikur einn að setja inn eitthvað í fyrirsögnina sem fær fólk til að fatta hvaða bíl er um að ræða af fyrirsögninni einni.

Í öðru lagi væri hægt að setja inn hvaða týpu af bíl er um að ræða.

Bíllinn kom bæði sem coupe og blæjubíll, með eftirfarandi vélum:

1.8 L M43B18 I4
1.9 L M44B19 I4
2.0 L M52B20 T I6
2.2 L M54B22 I6
2.8 L M52B28 I6
3.2 L S52B32 I6 (NA only)
3.2 L S50B32 I6 (non-NA)
2.5 L M52TUB25 I6
2.5 L M54B25 I6
3.0 L M54B30 I6
3.2 L S54B32 I6

Í þriðja lagi væri hægt að tilgreina árgerð bílsins / skráningu.

Eins og þetta er uppsett núna, þá gæti þetta átt við alla Z3 bíla sem eru skráðir á Íslandi og maður þarf að fara inn í þráðinn til að fatta um hvaða bíl ræðir. Ef þetta er gert með alla bíla sem eru hér til sölu, þá væri frekar leiðinlegt að "browsa" spjallið!

Author:  Freyr Gauti [ Mon 28. Nov 2011 13:28 ]
Post subject:  Re: BMW Z3 '00 m52b28 blár á 17'' felgum gott staðgreiðsluve

saemi wrote:
Freyr Gauti wrote:
saemi wrote:
Hægt að gera betur í fyrirsögninni :P


Hvað vantar meira í fyrirsögnina á þessu en 90% fyrirsagna í þessum dálk? Þetta er til sölu dálkur fyrir BMW, hann setur típuheitið í fyrirsögnina, hvað vantar meira?
*Langur Texti


Eina sem mögulega vantaði í topic'ið var hvort þetta væri coupe eða blæja, það á ekki að þurfa skrifa alla auglýsinguna í topic'ið, eins og þú virðist vera farinn að vilja. Spurning að hætta með þræði og hafa bara extra löng topic. Grínlaust, hve uppteking ertu ef þú hefur ekki tíma til að opna þráð og sjá hvaða mótor er í bílnum, eða hvernig hann er á litinn.

Author:  saemi [ Mon 28. Nov 2011 17:04 ]
Post subject:  Re: BMW Z3 '00 m52b28 blár á 17'' felgum gott staðgreiðsluve

Freyr Gauti wrote:
Eina sem mögulega vantaði í topic'ið var hvort þetta væri coupe eða blæja, það á ekki að þurfa skrifa alla auglýsinguna í topic'ið, eins og þú virðist vera farinn að vilja. Spurning að hætta með þræði og hafa bara extra löng topic. Grínlaust, hve uppteking ertu ef þú hefur ekki tíma til að opna þráð og sjá hvaða mótor er í bílnum, eða hvernig hann er á litinn.


Fínt að hafa skoðun á hlutunum. Ef þú ert hlynntur því að hafa söludálk BMW-krafts þannig, þar sem nóg er að hafa fyrirsögn eins og "Z3 til sölu" þá er bara um að gera að afla þinni skoðun fylgis og breyta þessu.

Þangað til þá leyfi ég mér að hafa þá skoðun að það sé til bóta fyrir BMWkraft að hafa fyrirsögn í þráðum á þann hátt að ekki þurfi að opna þráð til að sjá um hvað er að ræða, ásamt því að ætla að meirihluti spjallverja sé sammála því á meðan þín tillaga fær ekki meðbyr.

Án gríns, þá er þetta ekki spurning um að vera upptekinn og hafa ekki tíma. þetta er spurning um umgengni.

Þú segir að ég vilji hafa alla auglýsinguna í fyrirsögninni, það er full frjálslega farið með sannleikann. Ég er ekki að biðja um það og þú ættir að vita það mæta vel. Er eitthvað því til fyrirstöðu að hafa í fyrirsögninni hvaða bíl er um að ræða? Hvort þetta er sedan, coupe, E34/E39 og árgerð? Hvað er verra við það? Útskýrðu það með rökum og þá er ekkert mál að bakka út úr þessarri stefnu. Ástæðan fyrir því að ég er að demba þessu inn núna á spjallið er sú að þetta fer síversnandi. Ef ekki er stemmt stigu við slæmri þróun, þá versna málin bara.



En ef þetta off-topic heldur áfram hér, þá er best að færa þetta í off-topic :P

Author:  Alex GST [ Mon 28. Nov 2011 17:30 ]
Post subject:  Re: BMW Z3 '00 m52b28 blár á 17'' felgum gott staðgreiðsluve

töffara bíll 8)

Author:  Birgir Sig [ Mon 28. Nov 2011 19:48 ]
Post subject:  Re: BMW Z3 '00 m52b28 blár á 17'' felgum gott staðgreiðsluve

Alex GST wrote:
töffara bíll 8)


þú meinar gellubíll:D :thup:

Page 1 of 2 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/