bmwkraftur.is https://www.bmwkraftur.is/spjall/ |
|
99' E39 M5 - 2012 Bump með upplýsingum á bls. 2 - Seldur https://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=10&t=53416 |
Page 1 of 2 |
Author: | SteiniDJ [ Fri 14. Oct 2011 20:17 ] |
Post subject: | 99' E39 M5 - 2012 Bump með upplýsingum á bls. 2 - Seldur |
BMW M5 1999 Silverstone Metallic Aflgjafi: Bensín 4941cc - 400 hestöfl - 500 Nm @ 3800 RPM Skipting: Beinskipting Ekinn 168000 km. Búnaður: 18" OEM M5 felgur Aðgerðastýri Cruise Control Hiti í sætum Leðuráklæði á stólum og innréttingu Loftkæling Loftpúðar Loftpúðar í stólum fyrir mjóbaksstuðning Læst drif Minni í sætum Möguleiki fyrir CD-Magasín í skottinu Navigation Projector framljós Rafmagn í speglum Rafmagn í sætum Rafstýrt stýri REMUS púst Sjónvarp Sport takki sem hefur áhrif á stýrið og inngjöf Spól- og skriðvörn Stafræn miðstöð Svartur toppur Útvarp Xenon Þokuljós Fyrir þá þrælvönu, þá er fæðingarvottorðið hér: Quote: Order options No. Description 401 SLIDING/VENT ROOF, ELECTRIC 438 WOOD TRIM 441 SMOKERS PACKAGE 508 PARK DISTANCE CONTROL (PDC) 609 NAVIGATION SYSTEM PROFESSIONAL 670 RADIO BMW PROFESSIONAL 672 CD CHANGER BMW FOR 6 CDS 855 LANGUAGE VERSION ITALIAN 863 EUROPE/DEALER DIRECTORY 877 DELETION CROSS-OVER OPERATION 884 ITALIAN/OWNERS HANDBOOK/SERVICE BOOKLET 915 BODY SKIN CONSERVATION, DELETION 928 TYIRE CONTROL Series options No. Description 210 DYNAMIC STABILITY CONTROL (DSC) 216 SERVOTRONIC 261 SIDE AIRBAG FOR REAR PASSENGERS 302 ALARM SYSTEM 423 FLOOR MATS, VELOUR 430 INT/EXT RR VW MIRROR W AUT ANTI-DAZZLE 459 SEAT ADJUSTM., ELECTR. W. MEMORY 473 ARMREST, FRONT 488 LUMBAR SUPPORT DRIVER/FRONT PASSENGER 494 SEAT HEATING F DRIVER/FRONT PASSENGER 500 HEADLIGHT WASHER SYS/INTENSIVE CLEANING 520 FOGLIGHTS 522 XENON LIGHT 534 AUTOMATIC AIR CONDITIONING 548 SPEEDOMETER WITH KILOMETER READING 555 ON-BOARD COMPUTER 710 M LEATHER STEERING WHEEL 775 INDIVIDUAL ROOF-LINING ANTHRACITE 785 WHITE DIRECTION INDICATOR LIGHTS Information No. Description 602 ON-BOARD MONITOR WITH TV 694 PREPARATION FOR CD CHANGER ![]() ![]() Komin felgumiðja á sinn stað. ![]() ![]() Stefni á að koma með betri myndir af innréttingunni við tækifæri. ![]() ![]() Ástand: Bílinn er í mjög góðu ástandi og er hann skoðaður ‚12‘ án athugasemda. Eftir að hann komst í mína eigu fyrir 13 mánuðum síðan hefur hann verið þjónustaður alfarið af Eðalbílum. Eins og BMW mönnum er vel kunnugt þá vinna þeir vinnu sína mjög svo vel og hefur allt verið 100% í þessum bíl sem þeir hafa komið nálægt. Það er þó vert að taka fram að aftari vélarhlíf fylgdi ekki með honum og hefur það gengið illa að verða mér út um hana. Smá sér á lakki, en ekkert óvenjulegt m.v. bíl á þessum aldri og á þessu landi. Hef reglulega stjanað við hann með bóni frá Dodo Juice. Undir bílnum eru 18" Cooper dekk sem hafa verið undir honum í eitt sumar. Ótrúlega góð dekk sem gefa gott grip og góða endingu. Felgurnar voru teknar í gegn í vetur og var það meistaralega vel gert. Þær eru nánast betri en nýjar og í OEM Shadowchrome stíl. Frekari upplýsingar: Þessi bíll er lygilega góður og var fluttur inn frá Ítalíu á sínum tíma. Ég hef aldrei sparað í viðhaldi eða rekstri á honum, einungis verslað OEM varahluti og látið fagmenn sjá um bilanagreiningu og ísetningu. Hef alltaf notað þá olíu sem BMW mælir með, Castrol TWS 10-60, sem er sérhönnuð fyrir þessa bíla. Ég er nokkuð rólegur ökumaður og verið nokkuð slakur við að taka á bílnum. Hef fylgt einfaldri reglu hvað akstur bílsins varðar: ef hann er kaldur, þá fer ég ekki yfir 2000 snúninga. Það sem ég hef gert við bílinn: Það fyrsta sem ég geri við bílinn eftir að ég eignast hann er að lita leðrið. Með tímanum fór að sjá á leðrinu, en það varð nánast eins og nýtt eftir þessa meðferð. ![]() Næst „gerði ég við“ plast handfang á arm-restinu. Það hafði rispast og var frekar ljótt svo ég varð mér út um svo kallað di-noc carbon fiber og vafði handfangið í því. Kemur mjög vel út. ![]() Fór svo með hann í Eðalbíla og lét þá laga eftirfarandi atriði:
Í vor lét ég Árna Sezar, bílasprautara, taka í gegn felgurnar sem voru undir bílnum. Einhver af fyrri eigendum bílsins höfðu pólýhúðað þær og þótti mér það koma sérlega illa út. Ég hélt að þeim væri ekki bjargandi: hörð húð eftir pólýhúðun og ... glimmer. Engin góð „before“ mynd til, en ég leyfi eftirfarandi myndum að segja allt sem segja þarf um niðurstöðuna: ![]() ![]() Þær eru næstum því eins og nýjar. Engin köntun, engar rispur og það besta: OEM liturinn. Shadow chrome sem fæst með því að grunna þær svartar og sprauta svo með mörgum örþunnum lögum af sérstakri silfur málningu. Sezar vann mikið þrekvirki á felgunum, en hann pússaði pólýhúðina niður og lagaði allt sem þurfti að laga. Ómetanleg uppfærsla fyrir bílinn. Ég er nýbúinn að láta laga pústfestingar og var skipt um hluta af þeim. Það var smá skrölt sem fór í taugarnar á mér þegar bíllinn var kaldur og er það alveg horfið. Skipt var um báða ABS skynjarana að aftan og hitaskynjara. Eftir því sem ég best veit og bíllinn hefur aldrei verið þéttari eftir að hann komst í mína eigu. Meira um E39 M5: BMW E39 M5 er ///M útgáfan af E39 5-seríunni. Bíllinn er drifinn áfram á mikið breyttri V8 vél sem byggð var á vélinni sem kom úr 540i. Hefðbundin E39 M5 vél, S62, snýst upp í 7000 snúninga og andskotast áfram á ótrúlegum hraða. Allir E39 M5 komu takmarkaðir í 250 km/h, en á réttum stað og réttum tíma er sagt að þeir fari yfir 300 km/h. Eins og það væri ekki nóg, þá er talað um að bílarnir komist upp frá 0 km/h upp í 100 km/h á undir 4.5 sekúndum. Allir E39 M5 komu með læstu drifi, stærri bremsum, betri fjöðrun og voru bílarnir hannaðir með lækkun loftmótstöðu í huga. Í stuttu máli: Þetta er draumabíll, ótrúlega fjölhæfur. Viltu virðulegan fólksbíl? M5. Viltu þægilegan heimilisbíl? M5. Viltu sportbíl? M5. Viltu bíl með fjölbreyttum aukabúnaði? M5. Þessi bíll hagar sér eins og þér þóknast og er aldrei yfirgengilegur. Vissulega eru 400 hestöfl í vélarhúsinu til þjónustu reiðubúin ef/þegar þér sýnist. Hins vegar er bíllinn í svo góðu jafnvægi að beiting hestaflanna verður alltaf í fullkomnu jafnvægi og ef til þarf að taka er hemlakrafturinn í fullu samræmi við upptaktinn. Bíllinn stöðvast á undraskömmum tíma, 38,6 - 39,2 m frá 100 km hraða eftir hitastigi, meðan t.d. 540 týpan er með 40,1 - 40,4 m í sambærilegri hemlun Sendið mér einkapóst ef þið viljið kanna skiptimöguleika. Er opinn fyrir sanngjörnum skiptum á góðum bílum, en vil vegna persónulegra ástæðna ekki skoða Toyotur. Hef áhuga á 3-seríu, þá sérlega E90. Verð í staðgreiðslu: 2.300.000 kr. Hafið samband við mig hér, í síma 823-2490 eða í gegnum steinidj@gmail.com. - Þorsteinn D. |
Author: | T-bone [ Fri 14. Oct 2011 20:33 ] |
Post subject: | Re: 99' E39 M5 |
virkilega flott auglysing, se þessi serlega fallegi bill verðskuldar. |
Author: | Birgir Sig [ Fri 14. Oct 2011 20:38 ] |
Post subject: | Re: 99' E39 M5 |
ég þekki ENGAN sem hefur selt M5 inn sinn án þess að sjá eftir því,, en afhverju að selja? |
Author: | kalli* [ Fri 14. Oct 2011 20:40 ] |
Post subject: | Re: 99' E39 M5 |
Get vel vottað hvað þetta er soldi bíll og hrikalega vel með farinn, allt annað að sjá hann núna en þegar að ég sast inn í hann í fyrsta skipti. ![]() |
Author: | SteiniDJ [ Fri 14. Oct 2011 21:46 ] |
Post subject: | Re: 99' E39 M5 |
Takk fyrir það strákar. Birgir Sig wrote: ég þekki ENGAN sem hefur selt M5 inn sinn án þess að sjá eftir því,, en afhverju að selja? Ég mun eflaust sjá eftir bílnum. Hef aldrei átt jafn skemmtilegt ökutæki áður, engin spurning um það. Ástæða fyrir sölu er einfaldlega sú að aðstæður hafa breyst hjá mér síðustu mánuði og aðrar pælingar og áherslur að fara eiga sér stað þar sem M5 kemst illa fyrir. |
Author: | gardara [ Fri 14. Oct 2011 21:53 ] |
Post subject: | Re: 99' E39 M5 |
![]() |
Author: | SteiniDJ [ Fri 14. Oct 2011 22:13 ] |
Post subject: | Re: 99' E39 M5 |
gardara wrote: ![]() Er bjórkvöld hjá þér Garðar? ![]() |
Author: | auðun [ Fri 14. Oct 2011 22:14 ] |
Post subject: | Re: 99' E39 M5 |
va hvad mig langar i hann |
Author: | gardara [ Fri 14. Oct 2011 22:24 ] |
Post subject: | Re: 99' E39 M5 |
SteiniDJ wrote: gardara wrote: ![]() Er bjórkvöld hjá þér Garðar? ![]() Neibb, vinna 7:30 í fyrramálið ![]() Þessi setning gaf þetta bara svolítið mikið í skyn Quote: Ástæða fyrir sölu er einfaldlega sú að aðstæður hafa breyst hjá mér síðustu mánuði og aðrar pælingar og áherslur að fara eiga sér stað þar sem M5 kemst illa fyrir.
|
Author: | SteiniDJ [ Sat 15. Oct 2011 13:37 ] |
Post subject: | Re: 99' E39 M5 |
Hehe, ekki svo gott. ![]() |
Author: | Alpina [ Sat 15. Oct 2011 14:38 ] |
Post subject: | Re: 99' E39 M5 |
Hvað á að fá sér .... eitthvað handsmíðað ![]() |
Author: | SteiniDJ [ Sat 15. Oct 2011 14:46 ] |
Post subject: | Re: 99' E39 M5 |
Alpina wrote: Hvað á að fá sér .... eitthvað handsmíðað ![]() Hva, var þessi ekki 753? ![]() En, hver veit?! |
Author: | SteiniDJ [ Sat 15. Oct 2011 15:26 ] |
Post subject: | Re: 99' E39 M5 |
Vil annars benda mönnum á að ég les og íhuga öll þau skilaboð sem þið sendið mér, þó svo að svar berist ekki alveg strax. |
Author: | Daníel Már [ Sat 15. Oct 2011 19:27 ] |
Post subject: | Re: 99' E39 M5 |
Hrikalega fallegur bíll, mínu mati lang flottasti liturinn á m5! |
Author: | SteiniDJ [ Mon 17. Oct 2011 11:10 ] |
Post subject: | Re: 99' E39 M5 |
Takk fyrir. Ég á erfitt með að vera hlutlaus um litinn, en það verður að segjast eins og er að hann er alveg gífurlega, gífurlega fallegur. ![]() |
Page 1 of 2 | All times are UTC |
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group https://www.phpbb.com/ |