bmwkraftur.is https://www.bmwkraftur.is/spjall/ |
|
BMW e36 323i '97 - seldur https://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=10&t=53389 |
Page 1 of 2 |
Author: | HaffiG [ Wed 12. Oct 2011 21:28 ] |
Post subject: | BMW e36 323i '97 - seldur |
BMW e36 323i M52B25 vanos 170 hestöfl skv bókinni en 180 með réttu (+13 hö með M50 manifoldinu) Árgerð 1997 Ekinn 220þús Litur: Dunkelblau Búnaður: - Rafdrifnar rúður að framan - Rafdrifnir speglar - M50 manifold sem gefur honum nokkur auka hestöfl - Svart leður, lýtur vel út! - Filmaður afturí - Tvískipt digital miðstöð - Gírhnúður með ljósi Það sem fyrri eigandi gerði fyrir bílinn: - Demparar að framan, nýir Bilstein B4 demparar. - Nýjar control arm fóðringar að framan - Balancestangar endar að framan endurnýjaðir - Húddpumpur að framan - Rúðuupphalara að aftan Það sem ég er búinn að gera: - M50 manifold - Ný heddpakkning - Nýr sleði og strekkjari fyrir tímakeðju - Nýr stýrisendi - Ný viftureim - Ný vatnsdæla - Nýr vacuum dós/pungur - Smókuð stefnuljós að framan - Ný öndunarmembra Fæðingarvottorðið: ![]() Stel einni mynd frá gunnari af innréttingunni. Lýtur MJÖG vel út að innan. ![]() Myndir síðan í sumar. Ath að hliðarlistarnir eru ekki lengur samlitaðir! ![]() ![]() ![]() Bíllinn brennir olíu, lýsir sér þannig að þegar maður startar kemur smá púst út, svo er hann solid eftir það þegar hann er farinn að hitna. Líklega ventlafóðringar. Hann skilar fullkominni þjöppu. Demparagúmmí léleg, skröltir í ójöfnum. Fæst á 580 þús stg "as it is" og það er FAST Skoða skipti á BMW og volvo Tilboð: 500þús stgr |
Author: | HaffiG [ Thu 13. Oct 2011 21:06 ] |
Post subject: | Re: BMW e36 323i '97 |
Skoða skipti á öllu mögulegu. Síst þó Toyotu.. |
Author: | Tommi Camaro [ Thu 13. Oct 2011 21:54 ] |
Post subject: | Re: BMW e36 323i '97 |
hvað erum við að tala um mikla olíu brennslu |
Author: | HaffiG [ Thu 13. Oct 2011 22:16 ] |
Post subject: | Re: BMW e36 323i '97 |
Hef ekki mælt það nákvæmlega, enda til þess að gera nýbyrjaður á þessu. Kannski ca 1L/1000km ? |
Author: | Axel Jóhann [ Fri 14. Oct 2011 08:05 ] |
Post subject: | Re: BMW e36 323i '97 |
Það er bara m5 brennsla sem er BARA Í LAGI!!! |
Author: | HaffiG [ Fri 14. Oct 2011 10:38 ] |
Post subject: | Re: BMW e36 323i '97 |
Axel Jóhann wrote: Það er bara m5 brennsla sem er BARA Í LAGI!!! Endemis drasl eru þessar vélar þá, haha! |
Author: | Tommi Camaro [ Fri 14. Oct 2011 12:59 ] |
Post subject: | Re: BMW e36 323i '97 |
HaffiG wrote: Hef ekki mælt það nákvæmlega, enda til þess að gera nýbyrjaður á þessu. Kannski ca 1L/1000km ? þessi bíll þarf sem sagt nýjan kjallara/ mótor. og m5 eyðir svo mikil olíu þegar allt er í standi |
Author: | Misdo [ Tue 18. Oct 2011 18:26 ] |
Post subject: | Re: BMW e36 323i '97 |
Var þetta semsagt ekki membran ? þá er þetta mjög líklega ventlafóðringar sem valda þessari brennslu hélt samt að þú hafir verið búinn að selja þennan |
Author: | HaffiG [ Tue 18. Oct 2011 23:51 ] |
Post subject: | Re: BMW e36 323i '97 |
Misdo wrote: Var þetta semsagt ekki membran ? þá er þetta mjög líklega ventlafóðringar sem valda þessari brennslu hélt samt að þú hafir verið búinn að selja þennan Jújú, membran var case-ið í sumar, enda þá mökkreykti hann alveg svakalega ljósum reyk. Þetta er pural BMW veiki, þ.e. ventlafóðringar, stimpilhringir, blokk etc.. Reykir mest í starti og þegar hann er kaldur, svo lítið sem ekkert eftir það. Vel keyrsluhæfur en borgar sig ekki að ræsa hann nema í vel loftræstu rými ![]() |
Author: | Axel Jóhann [ Wed 19. Oct 2011 16:11 ] |
Post subject: | Re: BMW e36 323i '97 |
Þjappan á bílnum er samt alveg eins og hún á að vera þannig að þetta eru líklegast ventlafóðringarnar. |
Author: | HaffiG [ Tue 25. Oct 2011 00:07 ] |
Post subject: | Re: BMW e36 323i '97 |
jæja, ég skoða skipti á öllu mögulegu og ómögulegu. Helst þó BMW að sjálfsögðu. |
Author: | HaffiG [ Sun 30. Oct 2011 17:16 ] |
Post subject: | Re: BMW e36 323i '97 |
upp með þetta! |
Author: | HaffiG [ Sun 30. Oct 2011 21:44 ] |
Post subject: | Re: BMW e36 323i '97 |
Læt hann á 500þ ef hann fer fljótt.. |
Author: | HaffiG [ Wed 02. Nov 2011 23:27 ] |
Post subject: | Re: BMW e36 323i '97 - tilboð: 500þ stgr |
Búinn að finna annan bíl sem ég hef augastað á, svo ég er ekki spenntur fyrir skiptum.. |
Author: | HaffiG [ Thu 03. Nov 2011 20:59 ] |
Post subject: | Re: BMW e36 323i '97 - tilboð: 500þ stgr |
Hvar er allt team be liðið núna? Ef menn eru smeikir við olíubrennsluna, þá skal það tekið fram að ég keyri bílinn slatta á hverjum degi án vandræða, og bíllinn skilar fullu afli, þannig að smá reykur við start er ekkert til að hafa áhyggjur af. ![]() Þess má geta að TB segja að það kosti um 50þ að skipta um ventlafóðringar, svo ef það er case-ið, þá ertu kominn með ryðlaust toppeintak af 323i á 550 þús. Ef hann myndi ekki reykja myndi ég hækka verðið aftur upp í 700 þús. Það er nú ekki langt síðan menn börðust um þessa bíla. Ekki allir 193hp 6cyl bílar sem eyða innan við 11 innanbæjar ![]() |
Page 1 of 2 | All times are UTC |
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group https://www.phpbb.com/ |