bmwkraftur.is
https://www.bmwkraftur.is/spjall/

SELDUR - E46 BMW 330 disel 2002 til sölu
https://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=10&t=53336
Page 1 of 2

Author:  gullikr [ Mon 10. Oct 2011 09:55 ]
Post subject:  SELDUR - E46 BMW 330 disel 2002 til sölu

Fyrir hátt í 4 árum keypti ég minn frábæra bíl. Alltaf jafn æðislegt að keyra hann, þó að gengistryggðalánið hafi verið mjög þungt um tíma. En nú er kominn tími á annan bíl.

BMW 330 e46 Disel sedan árg 2002
Keyrður 177 þús
Með ýmsu dóti: topplúgu, skíðapoka úr skottinu og fram í aftursætin, gardína í afturglugga, rafdrifnar rúður og speglar, mjög stillanleg og þægileg "sport"sæti (ekki leður), innbyggður GSM sími, spól og skriðvörn, cruise control.

Hann eyðir ca. 10 l innanbæjar (ég gæti eflaust haft það minna með öðru aksturslagi, en það er ekkert gaman :) ) en 7 l í langkeyrslu.

Vel með farinn, svampþrifinn og hef ég haft hann í bílskýli eða bílskúr.

Hér er gamla auglýsingin frá því að ég keypti hann af Guðna. viewtopic.php?f=10&t=26161

Ásett verð: 1990 þús. Nú lækkað í 1890 þús.
Möguleiki er á að fá 50% lán með 18 afborgunum (ca. 45-55 þús kr. mánaðargreiðslur)

S: 893-9940

Nýjar myndir á bilasolur.is : http://bilasolur.is/CarDetails.aspx?bid ... &schpage=1

Nokkrar myndir:
Image

Image
Þarna sést smá dæld rétt ofan við grillið. Einhver hefur farið aðeins utan í bílinn og stungið af ... viku eftir að ég lét sprauta allt húddið!

Image

Author:  gullikr [ Mon 10. Oct 2011 14:09 ]
Post subject:  Re: E46 BMW 330 disel sedan 2002 til sölu

Síminn gleymdist : 893-9940

Author:  Djofullinn [ Mon 10. Oct 2011 14:10 ]
Post subject:  Re: E46 BMW 330 disel sedan 2002 til sölu

Kannski fínt að taka fram í hverju lánið stendur í dag og hverjar afborganirnar séu :)

Author:  gullikr [ Mon 10. Oct 2011 14:20 ]
Post subject:  Re: E46 BMW 330 disel sedan 2002 til sölu

Það kemur fram í fyrstu tveimur línunum.

Quote:
Nú er fínt lán á honum hjá Landsbankanum með afborgun 35.500 á mánuði. Nú hvíla á honum rétt tæpa 1,2 millj.

Author:  Djofullinn [ Mon 10. Oct 2011 14:23 ]
Post subject:  Re: E46 BMW 330 disel sedan 2002 til sölu

gullikr wrote:
Það kemur fram í fyrstu tveimur línunum.

Quote:
Nú er fínt lán á honum hjá Landsbankanum með afborgun 35.500 á mánuði. Nú hvíla á honum rétt tæpa 1,2 millj.

Obbosí :oops:

Author:  tolliii [ Mon 10. Oct 2011 20:14 ]
Post subject:  Re: E46 BMW 330 disel sedan 2002 til sölu

Mjög flottur BMW hér á ferð.

Author:  Gudniths [ Tue 11. Oct 2011 00:00 ]
Post subject:  Re: E46 BMW 330 disel sedan 2002 til sölu

Úff væntanlegur kaupandi mun ekki verða fyrir vonbrigðum. Þú Gulli hinsvegar munt verða fyrir vonbrigðum, nema þú sért kannski að fá þér nýrri BMW 8)

æðislegur bíll í alla staði, er raunverulega ennþá að hugsa um hann í dag..

Author:  gullikr [ Tue 11. Oct 2011 08:14 ]
Post subject:  Re: E46 BMW 330 disel sedan 2002 til sölu

Þakka góð orð drengir. Ég mun sjá eftir þessum mjög svo þétta bíl ... og pottþétt hugsa um hann lengi :)

Guðni, hættu að vera thinker og vertu dúer, bjóddu í bílinn :)

Author:  Gudniths [ Tue 11. Oct 2011 13:59 ]
Post subject:  Re: E46 BMW 330 disel sedan 2002 til sölu

gullikr wrote:
Þakka góð orð drengir. Ég mun sjá eftir þessum mjög svo þétta bíl ... og pottþétt hugsa um hann lengi :)

Guðni, hættu að vera thinker og vertu dúer, bjóddu í bílinn :)


would if i could!

Author:  gullikr [ Wed 12. Oct 2011 19:08 ]
Post subject:  Re: E46 BMW 330 disel sedan 2002 til sölu FLEIRI MYNDIR

Komnar fleiri myndir.

Author:  Alpina [ Wed 12. Oct 2011 19:38 ]
Post subject:  Re: E46 BMW 330 disel sedan 2002 til sölu

Djofullinn wrote:
gullikr wrote:
Það kemur fram í fyrstu tveimur línunum.

Quote:
Nú er fínt lán á honum hjá Landsbankanum með afborgun 35.500 á mánuði. Nú hvíla á honum rétt tæpa 1,2 millj.

Obbosí :oops:



Án þess að vita það til hlítar ,, er 2.000.000 verð sem er alveg ok fyrir svona bíl ??

Author:  siggik1 [ Wed 12. Oct 2011 19:43 ]
Post subject:  Re: E46 BMW 330 disel sedan 2002 til sölu

Alpina wrote:
Djofullinn wrote:
gullikr wrote:
Það kemur fram í fyrstu tveimur línunum.

Quote:
Nú er fínt lán á honum hjá Landsbankanum með afborgun 35.500 á mánuði. Nú hvíla á honum rétt tæpa 1,2 millj.

Obbosí :oops:



Án þess að vita það til hlítar ,, er 2.000.000 verð sem er alveg ok fyrir svona bíl ??



virkar svoldið hátt miðað við verð á e90 320, hægt að fá suma á 2.x kúlur, svo er spurning hvað maður vill, kraftur, keyrsla osfr

Author:  gullikr [ Wed 12. Oct 2011 19:45 ]
Post subject:  Re: E46 BMW 330 disel sedan 2002 til sölu FLEIRI MYNDIR

2 millur of mikið. Spurning. Menn verða bara að bjóða.
Miðað við bíla á bilasolur.is sem eru sambærilegir þá er það ekki alveg út í loftið. Á nokkuð ágætu reki miðað við suma bíla þar.

Sjá leitarniðurstöður:
http://bilasolur.is/SearchResults.aspx? ... 7b8fea034c

Author:  gullikr [ Wed 12. Oct 2011 19:47 ]
Post subject:  Re: E46 BMW 330 disel sedan 2002 til sölu

siggik1 wrote:
Alpina wrote:
Djofullinn wrote:
gullikr wrote:
Það kemur fram í fyrstu tveimur línunum.

Quote:
Nú er fínt lán á honum hjá Landsbankanum með afborgun 35.500 á mánuði. Nú hvíla á honum rétt tæpa 1,2 millj.

Obbosí :oops:



Án þess að vita það til hlítar ,, er 2.000.000 verð sem er alveg ok fyrir svona bíl ??



virkar svoldið hátt miðað við verð á e90 320, hægt að fá suma á 2.x kúlur, svo er spurning hvað maður vill, kraftur, keyrsla osfr


320 er langt fá því að vera sami bíll og 330. Svakalegt tog í þessu. Svo eyðir dísel mun minna en bensín.

Author:  gullikr [ Mon 17. Oct 2011 12:48 ]
Post subject:  Re: E46 BMW 330 disel sedan 2002 til sölu FLEIRI MYNDIR

Nýjar myndir á bilasolur.is :

http://bilasolur.is/CarDetails.aspx?bid ... &schpage=1

Page 1 of 2 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/