bmwkraftur.is

BMWKraftur spjallborð
It is currently Mon 05. May 2025 23:40

All times are UTC




Post new topic Reply to topic  [ 8 posts ] 
Author Message
 Post subject: BMW X3 3.0i 2004
PostPosted: Mon 02. Jul 2007 00:35 
Offline
Búðarkerrubílstjóri
User avatar

Joined: Wed 09. Nov 2005 13:57
Posts: 32
Location: Reykjavík
Nú er þessi eiginlega orðinn of lítill fyrir fjölskylduna, svo ég ætla að endurlífga þessa eldgömlu söluauglýsingu og gera alvöru úr því að selja hann í þetta skiptið.

BMW X3 3.0i
Framleiddur 08/2004 og kom á götuna 09/2004 í USA
Ekinn aðeins 68þ km
Blár á litinn (Mystic Blue Metallic)
Mótor er M54B30 231hö (170kW) og 300Nm
Sjálfskiptur, 5 gíra Steptronic
xDrive sítengt aldrif. Stórmagnað kerfi, bíllinn er frábær í snjó og á möl.

Image

Annar helsti búnaður:
ABS hemlar
Aksturstölva (útihiti, meðaleyðsla, meðalhraði, km eftir á tank)
Armpúði með geymsluhólfi
17" Álfelgur, styling 113 með 4 heilsársdekkjum
Prófílbeisli, ekki skráð sem löglegt dráttarbeisli þar sem rafmagnstengillinn er USA týpan.
Fjarstýrðar samlæsingar, tveir lyklar
BMW Business CD, Premium sound system með DSP magnara og 8 hátölurum, tveir subwooferar undir framsætum.
Panoramic Moon Roof, tvöföld tvívirk glertopplúga
Gólfmottur, bæði teppi og gúmmí, sem og gúmmímotta og net í skotti
Hiti í framsætum
Hill descent control
Viðvörunarbúnaður fyrir lofþrýsting í dekkjum
Cruise control
Þokuljós að framan
Ljóst leðuráklæði
Privacy glass, litað gler
6 loftpúðar
Sjálfvirk loftkæling
Rafdrifin framsæti, bílstjórasæti með mjóbaksstuðningi minni
Rafdrifnar rúður
Rafdrifnir speglar
Reyklaust ökutæki
DSC Spólvörn og stöðugleikakerfi
Velti- og vökvastýri
Þakbogar
Þjófavörn (immobilizer, clown nose í baksýnisspegli)
Þjónustubók
Þvottakerfi á aðalljósum
Aurhlífar allan hringinn. Auðvelt að fjarlægja ef menn setja form over function.

Ég keypti bílinn og flutti inn sjálfur frá New Jersey í USA. Þar var hann upphaflega í eigu BMW of North America og notaður sem demo car í 5706 mílur eða þar til BMW dílerinn sem ég keypti hann af eignaðist hann í júlí 2005. Hann kom á götuna hér á Íslandi í október 2005 þá ekinn 10þ km. Ég á Carfax report um bílinn frá því ég keypti hann. Hér heima hefur hann verið þjónustaður samkvæmt aksturstölvu af B&L og svo Eðalbílum frá tilkomu þeirra. Hann fór síðast í Inspection II nú í sumar og það eru ca. 20þ km í næsta Service skv. aksturstölvunni.

Ástand bílsins er heilt yfir gott. Það eina sem ég veit að er að honum er að annar hluti skyggnisins undir topplúgunni er að hluta ekki inni á réttu spori, en þrátt fyrir það opnast það og lokast, sem og glerlúgan sjálf. Þá er eitthvað um hurðaför og rispur í lakkinu á hliðum bílsins og tæring er farin að sjást í álinu í þakbogunum.


Áhvílandi eru 2.05m til 34 mánaða í verðtryggðri krónu frá SP með 62þ í mánaðargreiðslu. Ég veit ekki betur en þetta lán megi yfirtaka.

Ásett verð er í skiptum er 3,0m

Staðgreiðsluverð er 2,5m

Ég er tilbúinn að skoða skipti á ódýrari, stærri og fjölskylduvænni bíl sem eyðir ekki meira en þessi, t.d. einhverjum strumpastrætó. Hugsanlega einhverju öðru ef auðvelt er að selja það aftur.

Áhugasamir geta haft samband hér í PM eða í síma 821 2029.

Kjartan

_________________
E46 325i 2003


Last edited by xdriver on Wed 07. Sep 2011 15:44, edited 4 times in total.

Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Mon 02. Jul 2007 00:47 
Offline
Kassabílstjóri

Joined: Sun 22. Sep 2002 16:11
Posts: 129
Location: Garðabær
Þetta er fallegur bíll, má ég spyrja hvað innanbæjareyðsla er á svona bíl ?


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Mon 02. Jul 2007 01:07 
Offline
Búðarkerrubílstjóri
User avatar

Joined: Wed 09. Nov 2005 13:57
Posts: 32
Location: Reykjavík
zx wrote:
Þetta er fallegur bíll, má ég spyrja hvað innanbæjareyðsla er á svona bíl ?


Takk fyrir.
Í hreinum innanbæjarakstri er hann í svona 16-18 lítrum hjá mér, fer auðvitað mjög eftir þyngd hægri fótarins.

_________________
E46 325i 2003


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Thu 19. Jul 2007 15:52 
Offline
Búðarkerrubílstjóri
User avatar

Joined: Wed 09. Nov 2005 13:57
Posts: 32
Location: Reykjavík
Bíllinn stendur nú á Höfðahöllinni.

Breytti einnig láninu yfir í krónur.

_________________
E46 325i 2003


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Tue 05. Feb 2008 01:11 
Offline
Búðarkerrubílstjóri
User avatar

Joined: Wed 09. Nov 2005 13:57
Posts: 32
Location: Reykjavík
Þessi elska er enn til sölu þó ekki sé ég beinlínis að rembast við að selja hann.

Hann elskar snjóinn!

_________________
E46 325i 2003


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject: Re: BMW X3 3.0i 2004
PostPosted: Wed 07. Sep 2011 15:47 
Offline
Búðarkerrubílstjóri
User avatar

Joined: Wed 09. Nov 2005 13:57
Posts: 32
Location: Reykjavík
Auglýsing uppfærð.
Get ekki hummað það fram af mér lengur að selja þennan og fá mér stærri.

_________________
E46 325i 2003


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject: Re: BMW X3 3.0i 2004
PostPosted: Wed 05. Oct 2011 15:23 
Offline
Búðarkerrubílstjóri

Joined: Fri 01. Jul 2011 17:38
Posts: 44
er þessi seldur?


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject: Re: BMW X3 3.0i 2004
PostPosted: Wed 05. Oct 2011 15:59 
Offline
Búðarkerrubílstjóri
User avatar

Joined: Wed 09. Nov 2005 13:57
Posts: 32
Location: Reykjavík
rhg wrote:
er þessi seldur?


Nei.

_________________
E46 325i 2003


Top
 Profile  
Reply with quote  
Display posts from previous:  Sort by  
Post new topic Reply to topic  [ 8 posts ] 

All times are UTC


Who is online

Users browsing this forum: Google [Bot] and 120 guests


You cannot post new topics in this forum
You cannot reply to topics in this forum
You cannot edit your posts in this forum
You cannot delete your posts in this forum

Search for:
Jump to:  
cron
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group