bmwkraftur.is https://www.bmwkraftur.is/spjall/ |
|
Glæsilegur E36 325i Coupe til sölu - SELDUR - https://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=10&t=52892 |
Page 1 of 3 |
Author: | JOGA [ Mon 12. Sep 2011 12:51 ] |
Post subject: | Glæsilegur E36 325i Coupe til sölu - SELDUR - |
Þar sem þriðja barnið er á leiðinni þarf ég að stækka við mig fjölskyldubílinn. Ég er því með trega að íhuga að láta þennan víkja fyrir nýrri BMW family bíl. Um er að ræða: BMW 325is - Ameríkumódel Ek: 153þ.mílur (245þ.km) SSK Búnaður og ástand: Bíllinn var sprautaður núna í sumar. Meiri hluti bílsins sprautaður og rest (Húdd og stuðarar) mössuð. Bíllinn er því sem næst eins og nýr í útliti. AP Coilover Fjöðrun. Þetta er sambærilegt við KW V1 en smíðað úr ódýrara stáli. Þetta er algjörlega ókeyrt (ca. 300km). Bíllinn keyrir mjög vel og er mjög þéttur og ber þess merki að hafa ekki verið notaður í grimman akstur. Skoðaður '12. Bíllinn er ekki alveg fullkominn,enda að veðra tvítugur. Það sem eftir stendur væri þó auðvelt fyrir áhugamann að laga. Gef upplýsingar um þetta í PM. Verð: Búið er að leggja fleiri hundruð þúsunda í þennan bíl í sumar og verðið tekur mið af því. Mér liggur ekki á og vill að bíllinn fari á gott heimili. Bíllinn fæst á 950 þ.stgr eins og hann stendur með kostum og göllum á 17" Style 32 felgum og nánast ónotuðum Falken dekkjum. Felgurnar voru skverðaðar nýlega. EDIT: Lækkað verð. Fæst á 795 þ.stgr eins og hann stendur. Vandfundinn fallegri E36 á þennan pening ![]() EDIT(II): Enn lægra verð. Fæst á 695 þ.stgr eins og hann stendur. Ath. vél og kassi ekki með í þessu! Fyrir 150þ.stgr í viðbót fæst með annar M50b25 mótor með áföstum gírkassa. Þeim pakka fylgir einnig drifskapt, pedalasett og annað sem til þarf fyrir swap í bsk. Sel þetta ekki stakt nema að bíllinn sé seldur. Að lokum vill ég taka fram að þetta er bíll fyrir áhugamenn. Hef ekki mikinn áhuga á að fá fólk að skoða sem setur út á að það vanti viðvörunarþríhyrninginn í skottið ![]() Upplýsingar í s. 856 5330 eða PM Myndir gera honum ekki nægilega vel skil en hér eru nokkrar: ![]() ![]() BMW Rims by Stefán Freyr | Skyzography, on Flickr ![]() BMW by Stefán Freyr | Skyzography, on Flickr ![]() BMW meeting by Stefán Freyr | Skyzography, on Flickr |
Author: | rockstone [ Mon 12. Sep 2011 17:56 ] |
Post subject: | Re: Glæsilegur E36 325i Coupe til sölu |
Bara nettur ![]() |
Author: | Jón Ragnar [ Tue 13. Sep 2011 11:15 ] |
Post subject: | Re: Glæsilegur E36 325i Coupe til sölu |
Alveg ótrúlega fallegur bíll! Vona að fari á gott heimili þessi ![]() |
Author: | billi90 [ Tue 13. Sep 2011 11:36 ] |
Post subject: | Re: Glæsilegur E36 325i Coupe til sölu |
langar í þessar felgur undir minn! ![]() |
Author: | JOGA [ Thu 15. Sep 2011 19:16 ] |
Post subject: | Re: Glæsilegur E36 325i Coupe til sölu |
Ætla að færa þetta aðeins ofar. |
Author: | gunnar [ Thu 15. Sep 2011 19:49 ] |
Post subject: | Re: Glæsilegur E36 325i Coupe til sölu |
Hef setið í þessum bíl hjá honum JOGA og þetta hefur alveg gríðarlegt potential! Búið að setja hellings vinnu í þennan bíl og fullt af $$$ Fjöðrunin er líka alveg í lagi. Rosalega þægilega stífur miðað við alla þessa lækkun. Ég kannski er ekki marktækur þar sem E30 hjá mér er kannski í stífari kantinum. |
Author: | JOGA [ Mon 19. Sep 2011 11:47 ] |
Post subject: | Re: Glæsilegur E36 325i Coupe til sölu |
Þakka hlý orð frá þeim sem hafa séð bílinn. Alltaf á báðum áttum með þetta en ætla að leyfa þessu að vera uppi eitthvað lengur. |
Author: | JOGA [ Tue 20. Sep 2011 15:44 ] |
Post subject: | Re: Glæsilegur E36 325i Coupe til sölu |
Skoða skipti á einhverjum solid 4dyra bíl á svipuðu verði. ![]() |
Author: | JOGA [ Sat 01. Oct 2011 19:37 ] |
Post subject: | Re: Glæsilegur E36 325i Coupe til sölu |
Get kannski borgað eitthvað smá á milli í góðan fjökskyldubíl. Helst BMW að sjálfsögðu og gjarnan Touring/Station. Hreyfði bílinn aðeins um daginn. Rosa þéttur í akstri. Situr annars stífbónaður inn í skúr og hefur það gott. Vekur mikla athygli. Mun flottari í persónu en á þessum myndum hér að ofan ![]() |
Author: | Alpina [ Sat 01. Oct 2011 19:41 ] |
Post subject: | Re: Glæsilegur E36 325i Coupe til sölu |
Nú hefði verið flott að eiga 328T ![]() |
Author: | JOGA [ Sat 01. Oct 2011 20:07 ] |
Post subject: | Re: Glæsilegur E36 325i Coupe til sölu |
Alpina wrote: Nú hefði verið flott að eiga 328T ![]() Já, já svona er þetta stundum ![]() |
Author: | olinn [ Sat 01. Oct 2011 20:20 ] |
Post subject: | Re: Glæsilegur E36 325i Coupe til sölu |
Langar svoo mikið í þennann, nema á bara civic í skiptum :/ |
Author: | gunnar [ Sat 01. Oct 2011 20:46 ] |
Post subject: | Re: Glæsilegur E36 325i Coupe til sölu |
Jón, þig langar ekkert að setja þennan bara upp í 328iT ? Special jew price for you my friend ![]() Axel tók mig í kúrs í verðlagningu, ![]() |
Author: | JOGA [ Sat 01. Oct 2011 21:02 ] |
Post subject: | Re: Glæsilegur E36 325i Coupe til sölu |
gunnar wrote: Jón, þig langar ekkert að setja þennan bara upp í 328iT ? Special jew price for you my friend ![]() Axel tók mig í kúrs í verðlagningu, ![]() Setjann upp í. Þú ert nú meiri durgurinn ![]() En jú mig langar alveg í Touring aftur ![]() |
Author: | JOGA [ Mon 10. Oct 2011 10:05 ] |
Post subject: | Re: Glæsilegur E36 325i Coupe til sölu |
Skoða að setja bílinn upp í dýrari gegn yfirtöku á láni. Afborgun má ekki vera sérlega há. Ekki mikið yfir ca. 30 þús. Áhugasamur fyrir E39, E46, E60 og E90 einna helst. 4 dyra er skilyrði. |
Page 1 of 3 | All times are UTC |
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group https://www.phpbb.com/ |