Nú er þessi eiginlega orðinn of lítill fyrir fjölskylduna, svo ég ætla að endurlífga þessa eldgömlu söluauglýsingu og gera alvöru úr því að selja hann í þetta skiptið.
BMW X3 3.0i
Framleiddur 08/2004 og kom á götuna 09/2004 í USA
Ekinn aðeins 68þ km
Blár á litinn (Mystic Blue Metallic)
Mótor er M54B30 231hö (170kW) og 300Nm
Sjálfskiptur, 5 gíra Steptronic
xDrive sítengt aldrif. Stórmagnað kerfi, bíllinn er frábær í snjó og á möl.

Annar helsti búnaður:
ABS hemlar
Aksturstölva (útihiti, meðaleyðsla, meðalhraði, km eftir á tank)
Armpúði með geymsluhólfi
17" Álfelgur, styling 113 með 4 heilsársdekkjum
Prófílbeisli, ekki skráð sem löglegt dráttarbeisli þar sem rafmagnstengillinn er USA týpan.
Fjarstýrðar samlæsingar, tveir lyklar
BMW Business CD, Premium sound system með DSP magnara og 8 hátölurum, tveir subwooferar undir framsætum.
Panoramic Moon Roof, tvöföld tvívirk glertopplúga
Gólfmottur, bæði teppi og gúmmí, sem og gúmmímotta og net í skotti
Hiti í framsætum
Hill descent control
Viðvörunarbúnaður fyrir lofþrýsting í dekkjum
Cruise control
Þokuljós að framan
Ljóst leðuráklæði
Privacy glass, litað gler
6 loftpúðar
Sjálfvirk loftkæling
Rafdrifin framsæti, bílstjórasæti með mjóbaksstuðningi minni
Rafdrifnar rúður
Rafdrifnir speglar
Reyklaust ökutæki
DSC Spólvörn og stöðugleikakerfi
Velti- og vökvastýri
Þakbogar
Þjófavörn (immobilizer, clown nose í baksýnisspegli)
Þjónustubók
Þvottakerfi á aðalljósum
Aurhlífar allan hringinn. Auðvelt að fjarlægja ef menn setja form over function.
Ég keypti bílinn og flutti inn sjálfur frá New Jersey í USA. Þar var hann upphaflega í eigu BMW of North America og notaður sem demo car í 5706 mílur eða þar til BMW dílerinn sem ég keypti hann af eignaðist hann í júlí 2005. Hann kom á götuna hér á Íslandi í október 2005 þá ekinn 10þ km. Ég á Carfax report um bílinn frá því ég keypti hann. Hér heima hefur hann verið þjónustaður samkvæmt aksturstölvu af B&L og svo Eðalbílum frá tilkomu þeirra. Hann fór síðast í Inspection II nú í sumar og það eru ca. 20þ km í næsta Service skv. aksturstölvunni.
Ástand bílsins er heilt yfir gott. Það eina sem ég veit að er að honum er að annar hluti skyggnisins undir topplúgunni er að hluta ekki inni á réttu spori, en þrátt fyrir það opnast það og lokast, sem og glerlúgan sjálf. Þá er eitthvað um hurðaför og rispur í lakkinu á hliðum bílsins og tæring er farin að sjást í álinu í þakbogunum.
Áhvílandi eru 2.05m til 34 mánaða í verðtryggðri krónu frá SP með 62þ í mánaðargreiðslu. Ég veit ekki betur en þetta lán megi yfirtaka.
Ásett verð er í skiptum er 3,0mStaðgreiðsluverð er 2,5mÉg er tilbúinn að skoða skipti á ódýrari, stærri og fjölskylduvænni bíl sem eyðir ekki meira en þessi, t.d. einhverjum strumpastrætó. Hugsanlega einhverju öðru ef auðvelt er að selja það aftur.
Áhugasamir geta haft samband hér í PM eða í síma 821 2029.
Kjartan