bmwkraftur.is https://www.bmwkraftur.is/spjall/ |
|
!! BMW318i 1996árg til sölu !! - seldur https://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=10&t=52072 |
Page 1 of 1 |
Author: | CNS [ Tue 19. Jul 2011 00:34 ] |
Post subject: | !! BMW318i 1996árg til sölu !! - seldur |
Er með BMW318i ´96 árgerð sem þarfnast viðhalds. Sjálfskiptur Ekinn 217þús vínrauður 4 vetrardekk á 15" dekkjum undir honum eins og er - nýleg. 4 sumardekk á 16" á vel notuðum álfelgum fylgja með. Einn eigandi síðustu 5 ár ![]() Þetta er vel með farinn bíll og lítur nokkuð vel út - nokkrir ryðblettir þó sem mætti pússa upp og bletta í. Að innan er hann mjög vel með farinn - ekkert slit á sætum t.d. Það sem nýlega hefur verið gert fyrir hann er að allar bremsur hafa verið teknar í gegn - klossar og diskar fyrir ca 4000 km, og dælur og handbremsa nú í lok mars. Það er ný bensíndæla í bílnum, eða síðan um áramót. Hann er ný kominn úr smurningu. Það sem er að angra hann er að hann brennir kertum (einu aðallega) mjög hratt - sem þarf að laga, og svo er kominn tími á viftureimarskipti. Einnig er rúðan bílstjóramegin áttavillt og á erfitt með að fara upp aftur. Læsingin bílstjóramegin á líka eitthvað erfitt, og það er ekki hægt að opna bílinn þeim megin, en hægt að læsa, og samlæsingarnar virka. Hef alltaf bara verið með einn lykil (varalykilinn) - fyrri eigandi týndi hinum. Ég á myndir - þarf bara að fatta hvernig ég set þær inn - þangað til sendi ég þær með glöðu geði í maili, sé þess óskað ![]() Óska eftir tilboðum ![]() Anna - 8673482 |
Page 1 of 1 | All times are UTC |
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group https://www.phpbb.com/ |