bmwkraftur.is
https://www.bmwkraftur.is/spjall/

Bmw e39 523ia shadowline - SELDUR
https://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=10&t=48865
Page 1 of 2

Author:  Skúli [ Wed 05. Jan 2011 22:44 ]
Post subject:  Bmw e39 523ia shadowline - SELDUR

Ætla að kanna áhugann á þessum.

Um ræðir Bmw e39 523ia

Árgerð 1996
Keyrður 240þ km.
Svartur
m52b25 vanos, 6cyl 182 hp
Sjálfskiptur, 2,3,S,D,N,R,P

Nánari upplýsingar:
-Facelift framljós úr 2002 árgerð með angel eyes og OEM 6000k Xenon. Ný mössuð og fín.
-Kastarar
-Viðarlistar
-Fjarstýrðar samlæsingar
-Bmw business cd og góðir hátalarar
-Rafmagn í rúðum frammí og speglum
-Rafmagns gardína í afturglugga
-Dökk tausæti, farið að sjá á bílstjórasæti
-Abs
-Spólvörn
-Bmw styling 61 felgur á nýlegum Cooper dekkjum
-Tvískipt digital miðstöð, svínvirkar
-Glænýtt sérmíðað opið púst, mjög flott hljóð

Ástand:
-Lakk þokkalegt
-Allt nýtt í hjólabúnaði að framan, fyrir utan spindilkúlu h/m
-Ný stýrismaskína
-Nýlegt í bremsum hringinn
-Ný smursía
-Sjálfskipting nýlega tekin upp
-Glæný 4 póla Platinium kerti af dýrustu gerð
-Mótor brennir olíu, algengur galli í m52b25 sem voru framleiddir fyrir '99, en virkar fínt.
-Ekki tjónabíll og góður eigendaferill
-Búinn að sprauta allt króm svart og einnig rúðuþurrkuarma sem voru byrjaðir að flagna
-Sprunga í framrúðu sem er nottulega bara tryggingamál, getur vel verið að ég verði búinn að græja nýja framrúðu í fyrir sölu.

Skoðaður 11

Video af hljóðinu í bílnum:

Myndir:

Image

Image

Image

Image

Verð í skiptum 800þ en 500þ staðgreitt!

Skoða skipti á flest öllu...slétt, ódýrara en ekki mikið dýrara. Mjög hrifinn af þýskum bílum, sparneytnum bílum, mótorhjólum og öllu sem inniheldur túrbínu. Bara senda mér PM um það sem þið eruð með eða hringja í síma 865-6979. Nafnið er Skúli.

Get líka sett Hondu crf 250r 2008 með uppí dýrari, hér er hægt að sjá allt um hjólið: http://www.live2cruize.com/spjall/sh...t-e%F0a-450-4t

Bílinn er staðsettur í Reykjavík og hægt að skoða hvenær sem er.

Author:  omaramg [ Sun 09. Jan 2011 01:36 ]
Post subject:  Re: Bmw e39 523ia shadowline - skoða öll skipti

Skoða skipti á e30 325 og e46 318, 320, 325, 330

Author:  íbbi_ [ Sun 09. Jan 2011 15:33 ]
Post subject:  Re: Bmw e39 523ia shadowline - skoða öll skipti

gott verð!

Author:  Angelic0- [ Sun 09. Jan 2011 15:40 ]
Post subject:  Re: Bmw e39 523ia shadowline - skoða öll skipti

er búið að fara eitthvað í mótorinn á honum síðan að Ingó átti hann ???

Author:  Skúli [ Tue 11. Jan 2011 17:42 ]
Post subject:  Re: Bmw e39 523ia shadowline - skoða öll skipti

Angelic0- wrote:
er búið að fara eitthvað í mótorinn á honum síðan að Ingó átti hann ???


Búið að setja ný 4 póla platinium kerti í hann, annars ekkert. Hann er mjög líklega að draga einhverja olíu meðfram ventlaþéttingum.

Hæsta boð 420þ stgr...býður einhver betur?

Author:  Skúli [ Wed 12. Jan 2011 20:40 ]
Post subject:  Re: Bmw e39 523ia shadowline - skoða öll skipti

Það er komið á hreint að það þarf að skipta um ventlaþéttingar í honum. Fæst á 420þ!!!

Author:  Angelic0- [ Wed 12. Jan 2011 20:49 ]
Post subject:  Re: Bmw e39 523ia shadowline - skoða öll skipti

Skúli wrote:
Það er komið á hreint að það þarf að skipta um ventlaþéttingar í honum. Fæst á 420þ!!!


Er s.s. búið að opna mótor og kanna hvort að hringir séu þéttir :?:

Author:  GunniT [ Wed 12. Jan 2011 20:58 ]
Post subject:  Re: Bmw e39 523ia shadowline - skoða öll skipti

Skúli wrote:
Það er komið á hreint að það þarf að skipta um ventlaþéttingar í honum. Fæst á 420þ!!!


Hvernig komstu að því??

Author:  Skúli [ Wed 12. Jan 2011 21:23 ]
Post subject:  Re: Bmw e39 523ia shadowline - skoða öll skipti ... fæst á 4

Það er búið að þjöppumæla hann og lesa af honum. Hann fór bæði í TB í skoðun og svo var hann inná einhverju verkstæði áðan þar sem þeir lásu af honum og pældu mikið í þessu.

Author:  Haffmann [ Thu 13. Jan 2011 19:53 ]
Post subject:  Re: Bmw e39 523ia shadowline - skoða öll skipti ... fæst á 4

veist allavega á corollunni.... hehe

Author:  Skúli [ Thu 13. Jan 2011 22:44 ]
Post subject:  Re: Bmw e39 523ia shadowline - skoða öll skipti ... fæst á 4

Haffmann wrote:
veist allavega á corollunni.... hehe


Hehe já ég veit af henni. Er svona aðeins að fara yfir öll skipti tilboðin sem ég er búinn að fá í bílinn því þau eru ansi mörg.

Við nánari skoðun í dag þá komst ég að því að ef ég tók 2 ákveðin háspennukefli úr sambandi, þá breyttist gangurinn ekkert. Ég fékk mér 2 ný háspennukefli og setti í, en þá gekk hann bara á 5 cylendrum sem segir mér það að hann þjappar ekki nægilega á þessum eina cylender til að ná að kveikja. Það gefur í skyn að það sé mjög líklega brunninn ventill eða mjög ílla farin þétting. Það væri mjög sniðugt að redda sér bara headdi af svona mótor sem ætti ekki að vera dýrara en 15-20þ kall og skipta um, ef menn ætla útí það að laga þetta.

Bíllinn fæst á 420þ stgr eða í skiptum á ýmislegu

Author:  ///MR HUNG [ Thu 13. Jan 2011 22:53 ]
Post subject:  Re: Bmw e39 523ia shadowline - skoða öll skipti ... fæst á 4

Hvar færð þú svona hedd á 15-20 þúsund?

Author:  Skúli [ Fri 14. Jan 2011 01:33 ]
Post subject:  Re: Bmw e39 523ia shadowline - skoða öll skipti ... fæst á 4

///MR HUNG wrote:
Hvar færð þú svona hedd á 15-20 þúsund?


Búinn að finna eitt á 20þ

Author:  Bandit79 [ Fri 14. Jan 2011 03:39 ]
Post subject:  Re: Bmw e39 523ia shadowline - skoða öll skipti ... fæst á 4

rosalega gott verð!! þó að það þurfi kannski að skipta um heddið. :thup:

Ef maður nú væri á klakanum og ætti pening þá væri ég búinn að kaupa þennann!

Gangi þér vel með söluna :thup:

Author:  Angelic0- [ Sat 15. Jan 2011 00:00 ]
Post subject:  Re: Bmw e39 523ia shadowline - skoða öll skipti ... fæst á 4

Skúli wrote:
///MR HUNG wrote:
Hvar færð þú svona hedd á 15-20 þúsund?


Búinn að finna eitt á 20þ


Það getur ekki verið gott hedd :!:

Skúli wrote:
Við nánari skoðun í dag þá komst ég að því að ef ég tók 2 ákveðin háspennukefli úr sambandi, þá breyttist gangurinn ekkert. Ég fékk mér 2 ný háspennukefli og setti í, en þá gekk hann bara á 5 cylendrum sem segir mér það að hann þjappar ekki nægilega á þessum eina cylender til að ná að kveikja. Það gefur í skyn að það sé mjög líklega brunninn ventill eða mjög ílla farin þétting. Það væri mjög sniðugt að redda sér bara headdi af svona mótor sem ætti ekki að vera dýrara en 15-20þ kall og skipta um, ef menn ætla útí það að laga þetta.

Bíllinn fæst á 420þ stgr eða í skiptum á ýmislegu


Mér finnst þetta frekar benda til þess að það séu farnir hringir.... óþéttar ventlaþéttingar lýsa sér frekar þannig að það er reykur fyrst þegar að þú setur í gang en hverfur svo á fyrstu 30sek...

M.v. að þessi bíll seldist á 120-150þús fyrir c.a. ári síðan, og ekkert hefur gerst síðan þá nema þessi facelift framljós finnst mér verðið vera í hærra lagi... no offence...

Page 1 of 2 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/