bmwkraftur.is
https://www.bmwkraftur.is/spjall/

E39 523iA
https://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=10&t=47649
Page 1 of 3

Author:  Einari [ Tue 19. Oct 2010 21:51 ]
Post subject:  E39 523iA

BMW E39 523iA
Árgerð: 1997
Litur: Grænn
Aflgjafi: Bensín
6 cyl - 2500cc - 170 hestöfl -
Skipting: Sjálfskipting
Ekinn 235xxx km.

Búnaður:

Topplúga, facelift fram og afturljós, geislaspilari, digital tvískipt miðstöð, loftkæling, leðursæti, hiti í sætum, rafmagn í rúðum frammí.

Ástand er nokkuð gott, smá dæld er á hægra frambretti.
Á þeim tveimur á hálfu ári sem ég er búinn að eiga bílinn er ég búinn skipta um eftirfarandi:
vökva og síu á skiptingunni og pakkdósina aftur úr henni,
vökva á drifinu,
ballanstangargúmmí að aftan,
báðar"brakfóðringarnar",
ballanstangarenda hægramegin að framan,
báðar hjólalegurnar að framan,
allt í bremsum að aftan,
allar bremsuslöngur,
kerti,
vatnsdælu,
viftureim,
hjólin á viftureimarstrekkjaranum og a/c pressu strekkjaranum og stuðningshjólið fyrir viftureimina.
Nýr vatnskassi og kælivökvi.
Nýupptekinn alternator, skipt um legur, díóðubrú, kol og sleituhringi.


Bíllinn er með M50 manifoldi svo að hann er eitthvað sprækari á efri hluta snúningssviðsins, og svo er hann með dráttarkúlu sem er hægt að taka af með einu handtaki.
Bíllinn er á 16" original E39 álfelgum og sumardekkjum sem voru keypt um mitt sumar.

Ásett verð 690 þús skoða öll skipti á ódýrari.

einar(hjá)fristundabyggd.is
Sími: 866-4683
eða PM

Einar

bíllinn er staðsettur í höfuðstað norðurlands, Akureyri

Image

húddið var samt óvart ekki alveg lokað þegar ég tók myndina :oops:

Author:  Einari [ Thu 28. Oct 2010 22:15 ]
Post subject:  Re: E39 523iA

þessi er enn óseldur

Author:  íbbi_ [ Fri 29. Oct 2010 11:22 ]
Post subject:  Re: E39 523iA

áttu mynd af þessum?

Author:  Danni [ Fri 29. Oct 2010 14:58 ]
Post subject:  Re: E39 523iA

Svakalega eru E39 orðnir ódýrir! :argh:

Author:  Einari [ Sun 07. Nov 2010 20:22 ]
Post subject:  Re: E39 523iA

þessi er enn óseldur :)

Author:  Alpina [ Sun 07. Nov 2010 20:26 ]
Post subject:  Re: E39 523iA

Mynd af bílnum innann sem utann myndi án vafa geta flýtt fyrir sölu

Author:  Orri Þorkell [ Tue 09. Nov 2010 23:15 ]
Post subject:  Re: E39 523iA

komdu með myndir, eða link á myndir sem virkar :thup:

Author:  Papa.V [ Tue 09. Nov 2010 23:23 ]
Post subject:  Re: E39 523iA

Image

Author:  thisman [ Tue 09. Nov 2010 23:29 ]
Post subject:  Re: E39 523iA

Birtist ekki hjá mér nema ég fari beint á slóðina - kannski að krafturinn birti ekki myndir í þessari stærð: http://b.imagehost.org/0344/SL371061.jpg

Author:  Orri Þorkell [ Wed 10. Nov 2010 00:13 ]
Post subject:  Re: E39 523iA

ok flottur litur, hvað er hann að eyða hjá þér?

Author:  Vlad [ Wed 10. Nov 2010 00:23 ]
Post subject:  Re: E39 523iA

Pappas 730i wrote:
ok flottur litur, hvað er hann að eyða hjá þér?


7-9 líklega utanbæjar og 12-14 innanbæjar myndi ég giska.

Author:  Einari [ Wed 10. Nov 2010 22:59 ]
Post subject:  Re: E39 523iA

Pappas 730i wrote:
ok flottur litur, hvað er hann að eyða hjá þér?


hann er oftast á milli 10 og 12 hjá mér í blönduðum akstri, innanbæjarsnatti og langkeyrslu, hefur samt farið niður í 7,9 einusinni hjá mér þegar ég keyrði heilan tank í langkeyrslu.

Author:  Haffer [ Fri 12. Nov 2010 20:27 ]
Post subject:  Re: E39 523iA

sæll, ertu nokkud til i skipit? og pening a milli?

er med Toyota Carina E xli 1.8 '97
Ekinn 218.xxx
Ssk/Bsk - Beinskiftur.
Skodadur 2011 án athugasemda.
Ny buin ad skipta um timareim, pust, vatnsdælu og spindilkúlu.
Er med filmadu rúdur afteri.
Rafstyrd speyglar og rúdur.

Aukahlutir: 205/55 R16 sumardekk á álfelgum og splúnku ný heilsársdekk á stálfelgum.
Er med goda hátalara og gott Panasonic geislaspilari 4x50 wött

og 200.000 cash! hehe

Haffi Danski
gsm 8987843
don_haffes@hotmail.com

ath. gömul mynd get sendt nýja/betri mynd a honum ef thu vill (:

Image

Author:  Einari [ Tue 23. Nov 2010 18:31 ]
Post subject:  Re: E39 523iA

Enn óseldur :)

Author:  Chefhalli [ Thu 02. Dec 2010 11:27 ]
Post subject:  Re: E39 523iA

Sæll er áhugi á Polaris Pro X 600 árg. 2004 í algjöru eðalástandi?
http://www.facebook.com/photo.php?fbid= ... .536582342

Page 1 of 3 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/