bmwkraftur.is https://www.bmwkraftur.is/spjall/ |
|
2001 E46 320ci - Hlé á sölu https://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=10&t=44790 |
Page 1 of 1 |
Author: | SteiniDJ [ Sun 16. May 2010 00:35 ] |
Post subject: | 2001 E46 320ci - Hlé á sölu |
BMW 320ci 2001 Cosmos Schwarz Metallic Aflgjafi: Bensín 1991cc - 148 hestöfl - 190 @ 3500 Skipting: Beinskipting Ekinn 102.000 km. Búnaður:
Og eitthvað sem ég er sennilegast að gleyma Ástand: Bíllinn er í góðu ástandi. Nýbúið að sprauta skottlok, afturstuðara, sílsa og einnig er nýr M3 stuðari (þó ekki OEM). Bíllinn fer aftur í sprautuklefann í næstu viku og þá verður húddið og frambrettin sprautuð. Það mætti massa bílinn, svolítið swirlaður á vissum stöðum. Hann hefur verið bónaður með Dodo Juice og ég hef alltaf notað aðferðir til að koma í veg fyrir rispur við þvott. Það gerir víst lítið gagn þegar bíllinn er swirlaður nú þegar. ![]() Ég hef alltaf ráðist í allt viðhald um leið og þess gerist þörf. Það helsta á listanum er að skipt var um drif fyrir ca. 6000km og var þá fengið drif úr 325ci (að ég held, gæti hafa verið 323ci, ekki viss) og hlutfallið á því er 3.38. Vandamálin sem hrjá hann eins og er eru fá. Stefnuljósin að aftan eru leiðinleg en ætti ekki að vera erfitt að laga það. Sumar perurnar eru óvirkar og ég er ansi viss að það þurfi að lóða viðeigandi vír betur. Þarf að skipta um þokuljósaperu. Það verður ráðist á þetta á næstu dögum og bíllinn er að auki á leið í skoðun. Frekari upplýsingar: Ég hef átt bílinn í tvö ár og á þeim tíma hef ég verið að bæta við hann. Hér er hluti af þeim breytingum:
Undir bílnum eru 18" AC Schnitzer sem fara honum ansi vel. Hugsa að þetta séu replicur, en þori ekki að fara með það. ![]() ![]() ![]() ![]() Athugið að myndirnar eru misgamlar og endurspegla ekki alltaf núverandi útlit bílsins Er ekki mjög heitur fyrir skiptum, en hef áhuga á 545i og M5. Ykkur er þó að sjálfsögðu velkomið að hafa samband ef þið hafið eitthvað sérstakt/sambærilegt í huga en vil benda á að öfgalánadílar eru ekki á kortinu. Verð: 1.800.000 kr. Ekkert áhvílandi. Hafið samband við mig í síma 823-2490, á kraftinum eða í gegnum steinidj@gmail.com. - SteiniDJ |
Author: | GPE [ Sun 16. May 2010 07:22 ] |
Post subject: | Re: 2001 E46 320ci |
Ótrúlega flottur e46 hjá þér Steini , gangi þér vel með söluna og vonandi fer hann í góðar hendur ![]() |
Author: | bubbim3 [ Sun 16. May 2010 13:35 ] |
Post subject: | Re: 2001 E46 320ci |
gamli minn. litur mjög vel út hjá þér ![]() |
Author: | SteiniDJ [ Sun 16. May 2010 21:43 ] |
Post subject: | Re: 2001 E46 320ci |
Þakka ykkur fyrir. ![]() Bubbi, hvenær áttir þú þennan? ![]() |
Author: | Tommi91 [ Mon 17. May 2010 00:19 ] |
Post subject: | Re: 2001 E46 320ci |
En vá ég verð að segja að þessi bíll er geðveikt flottur ég fíla svona 2 dyra bmw með body-ið e46 |
Author: | SteiniDJ [ Mon 17. May 2010 02:51 ] |
Post subject: | Re: 2001 E46 320ci |
Takk. ![]() |
Author: | bubbim3 [ Mon 17. May 2010 10:53 ] |
Post subject: | Re: 2001 E46 320ci |
ég atti þennan 2002 til 2003 þá ek 30þ skemtilegur bill gaman að sjá hvað er buið að fara vel með hann |
Author: | SteiniDJ [ Tue 18. May 2010 17:23 ] |
Post subject: | Re: 2001 E46 320ci |
bubbim3 wrote: ég atti þennan 2002 til 2003 þá ek 30þ skemtilegur bill gaman að sjá hvað er buið að fara vel með hann Takk fyrir. ![]() Annars var bíllinn að koma úr smurningu, fer í sprautun um helgina. |
Author: | kalli* [ Tue 18. May 2010 22:01 ] |
Post subject: | Re: 2001 E46 320ci |
Ekkert nema geðveikt að vera í þessum ![]() |
Author: | batti [ Wed 19. May 2010 12:18 ] |
Post subject: | Re: 2001 E46 320ci |
Núna spyr ég og er ekki að reyna að vera með nein leiðindi. Hvað útskýrir lítinn verðmun á þessum bíl og svo 330ci bíl sömu árgerðar sem auglýstur er hérna líka á 1990þús, sem gerir 190þús kr mun á ásettu verði. Sá bíll er með leðri sem ég get ekki séð að sé í þessum, ekinn 22þús minna, harman kardon og þetta margumtalaða hugtak umboðsbíll. Jú, þessi hefur Mtech og AC felgur sem eru ekki orginal og virðist mörgum þykja það sem ekki er OEM vera lítils virði. Verðumræður verða oft/yfirleitt algjört rugl en sjálfsagt að skapa umræður um þetta í þeirri trú að menn geti rætt þetta málefnalega án þess að hrökkva í vörn og "apeshitta" á allt og alla sem dirfast að setja út á verðlagninguna sína þar sem seljandi að sjálfsögðu ákveður sjálfur. |
Author: | bErio [ Wed 19. May 2010 12:22 ] |
Post subject: | Re: 2001 E46 320ci |
Þetta er auðvitað verð sem að hann gefur upp og er alltaf hægt að deala um eða vera óánægður með Þessi 330 var greinilega á tombóluprís eða þá þessi með stóra verðmiðanum ![]() |
Author: | SteiniDJ [ Wed 19. May 2010 15:02 ] |
Post subject: | Re: 2001 E46 320ci |
batti wrote: Núna spyr ég og er ekki að reyna að vera með nein leiðindi. Hvað útskýrir lítinn verðmun á þessum bíl og svo 330ci bíl sömu árgerðar sem auglýstur er hérna líka á 1990þús, sem gerir 190þús kr mun á ásettu verði. Sá bíll er með leðri sem ég get ekki séð að sé í þessum, ekinn 22þús minna, harman kardon og þetta margumtalaða hugtak umboðsbíll. Jú, þessi hefur Mtech og AC felgur sem eru ekki orginal og virðist mörgum þykja það sem ekki er OEM vera lítils virði. Verðumræður verða oft/yfirleitt algjört rugl en sjálfsagt að skapa umræður um þetta í þeirri trú að menn geti rætt þetta málefnalega án þess að hrökkva í vörn og "apeshitta" á allt og alla sem dirfast að setja út á verðlagninguna sína þar sem seljandi að sjálfsögðu ákveður sjálfur. Ekkert mál, þér er hjartanlega velkomið að spyrja. Það sem ég vil segja um þessa verðlagningu er að þetta er ásett verð, ekki einhver óumsemjanleg tala sem allir eiga að vera hræddir við. Ef einhver hefur áhuga á bílnum, þá býst ég fullvel við því að viðkomandi hafi samband og geri mér tilboð. Þessi blái er virkilega fallegur. Ég skoðaði hann á sínum tíma og prufukeyrði og ég ætla ekki að hallmæla honum. Þó vil ég taka fram að þessi sem ég er með til sölu er líka umboðsbíll, ekki það að það breyti einhverju - bíllinn löngu kominn úr ábyrgð. Þar að auki finnst mér svolítið rangt hjá þér að segja að non-OEM vörur séu lítils virði, þó svo að verðmunurinn þar á milli geti verið ansi mikill. Annars er ég búinn að gera talsvert mikið við bílinn síðan ég eignaðist hann og get með góðri samvisku sagt að ég sé að selja hann frá mér í betra ástandi en ég fékk hann í. ![]() En eins og ég segi, þetta verð er umsemjanlegt og bið ég áhugasama um að hafa samband við mig í PM, í gegnum tölvupóst eða í gegnum síma. Ef þú hefur frekari spurningar um þetta mál, þá er þér velkomið að hafa samband við mig. ![]() - Ætla að taka hann af sölu þar til annað verður ákveðið. Áhugasamir geta þó alltaf rætt við mig. ![]() |
Page 1 of 1 | All times are UTC |
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group https://www.phpbb.com/ |