bmwkraftur.is
https://www.bmwkraftur.is/spjall/

Bmw e34 535... SELDUR!
https://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=10&t=43010
Page 1 of 1

Author:  Skafti [ Sun 14. Feb 2010 18:39 ]
Post subject:  Bmw e34 535... SELDUR!

Á þennan ekki sjálfur.. Eigandinn var bara í basli með að koma auglýsinguni inn og bað mig að setja hana fyrir sig inn. Svara engu í ep. Allar upplýsingar í síma: 8475677

þessi er aftur til sölu. er búinn að eiga hann stutt en verð því miður að losna við hann. fæ að stela auglisinguni frá fyrrverandi eiganda

Til sölu BMW 535i

Kom af færibandinu 07.03.1990
Diamantschwarz Metallic að utan (svartur) og dökkgrár að innan.
Beinskiptur.
Ekinn 278þkm, innfluttur '04 þá ekinn 237þkm
Skoðaður '10

Bíllinn er á ágætis vetrardekkjum og álfelgum.
Topplúga, rafstýrð
Skíðapoki
Sportsæti fyrir ökumann og farþega með armpúðum. Bara töff innrétting, tau sportsæti.
Hiti í sætum fyrir ökumann og farþega
Höfðupúðar að aftan

Staðalbúnaður í 535i er nokkur ABS, stór aksturstölva, kortaljós og rafmagn í öllum rúðum, náttúrlega check control og BMW SoundSystem o.fl.
Hella Dark að aftan en ljósið vm er aðeins brotið. Mögulega hægt að dekkja venjulegt ljós og fá rétta litinn.
Virkilega gott boddy, nánast ryðlaus og lakkið gott. e34 sem hafa verið á Íslandi lengi eru margir orðnir ansi ljótir af ryði.
Hitinn í sætinu farþegamegin er eitthvað leiðinlegur en með bílnum kemur nýr hitaþráður.
Í bílnum er svartur Blaupunkt spilari með amber lýsingu, virkilega huggulegt í BMW.

Ný heddpakkning er í bílnum og heddið sem fór á bílinn er ekið 170þkm. Leit allt mjög vel út. Held samt að heddið sem var á honum hafi verið í góðu lagi, átti hitt bara til planað og yfirfarið.
Olíuljósið hverfur hratt og örugglega

Aftari hlutinn í pústinu er nýr! Pústupphengjur nýjar.
Diskar og klossar framan/aftan mjög nýlegir.
Ný drifskaftsupphengja.

Það er komið læst drif í bílinn

Verð 400þús
Ekkert áhvílandi, bara bein sala.
Upplýsingar í S: 8475677


mydnir koma annað kvöld

Author:  Bartek [ Sun 14. Feb 2010 19:52 ]
Post subject:  Re: Bmw e34 535

þessi??
Image
Image

Author:  birkire [ Sun 14. Feb 2010 20:01 ]
Post subject:  Re: Bmw e34 535


Author:  Skafti [ Sun 14. Feb 2010 22:12 ]
Post subject:  Re: Bmw e34 535

Þessi er seldur ;)

Author:  Alpina [ Mon 15. Feb 2010 01:08 ]
Post subject:  Re: Bmw e34 535

Skafti wrote:
Þessi er seldur ;)

:shock:

Author:  Bjarki [ Mon 15. Feb 2010 11:03 ]
Post subject:  Re: Bmw e34 535... SELDUR!

virkilega góður bíll og komið læst drif í hann....
og ekki tók langan tíma að selja bílinn!!!! engu líkt

Author:  Bartek [ Mon 15. Feb 2010 12:12 ]
Post subject:  Re: Bmw e34 535... SELDUR!

já enn hver á honum núna??

Author:  EggertD [ Mon 15. Feb 2010 13:04 ]
Post subject:  Re: Bmw e34 535... SELDUR!

Bartek wrote:
já enn hver á honum núna??



:angel:

Page 1 of 1 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/