bmwkraftur.is
https://www.bmwkraftur.is/spjall/

Til sölu BMW 735ia E38 - Seldur
https://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=10&t=41819
Page 1 of 1

Author:  Ingsie [ Thu 17. Dec 2009 15:10 ]
Post subject:  Til sölu BMW 735ia E38 - Seldur

Vil byrja á því að taka það fram að ég á EKKERT í þessum bíl, var bara beðin um að auglýsa hann hér

Til sölu er BMW 735ia E38

  • Árgerð 1998
  • Ekinn 249.000 km
  • Sjálfskiptur
  • 3.5L V8
  • 237 hö

Þessi bíll var tekinn uppí skuld og þess vegna veit ég ekkert um bílinn, ég veit ekki hvað er staðalbúnaður og hvað er aukabúnaður, en ég ætla bara að telja upp allt sem ég man að er í bílnum:

  • Sjónvarp ( hægt að horfa á opnar rásir, og einnig hægt að setja GPS disk í )
  • Geisladiska magasín
  • Tvískipt digital miðstöð
  • Rafmagn í öllum rúðum
  • Sími á milli sætana
  • Rafdrifið sólskyggni í afturrúðu
  • Rafmagn í sætum
  • Þrjár minnis stillingar í bílstjórasæti
  • Leður

Hvað er að bílnum:

  • Lakkið er lélegt, mikið af yfirborðs rispum, bíllinn greinilega kústaður reglulega, frí mössun fylgir kaupunum
  • Hliðarspeglarnir eru lélegir
  • Hægri peran í þokuljósin er ónýt
  • Tvær rákir í upplýsingarskjánum ( þar sem t.d. eyðslan er tekin fram, maður sér hvað stendur á skjánum en það eru samt ónýtar "perur" í upplýsingarskjánum )

Verð: Ásett á þennan bíl er 1.300.000 sem er ekki raunhæft verð í dag, og því hlusta ég á [SIZE="5"]öll[/SIZE] tilboð.

Hægt er að hafa samband við Viktor Karl í síma 898-3523.

Myndir af bílnum ( ekkert sérstaklega góðar, en sýna þó bílinn )

Image

Image

Image

Image

Image

Image

Image

Image

Image

Image

Image

Image

Author:  Orri Þorkell [ Thu 17. Dec 2009 23:02 ]
Post subject:  Re: Til sölu BMW 735ia E38

ekki slæmt að fá einn svona kagga uppí skuld :P allavega innréttingin sem ég mundi velja í minn E38 ef eg ætti 1.

Author:  BMWRLZ [ Sat 19. Dec 2009 00:19 ]
Post subject:  Re: Til sölu BMW 735ia E38

heldurðu að það sé nú ekki skárra að fá skuldina greidda :roll:

Author:  Ingsie [ Mon 21. Dec 2009 20:10 ]
Post subject:  Re: Til sölu BMW 735ia E38

SELDUR

Author:  Angelic0- [ Fri 25. Dec 2009 14:25 ]
Post subject:  Re: Til sölu BMW 735ia E38 - Seldur

hef verið að reka augun í þennan á ferðinni í keflavík, afar gerðarlegur og fallegur bíll...

einkanúmerið "ÁSGEIR" fer honum vel ;)

Author:  asgeirholm [ Fri 25. Dec 2009 18:08 ]
Post subject:  Re: Til sölu BMW 735ia E38 - Seldur

takk takk enda mun hann ekki fá neitt nema góða meðferð í minni eigu :D

Page 1 of 1 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/