bmwkraftur.is
https://www.bmwkraftur.is/spjall/

-SELDUR- E36 318i 1991 -SELDUR-
https://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=10&t=41058
Page 1 of 1

Author:  srr [ Mon 09. Nov 2009 00:08 ]
Post subject:  -SELDUR- E36 318i 1991 -SELDUR-

Vegna breytinga þá ætla ég að skoða hvort einhver áhugi sé fyrir þessum bíl.

BMW 318i E36
BMW 318i E36
Nýskráður 12.06.1991 á Íslandi.
M40B18 mótor
Ekinn 234.600 km
Beinskiptur
Grár að lit

Aukabúnaður:
Rafmagn í rúðum að framan
Glær stefnuljós að framan

Annað:
Hann er með Jamex sportstól sem bílstjórasæti.
Það var skipt um tímareim 2006 og var hann ekinn 223.000 km þá.

Gallar:
1. Dempari hægra megin að framan er dapur. Dúar ekkert óeðlilega samt.
2. Flautan virkar ekki
3. Göt í sitt hvorum sílsum, undir.
4. Hann þarf á djúphreinsun að halda, fyrri eigandi var búinn að lofa slíku en ekki búinn að standa við það ennþá.
5. Miðstöðvarpanel er eitthvað skrýtið. Hann blæs bara heitu, það er eins og snúningsrofinn fyrir heitt->kalt virki ekki.
6. Það er skemmd á hægra afturbretti eins og sést á myndum.

Það sem ég hef gert síðan ég fékk hann er eftirfarandi:
1. Skipti um gorm h/m að framan, núna er í honum Z3 M Roadster gormur. Fékk vitlausan gorm í kaupum og það komst ekki upp fyrr en ég var búinn að setja hann í.
Það átti að vera E36 325i gormur en svona fór þetta.
2. Keypti listana sem vantar framan á stuðarann, á eftir að skella þeim á
3. Keypti listann og númersljósið sem vantar aftan á skottlokið, það á eftir að skella því á.
4. Keypti mottuna í skottið sem vantaði.


Ég fór með bílinn í skoðun fyrir tæpum mánuði síðan og hann fékk endurskoðun 11 þá.
Skoðun 5. október 2009
Athugasemdir:
Gormur brotinn h/m framan <- Búið að laga
Hemlaljós aftan, pera <- Búinn að prufa skipta um peru en það dugar ekki til, það er eitthvað sambandsleysi í ljósinu
Flauta virkar ekki
Styrkleikamissir, það er gat undir sitt hvorum sílsinum

Svo það þarf að laga sílsana, afturljós v/m og flautuna, þá fær hann skoðun

Verð er 100.000 kr. í því ástandi sem hann er.
Bíllinn er í dag á 15" stálfelgum með BMW koppum og þokkalegum vetrardekkjum.

Image
Image
Image
Image
Image

Nánari upplýsingar og yfirlit yfir það sem ég hef verið að gera við bílinn er hægt að sjá hér:
viewtopic.php?f=5&t=40169&start=0

Skúli Rúnar
8440008
srr at simnet.is

Author:  Birgir Sig [ Mon 09. Nov 2009 12:27 ]
Post subject:  Re: E36 318i 1991

það er nú ekki hægt að kvarta yfir verðinu á bílnum hjá þér :D

Author:  srr [ Mon 09. Nov 2009 13:46 ]
Post subject:  Re: E36 318i 1991

birgir_sig wrote:
það er nú ekki hægt að kvarta yfir verðinu á bílnum hjá þér :D

Takk fyrir það Birgir,

Það lítur kannski út fyrir að vera hellingur að honum,,,miðað við það sem ég lista upp.
Þetta eru samt allt smáhlutir og mér finnst það langt heiðarlegast að telja allt upp sem ég veit af.
Ekkert sem ætti að skemma beater stemninguna í vetur á honum :thup:

Author:  Bui [ Mon 09. Nov 2009 16:57 ]
Post subject:  Re: E36 318i 1991

úff þessi er flottur og ekki skemmir verðmiðinn

Author:  srr [ Tue 10. Nov 2009 22:18 ]
Post subject:  Re: E36 318i 1991

Seldur

Author:  hjolli [ Sun 15. Nov 2009 12:25 ]
Post subject:  Re: -SELDUR- E36 318i 1991 -SELDUR-

hver keypti?
langar að kaupa hann af honum:)

Author:  srr [ Sun 15. Nov 2009 14:41 ]
Post subject:  Re: -SELDUR- E36 318i 1991 -SELDUR-

hjolli wrote:
hver keypti?
langar að kaupa hann af honum:)

Ef hann vill deila því, þá má hann bæta því hér inn :)

Author:  hjolli [ Sun 15. Nov 2009 19:56 ]
Post subject:  Re: -SELDUR- E36 318i 1991 -SELDUR-

sendu mer bara pm;D ?

Author:  srr [ Sun 15. Nov 2009 20:07 ]
Post subject:  Re: -SELDUR- E36 318i 1991 -SELDUR-

hjolli wrote:
sendu mer bara pm;D ?

En ef kaupandinn vill ekki láta ónáða sig?

Author:  hjolli [ Sun 15. Nov 2009 21:22 ]
Post subject:  Re: -SELDUR- E36 318i 1991 -SELDUR-

jæja okei nenniru þá að senda honum pm um að senda mer pm:D? (þeas ef hann vill það)

Page 1 of 1 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/