bmwkraftur.is
https://www.bmwkraftur.is/spjall/

e30 falur
https://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=10&t=40785
Page 1 of 4

Author:  Bui [ Tue 27. Oct 2009 19:05 ]
Post subject:  e30 falur

sá þetta á l2c

Copy paste ég er ekki eigandinn
Quote:
langar eiginlega ekkert að hugsa mér um að seljann einu sinni, en maður verður víst að gera það þar sem maður hefur ekki tíma í hann lengur því fjölskyldan hefur forgang, enn efað hann selst ekki fljótlega þá held ég að ég muni klára að gerann að almennilegum bíl

en planið hjá mér var stórt yfir veturinn, var búinn að finna allt sem mig vanntaði til að gera bílinn að algjöru turbo looking kvikindi en nú fær eitthver annar að spreyta sig.

um er að ræða Bmw 325 e30 91 árg, orginal 316 bíll með m20b25 swappi
vélin í honum er keyrð í kringum 170þúsund
hann er með læstu viscous 3.91 drifi
búið að eyða góðum peningum í þennan bíl til að hann sé í góðu standi en semsagt það sem var gert af fyrri eiganda var, skipt um heddpakkningu og farið með heddið í kistufell og þar var það þrýstiprófað, planað, rennt úr ventlasætum og ventlar renndir og allar pakkningar nýjar í heddi, ný ventlalokspakkning, nýtt kveikjulok og hamar,ný vatnsdæla, tímareim, strekkjarahjól,vatnslás og flr, einnig er búið að skipta um rafkerfi í bílnum þar sem það gamla var skemmt og áttu loftflæðiskynjarar til að eyðileggjast og búið er að dunda í hinu og þessu..
Hann er með Xenon aðaljós(ekki alveg klár hversu sterk)
hann er ekki skoðaður 10 en hann selst með 10 miða nokkrir hlutir sem ég þarf að klára fyrst

einu gallarnir sem er við hann sem ég tek eftir er að aftur felgan bílstjóra meginn er beygluð(þyrfti að setja nýjar felgur undir hann).
pústið er frekar hávært en ég laga það auðvitað fyrir skoðun(þarf sennilega bara hvarfakút), og á eftir að setja nýja viftu í bílinn þar sem sú sem er í núna er beintengd(ég skipti um hana fyrir sölu)

ég set 350þúsund á bílinn þá með 10 skoðun tilbúinn til að spóla!, en 300 eins og hann er núna! en auðvitað má alltaf semja eitthvað um það

hérna koma nokkrar nyjustu myndirnar af honum þegar hann var tekinn og þrifinn vel um daginn.. tek svo bara nýjar í dag

Image
Image
http://www.live2cruize.com/spjall/showt ... hp?t=98657

Author:  Jón Ragnar [ Tue 27. Oct 2009 19:28 ]
Post subject:  Re: e30 falur

Getur einhver keypt þetta og pressað?

nenni ekki endalaust að sjá söluauglýsingar með þennna í aðalhlutverki

Author:  ///M [ Tue 27. Oct 2009 19:30 ]
Post subject:  Re: e30 falur

John Rogers wrote:
Getur einhver keypt þetta og pressað?

nenni ekki endalaust að sjá söluauglýsingar með þennna í aðalhlutverki


go for it

Author:  sonur22 [ Tue 27. Oct 2009 21:22 ]
Post subject:  Re: e30 falur

Díses... þessi bill er hóra :bawl:

Sé samt eftir að hafa látið hann frá mér
fór áfallalegur tími í hann :aww:

Author:  ingo_GT [ Tue 27. Oct 2009 21:24 ]
Post subject:  Re: e30 falur

sonur22 wrote:
Díses... þessi bill er hóra :bawl:

Sé samt eftir að hafa látið hann frá mér
fór áfallalegur tími í hann :aww:


Keyftu hann aftur :mrgreen:

Author:  billi90 [ Tue 27. Oct 2009 21:41 ]
Post subject:  Re: e30 falur

hver er saga þessa bíls?
getur einhver sagt mer einhvað um hann?

Author:  ingo_GT [ Tue 27. Oct 2009 21:48 ]
Post subject:  Re: e30 falur

billi90 wrote:
hver er saga þessa bíls?
getur einhver sagt mer einhvað um hann?


Hann sonur ætti að geta sagt þér allt um þennan bíl held ég :)

EDIT.

Hérna er þráður um bílinn http://bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=5&t=30951

Author:  Axel Jóhann [ Wed 28. Oct 2009 00:21 ]
Post subject:  Re: e30 falur

Ef ég á að vera hreinskilinn bjóst ég aldrei við því að þessi bíll myndi keyra fyrir eigin vélarafli aftur.

Author:  birkire [ Wed 28. Oct 2009 00:24 ]
Post subject:  Re: e30 falur

Axel Jóhann wrote:
Ef ég á að vera hreinskilinn bjóst ég aldrei við því að þessi bíll myndi keyra fyrir eigin vélarafli aftur.


Ég bjóst ekki heldur við því að hann yrði nokkurntímann fórnarlamb svona fallegra sætisáklæða

Author:  twitch [ Wed 28. Oct 2009 06:22 ]
Post subject:  Re: e30 falur

haha hvaða hvaða, sé nú eiginlega bara eftir því að hafa gert þessa auglýsingu langar ENGANNveginn að selja

Author:  billi90 [ Wed 28. Oct 2009 08:52 ]
Post subject:  Re: e30 falur

twitch wrote:
haha hvaða hvaða, sé nú eiginlega bara eftir því að hafa gert þessa auglýsingu langar ENGANNveginn að selja


þú kannski samt svara pm a l2c :)

Author:  Bui [ Wed 28. Oct 2009 11:29 ]
Post subject:  Re: e30 falur

Sammala sidasta raedumanni

Author:  Birgir Sig [ Wed 28. Oct 2009 14:48 ]
Post subject:  Re: e30 falur

twitch wrote:
haha hvaða hvaða, sé nú eiginlega bara eftir því að hafa gert þessa auglýsingu langar ENGANNveginn að selja



þá fer maður i edit og skrifar tími ekki að selja bílinn takk fyrir

Author:  sonur22 [ Wed 28. Oct 2009 18:52 ]
Post subject:  Re: e30 falur

Þú segir mér að taka þetta út ef þú vilt ekki hafa þetta hérna en..

Er búið að laga innrabrettin að aftan fyrir aftan afturhjólin? hvað eru mörg aftan í því :mrgreen:
ég skyldi ekki í því að þegar ég var á honum í rigningu hvað það flæddi svo svakalegt vatn í skottið á honum
ég kíttaði afturljósin og fiktaði eitthvað í skottlokinu en svo bara tímdi ég ekki að eiga hann (vissi að ég mundi eyðileggja hann :thup: )
og seldi hann áður en ég náði að finna hvar vatnið kom inn og var svo sagt seinna að það væri ekkert innrabretti í honum :| eitthvað til í því???

Author:  Bui [ Wed 28. Oct 2009 19:26 ]
Post subject:  Re: e30 falur

ég náði að stoppa lekan vinstrameginn ;) en hægramegin fann ég ekki út hvar lak

Page 1 of 4 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/