Svona fer þegar maður treystir mönnum! Sá sem átti að taka bílinn af mér um mánaðarmótin (og var búin að borga inná) getur ekki borgað þannig að ég hef ekki kost á öðru en að leita að öðrum kaupanda. (og missi þannig líka af bílnum sem ég vildi fá uppí sem var fullkominn fyrir mig
)
Ég auglýsti á miðvikudaginn í mogganum og minni því á mig eina ferðina enn!
Þetta hefur alltaf strandað á því að ekki er hægt að fá bílalán og ég hef ekki viljað Camaro uppí (enda að leita að praktískum ódýrum bíl sem stendur - hef ekkert á móti Camaro). Ég fékk þrjár fyrirspurning á miðvikudaginn og ég mun selja bílinn þeim fyrsta sem er klár með pening.
Þannig að ef einhver er að pæla - HRINGIÐ þá í mig
Fyrir þá sem ekki vita þá er þetta BMW M5 E34 árgerð 1990 og ekinn 142 þús. Ekki tjónabíll og með súper eigendasögu (fluttur inn af syni hans Guðmundar í B&L) og góðu þjónustusögu þrátt fyrir að bókin fyrir bílinn sé ekki til lengur.
Hann fer á MJÖG góðu staðgreiðsluverði (ca. 1200 þús) - og ég skoða líka flest öll skipti á bílum með einhverri þokkalegri milligjöf en þá á eitthvað hærra verði.
Fram að þessu hef ég verið stífari á verðinu þar sem ég var ekki búin að finna íbúð - en nú er ég að flytja þannig að svigrúmið fyrir ykkur væntanlegir kaupendur er meira áður.
Það skiptir mig máli að bíllinn fari á góðan stað - það er smávægilegt viðhald á döfinni á næstunni (Bremsuklossar að framan (búin að skipta um þá reyndar núna), ein hosa og pakkning í púst).
Ég mun taka ákvörðun í byrjun næstu viku. Sendið mér skilaboð ef þið viljið spyrja.
Ódýrir bíla koma sterklega til greina í uppítöku, þá sérstaklega þokkalega sparneytnir BMW og Benz og ég er ekki hræddur við háar kílómetratölur ef bíllinn er í lagi!
Bestu kveðjur,
Ingvar
S: 8647925[/b]