bmwkraftur.is
https://www.bmwkraftur.is/spjall/

Til sölu BMW 525ia
https://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=10&t=3927
Page 1 of 1

Author:  Auðunn [ Thu 08. Jan 2004 16:23 ]
Post subject:  Til sölu BMW 525ia

Jæja, þá kem ég með nákvæma lýsingu á bílnum.

Stórglæsilegur grár BMW 525ia árgerð 1993. 210hö. (Nýr tölvukubbur)

Innfluttur frá Þýskalandi og kom fyrst á götuna 25.03.93 þar í landi. Bíllinn kemur svo á götuna á Íslandi 04.09.97 (keyrður 150.000 km) og er nú keyrður 227 þúsund.

Í bílnum má m.a. finna:
Svart leður, topplúga, ABS hemlavörn, fjarstýrð samlæsing, hiti í sætum, hraðastillir, hiti í sætum, líknarbelgir, loftkæling, rafdrifnar rúður, rafdrifnir speglar, útvarp, geislaspilari, bassabox 700W, 600W Magnari, veltistýri, vökvastýri, 4 vetradekk á 15” Bmw álfelgum, 4 sumardekk low profile á 17” Momo álfelgum 235/45, viðarinnrétting, þjónustubók, aksturstölva.

Nýjar bremsur og bremsudiskar (des 2003)

Þessi bíll er einstaklega vel með farinn og má þá helst nefna að lakkið er eins og nýtt og undir vélarhlífinni má sjá að allt er tandurhreint og vel með farið. Reyklaus. Sjón er sögu ríkari. TILBOÐ

Áhugasamir hafi samband í síma 6901552, eða ausi20@hotmail.com

Image
Image
Image
Image
Image
Image
Image

Author:  bjahja [ Thu 08. Jan 2004 17:30 ]
Post subject: 

Er þessi bíll alltaf fyrir framan vesturströnd 23 ?, ég horfi á hann á hverjum degi útum gluggan minn............. :wink: lítur vel út

Author:  Guest [ Thu 08. Jan 2004 17:37 ]
Post subject: 

viltu eithver skipti?

Author:  Guest [ Thu 08. Jan 2004 18:16 ]
Post subject: 

opinn fyrir öllum skiptum..skoða hvað sem er.

Author:  Auðunn [ Thu 08. Jan 2004 18:18 ]
Post subject: 

Sorrý, gleymdi að skrá mig inn...
Eins og ég segi þá er ég opinn fyrir öllu.

Page 1 of 1 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/