bmwkraftur.is
https://www.bmwkraftur.is/spjall/

BMW 320i E46 2001(SELDUR)
https://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=10&t=37990
Page 1 of 1

Author:  Leifur [ Sun 14. Jun 2009 11:59 ]
Post subject:  BMW 320i E46 2001(SELDUR)

BMW 320i E46 2001
Nýskráður: 01.07.2001
Ekinn: Bara 95 þúsund km.
Umboðsbíll Kom eins og hann er frá b&l, aldrei neitt breyttur.
Einn eigandi
Ekki tjónabíll
Beinskiptur
17" álfelgur og dekk sem eru ekki mikið slitin
Fylgir líka með 16" stálfelgur og mjög slitin vetrardekk(þarf að skipta um).
Spoiler og held ég að þetta heiti low profile kit eða eitthvað utan um bílinn.
Chrome púströr(er ansi skítugt núna þannig að það sést ekki vel á myndum)
Cruise control
Leðurstýri
Sjálfvirkar rúðuþurrkur(skynjari)
149 hestöfl
Ómerktur
Hann er með tvo alpine magnara í skottinu.
Það er nýbúið að eyða 200 þúsund kalli í yfirhalningu á þessum bíl hjá TB og annarsstaðar. Það var skipt um fóðringar, stýrismaskínu og bíllinn er í toppstandi núna.
Skoðaður '10 án athugasemda

Hægt er að koma og skoða bílinn, hafa bara samband í 8925165(Teddi).

Það er ekkert áhvílandi á þessum bíl og ásett verð er 1.500.000 þúsund eða besta tilboð.

Hérna eru svo vonandi myndir. Þær eru stórar og í góðri upplausn.
Image
Image
Image
Image
Image
Image
Image
Image
Image
Image
Image
Image
Image
Image
Image
Image

Kærar þakkir!
Teddi

Author:  SteiniDJ [ Mon 15. Jun 2009 03:13 ]
Post subject:  Re: BMW 320i E46 2001

MJÖG flottur hjá þér. :thup: Þessi spoiler er að gera góða hluti, mér finnst svo margir E46 sedan vera bara klónar en þetta brýtur það pattern í tætlur. ;)

Author:  Leifur [ Mon 15. Jun 2009 10:11 ]
Post subject:  Re: BMW 320i E46 2001

Takk fyrir það :D Ég hef einmitt stundum verið að velta því fyrir mér afhverju minn væri eitthvað soldið "öðruvísi" en sumir þessir E46 sem eru á götunni.

SteiniDJ wrote:
MJÖG flottur hjá þér. :thup: Þessi spoiler er að gera góða hluti, mér finnst svo margir E46 sedan vera bara klónar en þetta brýtur það pattern í tætlur. ;)

Author:  Freyr Gauti [ Mon 15. Jun 2009 11:51 ]
Post subject:  Re: BMW 320i E46 2001

Þetta svuntusett og spoilerinn gera þennan bíl þvílíkt frábrugðin hinum E46 bílunum á götunni...virkilega flottur bíll.

Author:  Leifur [ Thu 18. Jun 2009 11:15 ]
Post subject:  Re: BMW 320i E46 2001

Færi þetta upp á toppinn :roll:

Annars er ásetta verðið ekkert heilagt...

Author:  Leifur [ Sun 21. Jun 2009 21:08 ]
Post subject:  Re: BMW 320i E46 2001(SELDUR)

Seldist í gegnum kraftinn, að sjálfssögðu, og fór með ansi góðum afslætti en ég er sáttur þar sem hann fer á góðan stað til upprennandi BMW áhugamanns.

Kærar þakkir bmwkraftur!

Author:  einarivars [ Mon 22. Jun 2009 21:58 ]
Post subject:  Re: BMW 320i E46 2001(SELDUR)

að forvitni.. hvað fekkstu marga peninga fyrir þennan grip ?

Author:  Leifur [ Tue 23. Jun 2009 09:05 ]
Post subject:  Re: BMW 320i E46 2001(SELDUR)

Hann fór á 1.1m en það var ýmislegt að honum sem ég vissi ekki af eða hafði ekki gert mér nægjanlega grein fyrir. Ég hefði viljað a.m.k 1.3 en svona er þetta bara.

einarivars wrote:
að forvitni.. hvað fekkstu marga peninga fyrir þennan grip ?

Author:  einarivars [ Thu 25. Jun 2009 19:19 ]
Post subject:  Re: BMW 320i E46 2001(SELDUR)

jaa eg mundi setja minn á 1,1 .. 320i e46 99

Author:  Jón Ragnar [ Thu 25. Jun 2009 19:46 ]
Post subject:  Re: BMW 320i E46 2001(SELDUR)

Góður með að segja verðið.

Finnst það vera oft gott að vita hvað svona bílar fara á, en að mínu mati er þetta KILLER verð fyrir þennan bíl, ekkert smá huggulegur

Author:  einarivars [ Thu 25. Jun 2009 22:31 ]
Post subject:  Re: BMW 320i E46 2001(SELDUR)

John Rogers wrote:
Góður með að segja verðið.

er eg góður ?

Author:  Djofullinn [ Thu 25. Jun 2009 22:32 ]
Post subject:  Re: BMW 320i E46 2001(SELDUR)

einarivars wrote:
John Rogers wrote:
Góður með að segja verðið.

er eg góður ?

Nei gaurinn sem sagði söluverðið á bílnum sem hann var að selja

Author:  einarivars [ Sat 27. Jun 2009 00:01 ]
Post subject:  Re: BMW 320i E46 2001(SELDUR)

jaaa.. mybad

Author:  Ívarbj [ Sat 27. Jun 2009 00:43 ]
Post subject:  Re: BMW 320i E46 2001(SELDUR)

Hvað þurfti að gera við hann ef ég má spurja;)

Author:  Atli885 [ Sat 08. Aug 2009 00:46 ]
Post subject:  Re: BMW 320i E46 2001(SELDUR)

hver er eigandinn nuna?

Page 1 of 1 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/