bmwkraftur.is https://www.bmwkraftur.is/spjall/ |
|
BMW E34 520´90 ódýr kagginn SELDUR https://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=10&t=34693 |
Page 1 of 1 |
Author: | DABBI SIG [ Fri 30. Jan 2009 20:48 ] |
Post subject: | BMW E34 520´90 ódýr kagginn SELDUR |
SELDUR! Jæja, Er með til sölu bíl sem hefur reynst mjög vel. Gæti orðið mjög flottur með litlum breytingum, glær stefniljós og felgur og hann yrði mjög flottur. Eða bara sem góður skóla/vinnubíll -Þetta er semsagt BMW E34 520i ´90 árgerð sem hefur verið í mjög góðu aðhaldi undanfarin ár enda eldri maður sem hefur átt hann og hugsað um hann mjög vel. 2 eigendur frá upphafi að ég held. -Hefur alltaf verið þjónustaður/smurður hjá Tækniþjónustu Bifreiða, hefur farið 2x á ári, sumar og vetur í reglubundið check hjá þeim. -Alltaf farið í skoðun á réttum tíma og til saga skoðunarvottorða alveg frá 1999 og þangað til nú, nánast alltaf fengið fulla skoðun. Á svo að fara í skoðun núna í janúar og ætti að fara auðveldlega í gegn. -Ekinn ca. 253 þús -sjálfskiptur -búnaður er ABS, rafmagn í rúðum, speglum. Hiti í sætum, samlæsingar, skíðapoki fyrir skottið o.fl -er á mjög góðum Hankhook negldum vetrardekkjum sem eiga nóg eftir á felgum með koppum. -gangur af sumardekkjum fylgja með -bíllinn er góður miðað við aldur, lakk tiltölulega gott, smá ryðblettir en alls ekki mikið eða alvarlegt. Smá beygla á bílstjórahurð en hamlar ekkert og svunta að framan aðeins sködduð. -innrétting mjög góð, virkar allt í bílnum, miðstöð með smá sambandsleysi en helst ofast í gangi og virkar. -Verðhugmynd á bílnum er ca. 180 þús stgr en er ekki heilagt. Möguleiki er líka að skipta honum uppí dýrari jeppling, t.d. Rav4, Honda CRV, eða svipaða bíla. Bara skjóta tilboðum með skipti eða stgr! ![]() ![]() ![]() ![]() ![]() ![]() ![]() ![]() Upplýsingar: Davíð Þór dabbisig@hotmail.com s:8698577 eða PM |
Author: | KristoferK [ Fri 30. Jan 2009 21:16 ] |
Post subject: | |
Liturinn á innréttingunni er bara fly. |
Author: | DABBI SIG [ Sat 31. Jan 2009 17:30 ] |
Post subject: | |
Óska Bjarka, nýjum eiganda hérna á spjallinu til hamingju með eðaleintak af bmw E34 Ófáar minningarnar í þessum afabíl! |
Page 1 of 1 | All times are UTC |
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group https://www.phpbb.com/ |