bmwkraftur.is
https://www.bmwkraftur.is/spjall/

Til sölu 525iX E34 1994 - 4x4 SELDUR
https://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=10&t=34240
Page 1 of 3

Author:  saemi [ Sat 10. Jan 2009 20:13 ]
Post subject:  Til sölu 525iX E34 1994 - 4x4 SELDUR

Til sölu er 525iX E34 1994 árgerð.

Enn einn bíllinn úr smiðju herr Hallsson og Stefánsson

Bíllinn er ekinn 238,xxx km.

Eins og flestir vita þá er þessi vél 24ventla 192hö. Snilldarvélar.

Liturinn er Cosmosschwarz (svart-sanseraður).

Bifreiðin er beinskipt, mjög fínn gírkassi og þéttur og mótorinn í fínu lagi.

Hann er með dökkgrárri tauinnréttingu.

Bíllinn er með:

Cruise control (virkar ekki)
Samlæsingar (sem virka)
Rafmagn í rúðum

Skoðaður 08.12.08 án athugasemda. Segir til um gæði verka hjá Hallsson og Stefánsson :) Þarf ekki að fara aftur í skoðun fyrr en í október í síðasta lagi.

Þessi bíll er einn af síðustu E34 bílunum, var innfluttur nýr 12.10.1994. Ég keypti bílinn í apríl á þessu ári. Hann hafði þá staðið í svolítinn tíma vegna ónýts hedds.

Þessi bíll var notaður sem leigubíll einu sinni og því er boddíið ekið slatta. Ég og skúra-Bjarki tókum okkur til og gerðum við heddið í bílnum, en þegar hann var kominn í gang þá kom í ljós að sjálfsskiptingin í honum var eki upp á sitt besta. Við tókum því allt kramið úr 525ix touring bíl (vél, kassa, öxla, drifskaft ofl) og settum í þennan, þannig að hann er beinskipur núna.

Bíllinn er vel þéttur, samlæsingar í 100% lagi, kramið í fínu lagi. Lakkið gott, svo til ekkert ryð í bílnum. Bíllinn er á 16” felgum með mjög góðum vetradekkjum, ónegldum.

Hægt er að fá hann á stálfelgum og ágætis sumardekkjum og slá þá 60þúsund af verðinu. Sem gerir þá 300.000.- fyrir bílinn.

Einnig er hægt að fá hann með svartri leðurinnréttingu, komfort-sæti með hita fyrir 30.000.- í viðbót. Þá væri hann orðinn vel grand bíll. Hafði hugsað að selja hann þannig, en vildi bjóða hann líka áður en ég set leðrið í hann.


Verðið er 360.000.- stgr. Fer með leðrinu á því verði!!!

Sæmi 699-2268 / smu@islandia.is


Image
Image
Image
Image
Image
Image

Author:  Alpina [ Sat 10. Jan 2009 20:20 ]
Post subject: 

Strákar Halls og Stebba
strita við að selja
plata aðra plebba
plotta úr og velja

:P :P :P

Author:  Shizzer [ Sun 11. Jan 2009 02:29 ]
Post subject: 

Mig langar :shock:

Author:  gardara [ Sun 11. Jan 2009 07:45 ]
Post subject: 

Alvöru beater og meira til 8)

Author:  saemi [ Sun 11. Jan 2009 19:49 ]
Post subject: 

gardara wrote:
Alvöru beater og meira til 8)


Jebb. Bara fínn bíll í vetur. Með leðrinu yrði hann svona:

Image

Image


BARA í lagi

Author:  balli750 [ Mon 12. Jan 2009 14:38 ]
Post subject: 

væri hægt að fá að skoða hann hjá þér, hef mikinn áhuga á honum

Author:  Hlynur___ [ Mon 12. Jan 2009 14:49 ]
Post subject: 

úff mig langar, skoðarðu skipti á nýsprautuðum hilux? :wink:

Author:  Bjarki [ Mon 12. Jan 2009 15:25 ]
Post subject: 

Hlynur___ wrote:
úff mig langar, skoðarðu skipti á nýsprautuðum hilux? :wink:


þetta er virkilega þéttur bíll að keyra,
góður mótor og kassi.
og fer allt í snjónum!

Sæmi á Hilux.... :lol: það vil ég sjá

Author:  saemi [ Mon 12. Jan 2009 15:34 ]
Post subject: 

Hlynur___ wrote:
úff mig langar, skoðarðu skipti á nýsprautuðum hilux? :wink:


Takk en nei takk :)

Author:  saemi [ Mon 12. Jan 2009 15:35 ]
Post subject: 

balli750 wrote:
væri hægt að fá að skoða hann hjá þér, hef mikinn áhuga á honum


Það er ekkert mál að skoða í dag og kvöld. Verð hins vegar ekki við á morgun, en kem aftur á fimmtudag og eftir það er ekkert mál að skoða.

Author:  balli750 [ Mon 12. Jan 2009 15:41 ]
Post subject: 

þá reyni ég að koma eftir fimmtudag

Author:  saemi [ Mon 12. Jan 2009 19:38 ]
Post subject: 

Var að keyra áðan og þá kom þessi svaðalegi víbringur aftur í stýrið. Kom um daginn og þá var greinilega föst bremsudæla því annað hjólið að framan var vel heitt. Hélt hún hefði losnað núna eftir að maður fór að keyra hann, en neeeehhei. Pikkföst.

Þannig að áðan var dælan tekin úr, nýr stimpill settur í og gúmmí og allt annað að keyra bílinn :clap:

Author:  srr [ Mon 12. Jan 2009 19:41 ]
Post subject: 

saemi wrote:
Þannig að áðan var dælan tekin úr, nýr stimpill settur í og gúmmí og allt annað að keyra bílinn :clap:

Gengur hratt fyrir sig....á gervihnattaöld.....í smiðju Sæmundar 8)

Author:  saemi [ Mon 12. Jan 2009 20:04 ]
Post subject: 

srr wrote:
saemi wrote:
Þannig að áðan var dælan tekin úr, nýr stimpill settur í og gúmmí og allt annað að keyra bílinn :clap:

Gengur hratt fyrir sig....á gervihnattaöld.....í smiðju Sæmundar 8)


Ég meina... bíllinn á að seljast :P

Author:  srr [ Mon 12. Jan 2009 20:06 ]
Post subject: 

saemi wrote:
srr wrote:
saemi wrote:
Þannig að áðan var dælan tekin úr, nýr stimpill settur í og gúmmí og allt annað að keyra bílinn :clap:

Gengur hratt fyrir sig....á gervihnattaöld.....í smiðju Sæmundar 8)


Ég meina... bíllinn á að seljast :P

Hmm....
Auglýstu E28 M5....þá kannski græjast hann :lol: 8)

.....nema ég kaupi hann bara :shock:

Page 1 of 3 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/