bmwkraftur.is
https://www.bmwkraftur.is/spjall/

BMW E34 540IA 1993 [SELDUR]
https://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=10&t=33651
Page 1 of 4

Author:  Ragnar [ Thu 11. Dec 2008 00:44 ]
Post subject:  BMW E34 540IA 1993 [SELDUR]

Þetta er semsagt bmw e34 540ia. Bílinn er á einkanúmerum [FUBAR] en fast númer er TMK-79

550.000kr eða tilboð. Skipti skoðuð. Helst 4wd, enginn mótorhjól.

1993 árgerð.
Ekinn 195.000
Dökk grá blár? Að lit.
16" felgur á nelgdu vetrar 225/55R16 2 sumardekk fylgja. Ég hef ekki spólað á þessum bíl. Dekkin skemmdust vegna hjólastillingar sem búið er að laga.

Það er nýr vatnskassi og selst bílinn ný smurður.

Bíllinn er ríkulega búinn af aukabúnaði og ætla ég mér að reyna að muna allann pakkann:

Svart buffalóleður á sætum
Sportsæti
Rafmagn í framsætum
Hiti í framsætum
Minni í bílstjórasæti og hliðarspeiglum
Leðraður miðjustokkur og hurðarspjöld
Sólgardína í afturglugga rafdrifin
sólgardínur í hliðargluggum afturí, líka litlu gluggunum
Hifi hljóðkerfi og geyslaspilari, (magasín í skotti en ótengt)
Spólvörn
Skriðvörn
Krúskontrol
Check control
Aksturstölva
dráttarkrókur sem hægt er að taka undan bílnum
Tvívirk sjálfvirk miðstöð
Frjókornasía og "loftgæðaskynjaradæmi eitthvað sem stýrir sjálft hringrásinni )
Loftkæling
Fjarstýrðar samlæsingar
Rafdrifin topplúga
Rafdrifnar rúður og speiglar
Sjálfdekkjandi baksýnisspegill
Velour mottur
Park ventilation (loftfrískunar búnaður ef bíllinn stendur í sól og er þá komið ferskt loft í hann á fyrirframm stilltum tíma)
M-Sport fjöðrun orginal frá BMW

Þá eru það myndir, enginn meistaraverk.

Image

Image

Image

Image

Image

Image

Image

Image

Image

Image

Image

Image

Image

Image

Ég hef nú ekki meira að segja. Jú þetta er skemmtilegur krúser sem fór selfoss - fáskrúðsfjörður og þá voru enn 226km eftir í tanknum samkvæmt tölvunni. Hef mest komið 83.75 lítrum á hann.

Ástæða sölu er sú að ég hef voða lítið við bílinn að gera. Allt í göngufæri og rúta til og frá vinnu.

Já ég læt þetta duga. En breyti ef þess þarf.

10/12/08 bíll staðsettur á Fáskrúðsfyrði.

Ég þakka fyrir mig og njótið vel.

Kv. Ragnar Jóhannesson
Hlíðargata 55
750 Fáskrúðsfjörður
848-1612 472-1756
raggi88bjuga@gmail.com

Author:  KristoferK [ Thu 11. Dec 2008 00:53 ]
Post subject: 

Baaaaaara svalur 8)

Author:  Angelic0- [ Thu 11. Dec 2008 03:08 ]
Post subject: 

engin verðhugmynd :?:

Author:  Mánisnær [ Thu 11. Dec 2008 03:14 ]
Post subject: 

Angelic0- wrote:
engin verðhugmynd :?:


BMW E34 540IA 1993 650.000kr eða tilboð.

Author:  Angelic0- [ Thu 11. Dec 2008 03:16 ]
Post subject: 

Mánisnær wrote:
Angelic0- wrote:
engin verðhugmynd :?:


BMW E34 540IA 1993 650.000kr eða tilboð.


Sorry strákar, ég er bjáni :oops:

Author:  birkire [ Thu 11. Dec 2008 03:29 ]
Post subject: 

Örugglega einn af eigulegri e34 á landinu, skemmtilega hlaðinn af gúddsjitti

Author:  Steinieini [ Thu 11. Dec 2008 06:35 ]
Post subject: 

Er mig að misminna eða lenti þessi í tjóni og var keiptur af tryggingum ?

Author:  Angelic0- [ Thu 11. Dec 2008 06:50 ]
Post subject: 

Steinieini wrote:
Er mig að misminna eða lenti þessi í tjóni og var keiptur af tryggingum ?


Já, en það er búið að gera við það :!:

Author:  Djofullinn [ Thu 11. Dec 2008 08:56 ]
Post subject: 

Flott verð

Author:  Uvels [ Thu 11. Dec 2008 12:24 ]
Post subject: 

i saw a car today,looks good,but 650k is too much i think,its not a krappa price anymore :wink:

Author:  íbbi_ [ Thu 11. Dec 2008 12:44 ]
Post subject: 

fallegur bíl,

Author:  siggir [ Thu 11. Dec 2008 12:49 ]
Post subject: 

Image

Image

Image

Image

Image

Betra svona ;)

Afar smekklegur bíll.

Author:  lacoste [ Thu 11. Dec 2008 13:13 ]
Post subject: 

Klikkaður bíll :!: :shock:

Author:  Alpina [ Thu 11. Dec 2008 19:10 ]
Post subject: 

Er þetta ekki HALLSSON import :?:

Author:  Ásgeir [ Thu 11. Dec 2008 19:22 ]
Post subject: 

Váá.. :drool: geðveikur bíll og flott verð.

Page 1 of 4 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/