Til sölu er 525iA E34 1993 árgerð.
Bíllinn er ekinn 277,100 km.
Eins og flestir vita þá er þessi vél 24ventla 192hö. Snilldarvélar.
Bifreiðin er sjálfskipt svo það fari ekki á milli mála.
Hann er með grárri tauinnréttingu. Hiti í framsætum, en er ótengt. Plöggin voru klippt úr bílnum og það þarf því að splæsa saman vírana til að hitinn virki. Smá rifa á bílstjórasætinu, þessi vanalegi staður á mjóbakinu v/m.
Bíllinn er vel búinn:
Cruise control
Airbag leðurstýri
Rafdrifin topplúga
Samlæsingar (sem virka)
Rafmagn í framrúðum
EKKI læst drif
Skoðaður síðan í sumar. Þarf ekki að fara aftur í skoðun fyrr en eftir ár!
Nýjar fóðringar í afturfjöðrun (subframe bushings).
Þessi bíll var innfluttur árið 1997. Ég keypti bílinn í apríl á þessu ári. Hann hafði þá staðið í rúmt ár.
Þessi bíll hefur lent í framtjóni og vegna þess þá passa ekki allar línur 100% að framan (húdd bretti og framstykki). Það er ekkert ljótt að sjá að framan í grindinni, en þó hefur bitinn fremst gengið aðeins til.
Fyrir skömmu lenti bíllinn einnig í afturtjóni og nú er eiginlega það besta farið úr boddíinu. Ég togaði beygluna út svo það væri hægt að loka skottinu en það borgar sig ekki að gera meira að mínu mati. Góð dæld fyrir neðan skott og skottið smá beyglað líka og brot úr ljósunum á skottinu.
Ég setti aftur mjórri framendan á bílinn, með tjónuðu húddi og framstuðara sem er ekki í sama lit. Útlitslega er þessi bíll ekki nálægt því sem hann var í sumar, það má frekar líta á þetta sem vetrarbíl með góðri vél sem hægt er að nota í project eða annan samskonar bíl.
En bíllinn er ótrúlega þéttur, samlæsingar í 100% lagi, cruisið, rúðurnar, sætin og lúgan virka, ekkert bull í gangi með kramið. Fínar bremsur, miðstöðin lekur EKKI svo það er blússandi hiti í kuldanum núna. Lakkið gott, svo til ekkert ryð í bílnum. Bíllinn verður seldur á 15” felgum með allt í lagi vetradekkjum, ónegldum. Ég hafði hugsað mér að hafa það stálfelgur með koppum, en það er hægt að breyta þessu, á ýmislegt til.
Myndir koma á morgun, hér er linkur á eldri sölusíðu síðan í sumar.
http://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtop ... 23&start=0
LÆKKAÐ VERÐ: 100.000.- stgr.
Sæmi 699-2268 /
smu@islandia.is
