bmwkraftur.is https://www.bmwkraftur.is/spjall/ |
|
BMW E34 525i https://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=10&t=32294 |
Page 1 of 1 |
Author: | UnnarÓ [ Tue 07. Oct 2008 00:19 ] |
Post subject: | BMW E34 525i |
Bíllinn er '91 árgerð og var fluttur inn til landsins frá Þýskalandi, árið 2000. 2.5l vél (m50) non-vanos, 192 hö. Það fór heddpakkning í mótornum í vor en ég hélt að það væri eitthvað meira svo ég keypti hedd að utan sem leit mjög vel út, kom úr lítið eknum tjónabíl. Það fór í bílinn nú fyrir stuttu og mótorinn orðinn mjög góður. Bíllinn er beinskiptur, engin sjálfskiptingar tímasprengja. Kassinn er þokkalega þéttur ekkert syncro vesen eða neitt slíkt. Litur: Islandgrün metallic, flottur litur og flott nafn á lit. Dökkbrún leðurinnrétting (Brasil leder 0397) Mjög flott og sjaldgæf innrétting, hef aldrei séð svona leður áður, hvorki í e34 né e32. Leðrið er í fínu standi engar rifur eða neitt. Ekinn 193.xxx km Með '09 skoðun. Hann er með glær stefnuljós að framan og rauð stefnuljós að aftan. Bílinn er á 16" e39 M5 replicum sem fara bílnum frekar vel, vafin utan um þær eru heilsársdekk í alltílagi standi. Það er nýlegur Panasonic geislaspilari í bílnum. Bíllinn er með „Check control“ bilanatölvu í mælaborðinu Í bílnum er Calis forhitari, þannig maður á að geta plöggað honum í samband og þá er bíllinn heitur og fínn þegar hann er ræstur. Hef reyndar ekkert prófað þetta sjálfur. Innanbæjar er hann að eyða ca. 13l/100km og það er með stöku inngjöfum inn á milli. Á langkeyrslunni dettur þessi tala hressilega niður í ca. 8l/100. Alveg þokkalega búinn bíll: Order options no. Description 288 LT/ALY WHEELS - Kom upphaflega á álfelgum 314 HEATED WINDSCREEN WASHER NOZZLES - Upphitaðir rúðupissgaurar 320 MODEL DESIGNATION, DELETION - Ekkert 525i merki aftan á bílnum 354 GREEN STRIPE WINDSCREEN - Græn rönd efst í framrúðunni 401 SLIDING/VENT ROOF, ELECTRIC - Tvívirk rafdrifin topplúga 411 WINDOW LIFTS, ELECTRIC - Rafmagn í öllum rúðum 415 SUNBLIND FOR REAR WINDOW - Gardína í afturglugga 423 FLOOR MATS, VELOUR - Velúr mottur 428 WARNING TRIANGLE - Viðvörunarþríhyrningur 472 CENTER ARMREST FRT DRIVER/PASS - Armpúðar á framsætum 498 HEADRESTS IN REAR, MECHANIC. ADJUSTABLE - Höfuðpúðar á aftursætum 500 HEADLIGHT WASHER SYS/INTENSIVE CLEANING - Þvottasýstem á framljósum 510 HEADLIGHT BEAM-THROW CONTR. F LOW BEAM - Hæðarstillanleg aðalljós 520 FOGLIGHTS - Þokuljós 556 EXTERIOR TEMPERATURE DISPLAY - Klukka og hitamælir (sem virkar!) 708 M-SPORT LEATHER STEERING WHEEL II - Megakúl M-tech II stýri 801 GERMANY VERSION - Ja bitte 954 PREISAB.LEHNENTASCHE/LEDER - Ekki alveg viss hvað þetta er. --- Svissinn í bílnum er ónýtur en bíllinn verður seldur með nýjan sviss. Einnig mun hann seljast með nýsprautað frambretti og bílstjórahurð. ..og nýsmurður ![]() Verð: 430 þúsund. Skoða skipti á ódýrum beater til að skrölta á út veturinn. Frekari uppl. í PM eða síma 858-7881. Nokkrar slappar myndir sem verða uppfærðar við tækifæri. ![]() ![]() ![]() |
Page 1 of 1 | All times are UTC |
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group https://www.phpbb.com/ |