bmwkraftur.is
https://www.bmwkraftur.is/spjall/

E39 M5 09/2000 (MY2001 facelift) - SELDUR
https://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=10&t=30865
Page 1 of 1

Author:  iar [ Tue 22. Jul 2008 13:02 ]
Post subject:  E39 M5 09/2000 (MY2001 facelift) - SELDUR

BÍLLINN ER SELDUR!!!


Image

Framleiddur 19. september 2000 (MY2001 facelift, semsagt framljós, stuðari, stýri, widescreen sjónvarp o.fl.)

Helsta ástæða sölu er að þó þetta sé alveg ótrúlegur bíll þá held ég að þetta sé ekki rétti bíllinn fyrir mig, M5 er eiginlega of mikill bíll, allt of mikið afl (þó það sé stundum svo dásamlegt 8) ). Kannski er ég bara meiri þristagaur og kannski of rólegur fyrir svona monster eins og M5 er. :lol:

Helstu "specs":

E39 M5 19.09.2000
5.0L V8 - 400hö @ 6600 rpm - 500NM @ 3800 rpm :shock:

Litur: Dökkblár (Carbonschwarz)
Ekinn: 122.400km
Felgur: 19" Miro type 359, 8,5" breiðar að framan og 9,5" að aftan
Dekk: General Exclaim UHP 245/35ZR19 að framan og 275/30ZR19 að aftan
Búnaður: sjá lista ("fæðingarvottorð") hér fyrir neðan
Skipti: Helst ekki en myndi etv. skoða minni BMW, t.d. E30 eða E36

Á þeim ca. 4700km frá því ég keypti bílinn er búið að dekra vel við hann. Til dæmis:

Inspection-II hjá B&L - standard inspection-II, skipt um alla vökva, afturfóðringar, ballanstangarenda, nýtt á loftkælingu o.m.fl.
Ný kúpling
Nýr rafgeymir
+ eitthvað smálegt tilfallandi


Er með nótur upp á ca. 400.000kr. fyrir ofangreindu. Auk þess á ég allar nótur/strimla fyrir eldsneytiskaupum (eingöngu 98okt og V-Power) ásamt kílómetratölum. Ég hef farið mjög vel með bílinn, ekkert þjösn eða læti og hef t.d. varla slökkt á spólvörninni (já ég veit.. alger synd fyrir svona tæki :-P )

Með þessu viðhaldi hér að ofan ætti bílinn að vera alger draumur í rekstri á næstunni. Til að nefna eitthvað sem á eftir að gera er að tveir fjarlægðarskynjarar, einn að framan og einn að aftan, eru bilaðir og þarf að skipta um, þetta hefur samt bara þau einu áhrif að þegar maður bakkar kemur smá píp fyrst og hættir svo. Væri löngu búinn að skipta um þetta ef Gunni formaður væri ekki að undirbúa group-buy á fjarlægðarskynjurum. ;-)

Smá klausa sem ég skrifaði um bílinn undir Bílar meðlima:

Þetta er alveg hreint ÓTRÚLEGT ökutæki á alla kanta, hvort sem það er afl, þægindi eða annað. Meiriháttar að hafa þetta afl alltaf allsstaðar, togar alveg hellling svotil hvar sem er á snúningssviðinu og alveg öskrast áfram og ótrúlega gaman að spretta úr spori. Sérstaklega tók ég eftir þegar maður fer að keyra út á landi hvað þessi bíll nýtur sín vel utan þéttbýlis, maður getur t.d. verið að krúsa í rólegheitunum í sjötta gír og étið upp heilu bílaraðirnar án þess að þurfa endilega að skipta niður og vera með einhver læti (þó það sé vissulega gaman!), millihröðunin er alveg mögnuð. Og þægindin að krúsa á milli Rvk og Ak með hraðastillinn á hóflegum hraða, það liggur við að maður leggi sig bara á leiðinni! Sem dæmi þá hefur leiðin á milli Reykjavíkur og Akureyrar verið tekin non-stop í bæði skiptin sem við höfum farið á bílnum.

Bensíneyðslan/notkunin hefur verið mjög svo hógvær og jafnvel aðeins lægri en ég bjóst við. Það lægsta sem ég hef séð tölvuna sýna er 10,2 á leiðinni Ak-Rvk með krúskontrol nær alla leið, lítil traffík og fáir sprettir. Þessir 10,2 eru rétt um 11,0 raunnotkun ef ég mæli sjálfur. Og svo í venjulegum innanbæjarakstri (Mos-Rvk) er hann að jafnaði í tæpum 18 á tölvunni sem eru um tæpir 19 í raunnotkun. Þetta finnst mér bara nokkuð gott miðað við þennan pakka sem ///M5 er, allir þessir lítrar og hestöfl! :-)

Hér er svo búnaðarlistinn, "fæðingarvottorðið":

- - - - - -

Litur: CARBONSCHWARZ METALLIC (416)
Innrétting: WALK NAPPA/SCHWARZ (M3SW)
Framleiðsludagur: 2000-09-19

Aukabúnaður:
Nr. Lýsing
265 TIRE PRESSURE CONTROL (RDC) - Skynjar ójafnan dekkjaþrýsting
320 MODEL DESIGNATION, DELETION - ///M5 merki fjarlægð (eru komin aftur á)
326 REAR SPOILER, DELETION - Skottspoiler fjarlægður (er kominn aftur á)
403 GLAS ROOF, ELECTRIC - Sóllúga
416 SUNBLINDS - Gardínur í hliðarrúðum afturí og afturrúðu (rafstýrð í afturrúðu)
428 WARNING TRIANGLE - Viðvörunarþríhyrningur með verkfærasettinu
441 SMOKERS PACKAGE - Öskubakkar (ekki reykt í bílnum í minni eigu og engin ummerki um reykingar)
465 THROUGH-LOAD SYSTEM - Niðurfellanleg aftursæti með armpúða og skíðapoka
508 PARK DISTANCE CONTROL (PDC) - Fjarlægðarskynjarar að framan og aftan
609 NAVIGATION SYSTEM PROFESSIONAL - GPS Leiðsögukerfi
620 VOICE INPUT SYSTEM - Raddstýrður sími og leiðsögukerfi
629 CAR TELEPHONE (GSM) W CARD READER FRONT - GSM sími á milli framsæta, kortarauf að framan, tekur stór SIM kort og virkar fínt
752 INDIVIDUAL AUDIO SYSTEM - Individual "M-Audio" hljóðkerfi
853 LANGUAGE VERSION ENGLISH - Tölva og annað stillt á ensku
863 EUROPE/DEALER DIRECTORY - Handbók með lista yfir BMW umboð í Evrópu (fylgir ekki með)
877 DELETION CROSS-OVER OPERATION - ???
886 DUTCH/OWNERS HANDBOOK/SERVICE BOOKLET - Hollensk handbók og þjónustubók (þjónustubókin er hollensk en handbókin er núna ensk)

Staðalbúnaður:
Nr. Lýsing
210 DYNAMIC STABILITY CONTROL (DSC) - DSC stöðugleikakerfi
216 SERVOTRONIC - Stýri misþungt eftir hraða, léttara á litlum hraða
249 MULTI-FUNCTION FOR STEERING WHEEL - Aðgerðastýri með rafstýrðri hæðastillingu og aðdrætti
302 ALARM SYSTEM - Þjófavörn
423 FLOOR MATS, VELOUR - Taumottur
430 INT/EXT RR VW MIRROR W AUT ANTI-DAZZLE - Speglar (innan og utan) með sjálfvirkum dimmer
459 SEAT ADJUSTM., ELECTR. W. MEMORY - Rafstýrð sæti með minni í bílstjórasæti
488 LUMBAR SUPPORT DRIVER/FRONT PASSENGER - Rafstýrður mjóbaksstuðningur í framsætum
494 SEAT HEATING F DRIVER/FRONT PASSENGER - Hiti í framsætum
500 HEADLIGHT WASHER SYS/INTENSIVE CLEANING - Þvottur á framljósum
520 FOGLIGHTS - Þokuljós
522 XENON LIGHT - Xenon aðalljós
534 AUTOMATIC AIR CONDITIONING - Sjálfvirk loftkæling
548 SPEEDOMETER WITH KILOMETER READING - Hraðamælir í metrakerfi (KM)
555 ON-BOARD COMPUTER - Aksturstölva
710 M LEATHER STEERING WHEEL - ///M leðurstýri
775 INDIVIDUAL ROOF-LINING ANTHRACITE - Anthracite toppklæðning
785 WHITE DIRECTION INDICATOR LIGHTS - Hvít stefnuljós

Viðbótarupplýsingar:
Nr. Lýsing
415 SUNBLIND FOR REAR WINDOW - Gardína í afturglugga
464 SKIBAG - Skíðapoki í aftursætum
473 ARMREST, FRONT - Armpúði á milli framsæta
602 ON-BOARD MONITOR WITH TV - Widescreen skjár (18:9) með sjónvarpi
774 INDIVIDUAL WOOD TRIM - "Individual" viðarlistar

- - - - - -

Og loks nokkrar myndir, meðal annars frá bílasýningu Kvartmíluklúbbsins þar sem hann fékk þann heiður að standa ásamt öðrum eðalvögnum á Kraftssvæðinu:

Image
Image
Image
Image

Author:  saemi [ Tue 22. Jul 2008 13:35 ]
Post subject: 

:shock:

Akkurru strax :!:

Author:  Raggi M5 [ Tue 22. Jul 2008 13:42 ]
Post subject: 

GEÐVEIKUR!!!!!

Author:  Tommi Camaro [ Tue 22. Jul 2008 17:11 ]
Post subject: 

klárlega svalati m5 á landinu

Author:  Alpina [ Tue 22. Jul 2008 18:12 ]
Post subject: 

Þessi bíll er ................MJÖG LÍIKLEGA.. seldur

Author:  finnbogi [ Tue 22. Jul 2008 19:03 ]
Post subject: 

Alpina wrote:
Þessi bíll er ................MJÖG LÍIKLEGA.. seldur


til þín :shock: ?

Author:  Jón Ragnar [ Tue 22. Jul 2008 19:24 ]
Post subject: 

Besta reason fyrir sölu sem ég hef heyrt :lol:

Author:  Steini B [ Tue 22. Jul 2008 19:39 ]
Post subject: 

Alpina wrote:
Þessi bíll er ................MJÖG LÍIKLEGA.. seldur

Einhverstaðar hefur maður séð þetta áður... :lol:



En þessi bíll er alveg :shock: 8) 8)

Author:  bjornvil [ Wed 23. Jul 2008 00:15 ]
Post subject: 

Steini B wrote:
Alpina wrote:
Þessi bíll er ................MJÖG LÍIKLEGA.. seldur

Einhverstaðar hefur maður séð þetta áður... :lol:



En þessi bíll er alveg :shock: 8) 8)


Haha, hugsaði nákvæmlega það sama :lol:

Author:  Tommi Camaro [ Sun 27. Jul 2008 23:29 ]
Post subject: 

hver keypti

Author:  Kristjan [ Sun 27. Jul 2008 23:39 ]
Post subject: 

Þessi var ekki lengi að fara.

Author:  iar [ Mon 28. Jul 2008 09:57 ]
Post subject: 

Tommi Camaro wrote:
hver keypti


Virkur meðlimur á spjallinu. ;-) Ekki spurning að bíllinn er í MJÖG góðum höndum!

Kristjan wrote:
Þessi var ekki lengi að fara.


Já líklega met á M5 amk. á þessu ári. :-P

Author:  Tommi Camaro [ Mon 28. Jul 2008 13:13 ]
Post subject: 

iar wrote:
Tommi Camaro wrote:
hver keypti


Virkur meðlimur á spjallinu. ;-) Ekki spurning að bíllinn er í MJÖG góðum höndum!

Kristjan wrote:
Þessi var ekki lengi að fara.


Já líklega met á M5 amk. á þessu ári. :-P
líka klárlega fáir sem er jafn vel búnir og flottir eins og þessi

Author:  Kristjan [ Mon 28. Jul 2008 14:10 ]
Post subject: 

Tommi Camaro wrote:
iar wrote:
Tommi Camaro wrote:
hver keypti


Virkur meðlimur á spjallinu. ;-) Ekki spurning að bíllinn er í MJÖG góðum höndum!

Kristjan wrote:
Þessi var ekki lengi að fara.


Já líklega met á M5 amk. á þessu ári. :-P
líka klárlega fáir sem er jafn vel búnir og flottir eins og þessi


þú mátt nú eiga það að þú gerðir þennan drullu flottan

Page 1 of 1 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/