bmwkraftur.is https://www.bmwkraftur.is/spjall/ |
|
E46 330xi. ///M Aerodynamics kit, Shadowline. https://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=10&t=30047 |
Page 1 of 3 |
Author: | Einsii [ Sun 08. Jun 2008 21:23 ] |
Post subject: | E46 330xi. ///M Aerodynamics kit, Shadowline. |
Við ætlum að láta Alpinuna duga í sumar, enda frekar sumarlegur bíll ![]() En það þíðir að þessi gullmoli verður að fara, Þetta er rosalega gott og þétt eintak af 330xi. 231 hestafl og 300 Newton metrar í gegnum fimm þrepa sjálfskyptinguna duga þessum bíl mjög vel og rúmlega það. Hann er snöggur upp léttur í frammúrakstri og mjög lipur og þægilegur í innanbæjar snattinu. Fjórhjóladrifið í þessum bílum er alger snilld og er þannig uppsett að á veginum lætur hann alveg eins ef ekki betur en venjulegur afturhjóladrifinn BMW (38%frammhjól 62% afturhjól). Svo í snjó, möl og grasi bara hvar sem er er hann sko allt annar en venjulegur BMW. Mikið meiri öryggistilfinning og líka gott að vita að maður þurfi ekki að hafa áhyggjur þó það kingi niður snjó um kvöldið, Maður kemst í vinnuna án nokkura vandræða daginn eftir ![]() Bíllinn er 2001 módel, liturinn er Cosmosschwarz Metallic hann er með M AERODYNAMICS Kiti og lip spoiler á skotti. Og hann er Shadowline Hann er ekinn 105.700,km hann er innfluttur af B&L á sínum tíma og hefur alltaf verið þjónustaður af BMW verkstæðum Það fylgja bílnum allir pappírar og bækur. Þjónustubókin er vel útfyllt og svo eru gömlu skoðunarskýrslurnar og hann hefur síðustu ár farið í gegn annaðhvort ath laust eða með 1 minniháttar aðfinnslu. Eins eru með honum öll skráningarskyrteinin, og er ég fjórði eigandinn. Bíllinn er mjög vel búinn, einsog: Fjórhjóladrif! Steptronic skypting Bakkskynjarar Regnskynjari Svart leður Sportstólar Rafdrifin sæti Upphituð framsæti Rafdryfnar rúður Rafdrifnir speiglar Rafdrifin gler topplúga Stafræn sjálfvirk miðstöð Loftkæling Harman Kardon hljómtæki, 12 hátalarar með tveimur bassahátölurum og 6CD magasín í skotti Cruise control Leðurklætt sportstýri Stýring fyrir cruise og hljómtæki í stíri Frjókornasía Aksturstölva Check tölva Spólvörn Skrikvörn Fjarstýrðar samlæsingar Létt dektar afturrúður Þjófavörn Þokuljós 17“ álfelgur með heilsársdekkjum Núna nýlega hefur verið skipt um klossa, diska, handbremsuborða, handbremsukjálka og fleira því fylgjandi að aftan og alternator er nýuppgerður, Rafgeymirinn er nýlegur. Þetta er langbesti bíll sem ég hef átt og með trega er hann til sölu vegna þess okkur langaði til að flippa aðeins í sumar og leika okkur á blæjubíl. Við höfum svo ekkert með tvo bíla að gera því ekki förum við að keyra þá báða í bæinn á hverjum deigi ![]() Auðvitað fylgja nokkrar myndir af honum, og jafnvel fleiri ef mönnum finnst eitthvað uppá vanta. Sigrún fékk smá flipp með myndavélina og fótosjopp ![]() ![]() ![]() ![]() ![]() ![]() ![]() ![]() ![]() ![]() ![]() ![]() ![]() ![]() ![]() ![]() ![]() ![]() ![]() Verðið eru 2 milljónir núna hvort sem kaupandi er að spá í að borga með peningum eða yfirtekur hluta af erlenda láninu sem hvílir á bílnum. Avant þarf bara að samþykja kaupanda ef það á að yfirtaka. Einar Ingi S: 617-1751 einar@midlari.is |
Author: | birkire [ Mon 09. Jun 2008 00:16 ] |
Post subject: | |
![]() Glæsileg auglýsing ! Mætti líma hana á toppinn hérna sem gott dæmi ![]() Gríðarlega eigulegur bíll, getur ekki verið annað en að hann fari fljótlega á þessum díl. |
Author: | Einarsss [ Mon 09. Jun 2008 00:18 ] |
Post subject: | |
vá ... hef aldrei séð jafn flottar sölumyndir ![]() |
Author: | demi [ Mon 09. Jun 2008 01:11 ] |
Post subject: | |
vá hvað þetta er góð auglýsing, langar alltaf meira og meira í bílinn þegar ég rúlla yfir myndirnar !! |
Author: | siggik1 [ Mon 09. Jun 2008 01:56 ] |
Post subject: | |
demi wrote: vá hvað þetta er góð auglýsing, langar alltaf meira og meira í bílinn þegar ég rúlla yfir myndirnar !!
sammála, bsk væri ísingin á ísinn ef ég hefði áhuga á að fá mér bíl með láni væri þessi málið |
Author: | íbbi_ [ Mon 09. Jun 2008 06:47 ] |
Post subject: | |
flottur þessi vel búinn og smekkleg valinn, og með þjónustuna á hreinu. |
Author: | Misdo [ Mon 09. Jun 2008 10:03 ] |
Post subject: | |
mig langar svo í svona bíl ef maður ætti bara aurinn ![]() |
Author: | HAMAR [ Mon 09. Jun 2008 10:20 ] |
Post subject: | |
Fylgja einhverjar kassettur með bílnum ? ![]() Glæsilegur bíll hjá þér og flott auglýsing, verst að frúin leyfir mér ekki að kaupa hann ![]() Gangi þér vel með söluna. |
Author: | Einsii [ Mon 09. Jun 2008 15:39 ] |
Post subject: | |
HAMAR wrote: Fylgja einhverjar kassettur með bílnum ?
![]() Glæsilegur bíll hjá þér og flott auglýsing, verst að frúin leyfir mér ekki að kaupa hann ![]() Gangi þér vel með söluna. Ég fann nú um daginn þegar ég var eitthvað að skoða gamalt drasl, kassetu sem hét Trans Dans 3.. Öruklega eðal tónar með Corona og Haddaway þar ![]() |
Author: | Helgi Steinar [ Tue 10. Jun 2008 13:39 ] |
Post subject: | |
Edlilega flott auglýsing hjá Einari, enda kominn med reynslu a ad selja bilana syna eftir manadar eign =) Geggjadur bill og gedveikt ad keyra hann! ![]() |
Author: | peter [ Tue 10. Jun 2008 17:44 ] |
Post subject: | |
Einstaklega fallegur og góður bíll ! Gaman að aka þessu ! btw flott auglýsing einar ! ![]() |
Author: | Einsii [ Thu 19. Jun 2008 16:01 ] |
Post subject: | |
Bíllinn var að koma úr smuri.. Svona ef einhver hefur áhuga á að vita það ![]() |
Author: | Einsii [ Sun 22. Jun 2008 22:54 ] |
Post subject: | |
Ég gæti skoðað skipti á ódýrara... |
Author: | Einsii [ Thu 26. Jun 2008 10:32 ] |
Post subject: | |
Þar sem eyðslutölur hafa verið ræddar soltið uppá síðkastið og hækkandi bensínverð hefur sjálfsagt áhrif á bílaval ætla ég að setja inn þær tölur sem tölvan er að sýna mér. Tek það fram að venjulega er ég að keira bílinn kanski 70% utanbæjar. Allavega blandaður akstur á venjulegum deigi (Akstur utanbæjar 100-110km/h og snatt innanbæjar, í og úr vinnu og búðarferðir... ) Tölvan seigir 9,8L/100km í dag Pjúra innanbæjar þegar ég var inn á Akureyri í einhverjar vikur í vetur. 13,3-13,8L/100km Keyrsla suður á þessum venjulega utanbæjarhraða 8,5-9L/100km Það er einhver munur á því hvort það er ég eða konan að keyra.. Ég hef svolítið þyngri fót. ![]() |
Author: | Einsii [ Tue 01. Jul 2008 17:41 ] |
Post subject: | |
Rosalega þétt og flott eintak! |
Page 1 of 3 | All times are UTC |
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group https://www.phpbb.com/ |