bmwkraftur.is
https://www.bmwkraftur.is/spjall/

e30 318i '88 árgerð
https://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=10&t=29267
Page 1 of 1

Author:  burgerking [ Mon 05. May 2008 09:06 ]
Post subject:  e30 318i '88 árgerð

Jæja.. ég verð víst að bíða með einhverjar project hugmyndir og selja :cry:

Anyways þá er þetta e30 druzlan mín.. það er lítið sem ekkert ryð í honum, nýbúinn að pússa allt boddí og grunna og mála, (rúllaði hann með vélarlakki vegna aðstöðuleysis til að sprauta, á samt svart lakk + herði sem dugar á allan bílinn.. kostaði um 25þús kall (keypti það í síðasta mánuði), get látið það fylgja með..)

Grunar sterklega að olíudælan hafi farið í honum og þar að leiðandi hætt að smyrja vélina og hann drap á sér.. þannig að ég er ekki viss hvað er mikið skemmt. (grunar að vélin sé bara ónýt)

Annars er hann ekinn eitthvað um 195þúsund
Beinskiptur
Tau áklæði með einhverju svona pleður drasli breiddu yfir
Álfelgur á heillegum dekkjum
Vöðvastýri 8)
Nýbúinn að skipta um drif í honum (tók drifið úr e30 hjá valla)
2dyra
Surtuð nýru
Ég er örugglega að gleyma einhverju... en þá er bara að koma og skoða..

Málið er að það var keyrt í bílstjórahurðina á honum fyrir löngu síðan, ég keypti nýjar hurðar með rafmagni í rúðum.. en er ekki búinn að tengja rafmagnið bílstjóramegin, og á til rafmagnsmótor í hina hurðina líka (sem er reyndar í hurð sem myndi bara fylgja með) þannig að það er ekki hægt að opna rúðuna bílstjóramegin fyrr en að þetta er tengt. Ég á takkana til að setja í miðjustokkinn en ekki gaurinn sem maður stingur takkanum í..

En já þetta er bara týbísk e30 drusla sem er nánast ryðlaus (tók nánast allt innanúr honum þegar ég keypti hann og ég sá ekkert ryð í gólfinu..)

Hérna er ein mynd af honum eftir að ég málaði hann..

Image

Endilega bara skjóta á mig tilboðum.. hægt er að fá að koma og skoða bílinn í lindasmáranum.. vera bara í bandi í síma 8234929 ef áhugi er fyrir hendi..

Author:  burgerking [ Mon 05. May 2008 12:48 ]
Post subject: 

Jæja mundi eitthvað meira sem ég var búinn að gera fyrir hann hehe..

Nýjar bremsuslöngur að framan
Nýjir stýrisenda að framan
Nýr rafgeimi í hann
Skipti um olíupönnu
ofl sem ég man ekki í augnarblikinu ;)

Author:  arnibjorn [ Mon 05. May 2008 13:26 ]
Post subject: 

Hann er með snake eyes!!

Bannað að gleyma því 8) 8)

Author:  Axel Jóhann [ Mon 05. May 2008 15:28 ]
Post subject: 

Er hann með 07 skoðun?

Author:  burgerking [ Mon 05. May 2008 20:30 ]
Post subject: 

Axel Jóhann wrote:
Er hann með 07 skoðun?

endurskoðun "5" .... útaf stillingu aðalljósa. hægra ljósið var of neðarlega.. buinn að hækka það en átti eftir að fínstilla og fara svo og fá fulla skoðun :wink:

Author:  ellipjakkur [ Tue 06. May 2008 18:36 ]
Post subject: 

hvað viltu fá fyrir hann ?

Author:  burgerking [ Wed 07. May 2008 07:22 ]
Post subject: 

er ad hugsa um 80kallinn fyrir hann..

Author:  burgerking [ Sat 07. Jun 2008 04:29 ]
Post subject: 

Seldur

Page 1 of 1 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/