bmwkraftur.is
https://www.bmwkraftur.is/spjall/

BMW 523ia 08/1999 -Seldur-
https://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=10&t=29072
Page 1 of 2

Author:  Wolf [ Sun 27. Apr 2008 14:13 ]
Post subject:  BMW 523ia 08/1999 -Seldur-

Til sölu þessi prýðisvagn:

BMW 523ia framleiddur í ágúst 1999. Ekinn 153K

Vél: M52B25 (þ.e 6 cyl lína 2.5L 170hp)

Litur: Cosmosswartz metallic

Skipting: Sjálfskiptur

-Topplúga

-Klimatronic

-Svört leðurinnrétting (mjög vel farin)

-BMW business kasetta (enginn CD)

-Þjónustubók

-Innfluttur notaður, er ekki skráður tjónabíll.

-Bíllinn er í góðu ástandi og hefur fengið gott viðhald, m.a eru nýlegar spyrnur að framan, diskar og klossar að framan og fleira sem ég man ekki nákvæmlega í augnablikinu. Ég keypti bílinn af Bjarka hjá BogL og hann var búinn að skipta um dempara að framan og e-h fleira.

-Bíllinn er nýsmurður og skoðaður "10"

-Helstu gallar: Lakk er ekki gott og þarf aðhald hér og þar, frammdekk eru ekki góð, bíllinn er skuldlaus.

-Góð Michellin vetrardekk á stáli fylgja.


Ásett verð: 990,- Þúsund (ekkert áhvílandi) ATH skipti á ódýrari.

Maggi s: 660-4096 eða 891-8277

mao@visir.is
-EP


Image
Image
Image

Author:  Einaro [ Sun 27. Apr 2008 20:46 ]
Post subject: 

Image

Image

Image

Flottur eðalvagn.

Author:  Frikki [ Tue 29. Apr 2008 12:16 ]
Post subject: 

Langar alveg sæmilega í þennan, mjög flottur

Author:  shagrath133 [ Tue 29. Apr 2008 17:27 ]
Post subject: 

jahááá.. hvað er hann í hp og hve stór vél er í honum??

Author:  DABBI SIG [ Tue 29. Apr 2008 17:36 ]
Post subject: 

Virkar virkilega smekklegur bíll og BARA gott verð á þessu!
Wolf wrote:
-Helstu gallar: Lakk er ekki gott og þarf aðhald hér og þar,

Lakkið lítur nú út í fjarska að vera í lagi...?

Author:  Tommi Camaro [ Tue 29. Apr 2008 21:09 ]
Post subject: 

bara gott verð á þessum :!:

Author:  Wolf [ Thu 01. May 2008 18:10 ]
Post subject:  .

Takk fyrir hlýleg komment strákar :) Mér finnst lang best að setja bara á bílinn svona uþb það lægsta sem maður getur hugsað sér að fá fyrir hann, og reyna að sleppa öllum prútt leikjum. En þó ef einhver sómakær og myndarlegur aðilli sýnir áhuga á að greiða bílinn útí hönd, má ræða 5-10% stgr afslátt.


Lakkið er alls enginn hryllingur en það þarf að nostra við það á stöku stað. Bíllinn er ekki allur í rispum og kústaður, en það er kominn ryðbóla á skottlokið den slags.

Author:  Wolf [ Tue 06. May 2008 20:06 ]
Post subject:  ..

Heilmikill bíll fyrir peninginn :!: Prísinn er bara svipaður því sem er verið að setja jafn gamla 316-318 E46

Er til í að skoða skipti á þokkallegum E36 316-318 og e-h fleira....

Author:  shadow [ Sun 11. May 2008 02:53 ]
Post subject: 

Hvað er hann að eyða?

Hefuru athugað hvort þú getir sett lán á hann?

Author:  totihs [ Sun 11. May 2008 03:17 ]
Post subject: 

shadow wrote:
Hvað er hann að eyða?

Hefuru athugað hvort þú getir sett lán á hann?



Færð ekkert hefbundið bílalán eða bílasamning á svona gamlan bíl.

Eina í stöðunni væri að taka bara bankalán eða sambærilegt, það er bara hrylliega dýrt.

Author:  Fjarki [ Sun 11. May 2008 14:56 ]
Post subject: 

totihs wrote:
shadow wrote:
Hvað er hann að eyða?

Hefuru athugað hvort þú getir sett lán á hann?



Færð ekkert hefbundið bílalán eða bílasamning á svona gamlan bíl.

Eina í stöðunni væri að taka bara bankalán eða sambærilegt, það er bara hrylliega dýrt.


hvaða endemis vitleysa eða hvað?? Kannski eitthvað snúið þessa dagana eins peningamál eru í landinu en það hefur ekki verið neitt mál að fá bílalán eða samning þó bíllinn sé þetta gamall eða eldri hingað til. Þó kannski eitthvað strembnara núna. En örugglega allt hægt.

Flottur bíll hér á ferð..

Kv, Kristján

Author:  shadow [ Sun 11. May 2008 16:12 ]
Post subject: 

Fjarki wrote:
totihs wrote:
shadow wrote:
Hvað er hann að eyða?

Hefuru athugað hvort þú getir sett lán á hann?



Færð ekkert hefbundið bílalán eða bílasamning á svona gamlan bíl.

Eina í stöðunni væri að taka bara bankalán eða sambærilegt, það er bara hrylliega dýrt.


hvaða endemis vitleysa eða hvað?? Kannski eitthvað snúið þessa dagana eins peningamál eru í landinu en það hefur ekki verið neitt mál að fá bílalán eða samning þó bíllinn sé þetta gamall eða eldri hingað til. Þó kannski eitthvað strembnara núna. En örugglega allt hægt.

Flottur bíll hér á ferð..

Kv, Kristján


Einmitt ;)

Veit allavega um tvö frekar nýleg dæmi þar sem menn eru að fá 100% lán á '99 árg af bíl...

Author:  Wolf [ Mon 12. May 2008 19:47 ]
Post subject:  .

Ég spurði þjónustustjórann í Landsbankanum út í þetta, þ.e hvort hægt væri að fá ca 70% lán á bílinn. Hún talaði við SP sem er í samstarfi við Landsbankann meðan ég var þarna. Því miður er ENGINN möguleiki á að fá lán á bílinn. Enn sem komið er er ég líka bara búinn að fá skipti tilboð í bílinn.

Author:  Wolf [ Thu 12. Jun 2008 21:12 ]
Post subject:  ..

Gott verð miðað við margt annað :drunk:

Author:  Huffins [ Thu 12. Jun 2008 22:03 ]
Post subject: 

Þú vilt ekki skoða þetta? :) http://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?t=21711

Page 1 of 2 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/