bmwkraftur.is
https://www.bmwkraftur.is/spjall/

E28 520i '82 fornbíll til sölu!
https://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=10&t=26153
Page 1 of 3

Author:  arnibjorn [ Mon 10. Dec 2007 10:50 ]
Post subject:  E28 520i '82 fornbíll til sölu!

Gaur sem ég er að vinna með á þennan bíl og ég er að auglýsa fyrir hann.

þetta er grár 520i
Árgerð '82
keyrður ~130-140þkm
Bíllinn er beinskiptur en EKKI sjálfskiptur eins og ég hélt fyrst
Tveir eigendur frá upphafi
Ekkert ryð
Vélin er góð
Innréttingin er heil

Skráður sem forbíll þannig það eru engin bifreiðagjöld og tryggingar eru fáránlega lágar.

Verð: Tilboð bara, eigandinn er ekki viss hvað hann vill fá.

Ég skal reyna redda myndum.

Ég er bara milliliður fyrir eigandann, sendiði mér bara PM ef þið eruð með spurningar og ég skal miðla þeim áfram.

Author:  einarornth [ Mon 10. Dec 2007 11:44 ]
Post subject: 

Er ekki auðveldasta leiðin til að selja e28 bara að hringja í SRR? :wink:

Author:  arnibjorn [ Mon 10. Dec 2007 11:50 ]
Post subject: 

einarornth wrote:
Er ekki auðveldasta leiðin til að selja e28 bara að hringja í SRR? :wink:


Búinn að senda honum PM :lol:

Verst að hann er búinn að setja M30 vélina sína ofaní annan bíl... þessi hefði verið kjörinn! 8)

Author:  ///M [ Mon 10. Dec 2007 12:35 ]
Post subject: 

er græjan skoðuð og á vetrardekkjum?

Author:  arnibjorn [ Mon 10. Dec 2007 12:51 ]
Post subject: 

///M wrote:
er græjan skoðuð og á vetrardekkjum?


Ég man ekki hvort hann er með 07 eða 08 skoðun, skal kíkja þegar ég fer aftur í vinnunna.

Og hann er á vetrardekkjum og það fylgja sumardekk með held ég.

Og já bíllinn er beinskiptur EKKI sjálfskiptur eins og ég hélt fyrst

Author:  Aron Andrew [ Mon 10. Dec 2007 13:35 ]
Post subject: 

Er þetta bíllinn sem var alltaf fyrir utan Samskip?

Author:  arnibjorn [ Mon 10. Dec 2007 13:54 ]
Post subject: 

Aron Andrew wrote:
Er þetta bíllinn sem var alltaf fyrir utan Samskip?


Var/er já :)

Author:  arnibjorn [ Mon 10. Dec 2007 15:12 ]
Post subject: 

Kíkti inní bílinn áðan og var að reyna sjá km stöðuna og mér sýndist þetta vera annað hvort 15x.xxx eða 25x.xxx :?

Þarf að fá þetta á hreint... eingandinn virðist ekki vita mikið um hann og notar hann ekki mikið :lol:

Author:  Húni [ Tue 11. Dec 2007 17:35 ]
Post subject: 

PM sent

Author:  srr [ Tue 11. Dec 2007 22:24 ]
Post subject: 

arnibjorn wrote:
einarornth wrote:
Er ekki auðveldasta leiðin til að selja e28 bara að hringja í SRR? :wink:


Búinn að senda honum PM :lol:

Verst að hann er búinn að setja M30 vélina sína ofaní annan bíl... þessi hefði verið kjörinn! 8)

Hey, ég á núna aðra M30B35 8)

Ég vil fá verð á þennan bíl í PM!

Author:  srr [ Tue 11. Dec 2007 22:27 ]
Post subject: 

Annað, myndin sem ég póstaði af bíl fyrir utan Samskip fyrir tæpu ári síðan....
Þetta er ekki sami bíll.
Hann er 518i '87.
Ég á þá ekki myndir af þessum bíl.

Gætir þú reddað myndumaf honum Árni ?

Author:  arnibjorn [ Wed 12. Dec 2007 10:41 ]
Post subject: 

Ég skal reyna redda myndum af bílnum í vikunni! Ætlaði að koma með myndavél með í vinnuna í dag en gleymdi því!

En bíllinn er ekinn 25x.xxx km.. eigandinn var að rugla eitthvað fyrst.

En bíllinn er allur MJÖG solid og er skoðaður 08!

Verðhugmyndin sem hann hefur er 200k

Hann er ekki hrifinn af því að fara mikið neðar en það.

En það er í lagi að prútta. :wink:

Author:  srr [ Wed 12. Dec 2007 11:14 ]
Post subject: 

200.000 ?? :shock:
Þetta þarf að vera nokkuð góður bíll fyrir þann pening.
Leður, lúga etc?

Author:  arnibjorn [ Wed 12. Dec 2007 11:18 ]
Post subject: 

srr wrote:
200.000 ?? :shock:
Þetta þarf að vera nokkuð góður bíll fyrir þann pening.
Leður, lúga etc?


Eigandinn talaði um hann vildi helst fá 200k en bíllinn verður ekki seldur ef hann fær ekki amk 150k fyrir hann :)

Þá ætlar hann bara að eiga hann áfram. Eina ástæðan fyrir að hann er að selja er sú að hann er að fara flytja til Englands og hefur þess vegna ekkert við bílinn að gera.

Það er ekki leður bara gífurlega heil ljós tau innrétting og ég man ekki með lúgu.

Author:  srr [ Wed 12. Dec 2007 12:31 ]
Post subject: 

Eiga hann áfram ef hann ætlar að flytja til Englands?
Flytja hann þá út eða geyma bara ?

En 200.000 er hátt verð myndi ég segja.
Sæmi seldi 528 með leðri og öllu á svipaðan pening fyrir ári síðan.
Það er réttlætanlegra.

Page 1 of 3 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/