bmwkraftur.is
https://www.bmwkraftur.is/spjall/

BMW 540iA E39 * SELDUR
https://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=10&t=24714
Page 1 of 1

Author:  Danni [ Thu 04. Oct 2007 06:55 ]
Post subject:  BMW 540iA E39 * SELDUR

Til sölu er 1999 árgerð af BMW 540iA E39

* Rann út úr verksmiðjunni í Dingolfing þann 31. ágúst 1999, ný orðinn 8 ára gamall.
* Cosmosschwarz-metallic (303)
* Ekinn 201.000 km
* Ljósbrúnt leður
* Orginal þjófavörn
* Shadowline
* Topplúga (ATH. EKKI GLER OG ÓVIRK)
* Velour gólfmottur fylgja og líka gúmmímottur
* Niðurfellanleg aftursæti
* Barnasessur í aftursætum (hægt að lifta upp sessunum)
* Mjóbaks stuðningur í framsætum (ATH. ÓVIRKT Í BÍLSTJÓRASÆTI)
* Bakkskynjarar
* Sími (númer með inneign getur fylgt ef óskað er eftir því, óskráð)
* HiFi Loudspeaker system
* M Sport fjöðrun
* Svört toppklæðning
* 6 Diska geisladiskamagasín í skotti.

Svo er auðvitað staðalbúnaðurinn sem er í E39 540:

* Steptronic
* Dynamic Stability Control (DSC)
* Viðarlistar í innréttingu
* Þokuljós
* Sjálfvirk loftkæling
* Cruise Control
* On Board Computer
* Radio BMW Business


Um bílinn:
Ég keypti þennan bíl í Ágúst 2006 eða fyrri rúmu ári síðan. Þá var hann með ónýtar spyrnufóðringar að framan, skakkar felgur, ónýtan knastásskynjara, pre-facelift framljós og ónýt facelift afturljós.
Ég lagaði allt nema felgurnar, ég ætlaði að laga þær en sá sem setti nýju felgurnar undir setti ekki miðjuhringi þó að hann tók eftir að þá þurfti, og það leyddi til þess að felgurnar urðu strax skakkar svo ég var kominn á sama stað í þeim málum aftur. Ég borgaði mikinn pening fyrir felgurnar en hef ekki enn keypt aðrar eða látið gera við þessar. Ég var bara alltaf á leiðinni með að gera það en lét aldrei verða úr því. það eru samt vetrardekk á þeim felgum, þær eru 17".

Ég er búinn að setja á bílinn facelift framljós með angel eyes hringjum og facelift afturljós með fjórum led röndum. Innan í bílnum er ég búinn að setja cupholder í staðinn fyrir hólfið á hjá miðjustokknum. Það fór líka alternator í honum einhverntímann á þessu ári sem ég hef átt hann og ég skipt um hann og setti nýjan í staðinn.

En það sem er að bílnum núna eru semsagt felgurnar. Þær eru skakkar og þær titra. Svo er topplúgan líka óvirk. Það sem gerðist var að bíllinn tjónaðist smávægilega á framenda í sumar, alls ekki mikið og eini body hlutur sem þurfti að skipta um útaf því var húddið. Svo er ég að keyra brautina einn daginn, búinn að fara með bílinn á verkstæði og þeir búnir að kíkja á og laga húddið og segja mér að allt væri í lagi, þegar húddið fýkur upp. Framrúðan og topplúgan eyðilögðust við þetta. Skipt var um framrúðu, toppurinn málaður og B&L setti saman eina topplúgu úr 2 en eyðilögðu mótorinn (neit samt að viðurkenna og það er ekkert sem ég get gert í því þar sem ég hef ekkert sem sannar að mótorinn var í lagi nema bara að ég veit það, en það gildir víst ekki). Þannig að til að klára að laga topplúguna núna þarf bara nýjan mótor og að setja í samkvæmt B&L. Ég ætla mér ekki að gera það nema sú staða kemur upp að ég á bílinn ennþá næsta vor, þar sem topplúgan er tilgangslaus á veturna. Ég er búinn að henda rúmum 450þúsund kr. í viðgerðarkostnað útaf toppinum nú þegar og það er bara alveg nóg í bili.

Held að það sé ekki meira um bílinn að segja. Er vonandi ekki að gleyma neinu þar sem mitt markmið er að vera eins hreinskilinn og hægt er. Kaupandi á að vita hvað hann er að kaupa. Bíllinn selst ný-smurður og er með skoðun 08.

Image
Image
Image
Image
Þessar myndir voru teknar 11. september á þessu ári. Ipod adapterinn fylgir og nótur fyrir tækinu og ísetningu frá Nesradio eru til. Ipodinn fylgir samt ekki.

EDIT: Var að setja led perur í angel eyes hringina:
Image
Image

Verð: 1.666.937 ISK
Ákvílandi: 1.366.937 ISK

Lánveitandi: Lýsing, 56 þús á mánuði, 19 greiðslur af 48 búnar. Engin vanskil og ekkert vesen.

Það sem ég vill sem sagt fá fyrir bílinn er 300þúsund í pening og yfirtöku á láni. Mér liggur ekki mikið á að selja bílinn svo hann fer á þessu verðu og ekki krónu minna. Ég er til í að taka einhvern góðan bíl með skoðun 08 uppí.

Hægt er að hafa samband við mig í síma 867-5202 og ef ég svara ekki þá senda SMS og ég hringi til baka.

Author:  Gunnar Hnefill [ Thu 04. Oct 2007 11:54 ]
Post subject: 

Góð Auglýsing :D en já varstu ekki búnað gera eitthvað fyrir pústið ?

Author:  Svenni Tiger [ Thu 04. Oct 2007 12:32 ]
Post subject: 

fallegur.is :shock:

Author:  Astijons [ Thu 04. Oct 2007 13:44 ]
Post subject: 

ertu alltaf svona óheppinn?
ertu kallaður Andrés Önd??

Author:  Danni [ Thu 04. Oct 2007 19:53 ]
Post subject: 

Gunnar Hnefill wrote:
Góð Auglýsing :D en já varstu ekki búnað gera eitthvað fyrir pústið ?

Takk fyrir. Jú ég gleymdi að taka það fram. Ég er búinn að láta taka resonatorinn úr og annan hljóðkútinn. Þeir fylgja báðir með samt. Eru búnir að vera í geymslu á góðum stað inn í skúr :)

Astijons wrote:
ertu alltaf svona óheppinn?
ertu kallaður Andrés Önd??

Hver er sinnar gæfu smiður. Þetta hefði getað verið mikið minna vesen ef ég hefði ekki tryggt hjá Vís :lol:

Author:  Danni [ Thu 04. Oct 2007 23:12 ]
Post subject: 

Var að setja nýjar led perur í Engel eyes hringina. Þannig núna fylgja þessar perur með bílnum og 3stk af orginal til vara!

Myndir í fyrsta pósti.

Author:  Danni [ Tue 09. Oct 2007 14:01 ]
Post subject: 

TTT

Author:  Danni [ Wed 10. Oct 2007 17:28 ]
Post subject: 

Þá er þessi elska seld! Nýjir og spennandi tímar framundan á 330D!


En það var samt erfitt að sleppa gamla góða 540 :(

Author:  Alpina [ Wed 10. Oct 2007 18:26 ]
Post subject: 

Danni wrote:
Þá er þessi elska seld! Nýjir og spennandi tímar framundan á 330D!


En það var samt erfitt að sleppa gamla góða 540 :(


330D

alveg í lagi

Author:  Bjorgvin [ Wed 10. Oct 2007 21:44 ]
Post subject: 

Danni wrote:
Þá er þessi elska seld! Nýjir og spennandi tímar framundan á 330D!


En það var samt erfitt að sleppa gamla góða 540 :(


Innilega til lukku með söluna og kaupin á nýjum bíl :wink:

Held satt að segja að ég sé hættur við að selja þennan E39 eftir fyrsta kvöldið.... Svakalega solid bíll...... 8)

Kveðja

Author:  Danni [ Thu 11. Oct 2007 00:30 ]
Post subject: 

Bjorgvin wrote:
Danni wrote:
Þá er þessi elska seld! Nýjir og spennandi tímar framundan á 330D!


En það var samt erfitt að sleppa gamla góða 540 :(


Innilega til lukku með söluna og kaupin á nýjum bíl :wink:

Held satt að segja að ég sé hættur við að selja þennan E39 eftir fyrsta kvöldið.... Svakalega solid bíll...... 8)

Kveðja


Gott að þú ert ánægður með hann. Vona að hann mun reynast þér eins vel og hann reyndist mér ;)

Ég lenti í því tvisvar að hætta við að selja hann útaf því einu að keyra hann. Þetta eru álög :oops:

Page 1 of 1 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/