Bíllinn:
BMW 330D Touring (E46)
Skráning:
17.10.2001 (facelift bíll)
Akstur:
193 þús km
Litur:
Silfurgrár
Skipting:
Ssk með tiptronic
Vél:
3.0 lítra diesel vél sem skilar 184 hestöflum
Helsti búnaður: Rafmagn í rúðum(frammí og afturí), rafmagn í speglum, sætin eru klædd leðri og tau, mælaborðið er svart með álrönd efti því miðju og í kringum skiptingu, leðurklætt stýrishjól, gírhnúður og armpúði á milli sæta, baksýnisspegill er með sjálfvirkri "dimmingu" þegar ljós skína beint á hann, loftkæling, hiti í sætum með þremur hitastillingum, aksturstölva, spólvörn og skrikvörn, hundanet í afturhillu, 17" BMW álfelgur með góðum heilsársdekkjum 225/45R17.
Þjónustubók frá upphafi fylgir með bílnum og er hún með öllum stimplum frá þjónustuverkstæðum BMW í Þýskalandi og frá TB og B&L hérna heima Bíllinn er skoðaður til október 2008 athugasemdalaust.
Bíllinn er að fara inn til B&L þann 22 október í sprautun og ýmsar viðgerðir þar sem ég fékk drasl af vörubíl framan á bílinn fyrir skemmstu. Þar verður framstuðarinn sprautaður og skipt um svarta listann á honum, skipt um kastara, skipt um öll plöst undir bílnum, skipt um bremsudiska og klossa að framan ásamt því að laga eina hagkaupsbeyglu aftan á bílnum. Einnig fær hann nýja númeraplötu að framan. Stefnan hjá mér að fara með felgurnar uppí pólýhúðun til að sandblása þær og sprauta aftur.
Áhvílandi á bílnum er myndkörfulán að upphæð 2.429.000 frá Avant og er afborgun af því 46 til 48 þús á mánuði. Bíllinn fæst gegn yfirtöku áhvílandi láns.
Þar sem ég er að íhuga kaup á öðrum bíl og vil selja þennan fyrst þá býð ég 150 þús krónur með bílnum sem þýðir frían akstur í 3 mánuði fyrir viðkomandi sem kaupir hann.. ENGIN SKIPTI MIÐAÐ VIÐ ÞETTA...
Fyrir frekari upplýsingar sendið pm eða tölvupóst í
bjorgvinp@internet.is
Kveðja