bmwkraftur.is https://www.bmwkraftur.is/spjall/ |
|
Til sölu 518i E34, 100þús með krók! SELDUR https://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=10&t=24640 |
Page 1 of 1 |
Author: | saemi [ Sun 30. Sep 2007 19:12 ] |
Post subject: | Til sölu 518i E34, 100þús með krók! SELDUR |
Til sölu þessi fíni Winter Beater! Bíllinn er ekinn 17X.XXX þúsund. Lazurblau metallic með ljósgráu plussi að innan. Góðir punktar: Samlæsingar sem virka! Sætishitari Krókur Rafmagn í rúðum Miðstöðin lekur EKKI, skipt var um elementið inni í henni Geislaspilari. Ekki ryðgaður í döðlur ABS, já .. ekki algengt á 518i Nýjir bremsudiskar að framan. Órifin innrétting, mjög falleg! Slæmir punktar: Lakkið er ekkert agalega fallegt. Bíllinn er fjarskafallegur en er sko ekki að fara á sýninguna á Bíladögum á næsta ári! Ég tók smá session á honum til að fríska upp á hann. Það helsta er beyglað bretti að framan h/m og stuðarinn að framan beygður aðeins upp. Hann lenti í smá stuði þarna í sumar hjá einni... ![]() Handbremsan virkar eiginlega ekkert. það þarf sennilega að skipta um diska og borða að aftan svo hún virki. Ekki búið að fara með hann í skoðun Tikkar svolítið í vél Gírkassinn gæti verið frískari, snuðar ekkert, bara svona maður finnur að það albesta er farið úr honum Gírskiptingin er sloppy Grunar að drifskaftsupphengjan sé orðin slöpp Ég nenni ekki að vera að telja þetta allt upp og afsaka í hvert skipti sem einhver kemur að skoða. Ef þessir slæmu punktar eru of slæmir fyrir ykkur sem lesið þetta, verið þá ekkert að kíkja á þetta meira. Ég er bara að reyna að lýsa bílnum eins og hann er. Þetta er fínn beater, góður gangur og fyrir e-n sem vantar bíl með krók er þetta fínn kostur. Ég myndi skipta um afturdiska áður en ég færi með hann í skoðun. Hef varla tíma í meira svo ég ætla að reyna að losna við hann svona. Verðið er 120 þúsund. Það er með vetrardekkjum á álfelgum (sem líta út eins og stálfelgur) og koppum. Hægt að semja um að fá hann á álfelgum og vetrardekkjum fyrir 10 þúsund í viðbót. Bíllinn kemur með ábyrgð á vél/gírkassa og drifi. Ef það fer innan árs, þá færðu annað notað í staðinn ![]() Sæmi 699-2268/smu@islandia.is |
Author: | srr [ Sun 30. Sep 2007 22:59 ] |
Post subject: | Re: Til sölu 518i E34, 100þús með krók! |
saemi wrote: Bíllinn kemur með ábyrgð á vél/gírkassa og drifi. Ef það fer innan árs, þá færðu annað notað í staðinn
![]() Betri notaðir bílar hjá Sæma ![]() |
Author: | zazou [ Sun 30. Sep 2007 23:11 ] |
Post subject: | Re: Til sölu 518i E34, 100þús með krók! |
srr wrote: saemi wrote: Bíllinn kemur með ábyrgð á vél/gírkassa og drifi. Ef það fer innan árs, þá færðu annað notað í staðinn ![]() Betri notaðir bílar hjá Sæma ![]() (((BARA))) í lagi ![]() |
Author: | arnibjorn [ Sun 30. Sep 2007 23:12 ] |
Post subject: | |
Hvort er hann á 100þúsund eða 120þúsund? |
Author: | saemi [ Mon 01. Oct 2007 01:22 ] |
Post subject: | |
Hahaha, góður. Gleymdi mér aðeins þarna (fyrisögnin var smá villandi þarna hjá mér) Eiginlega er hann á 120 þangað til það er búið að prútta hann niður í 100. Þannig að ef þú prúttar ekkert, þá færðu hann á 100. Annars er það 120 og við sættumst á 100 ![]() |
Author: | saemi [ Tue 02. Oct 2007 22:27 ] |
Post subject: | |
SELDUR |
Author: | Bandit79 [ Wed 03. Oct 2007 00:31 ] |
Post subject: | |
Argh!!! ætlaði að skella mér á hann ef minn myndi seljast fljótlega En svona gengur þetta og gerist Hammó með söluna ![]() |
Author: | saemi [ Wed 03. Oct 2007 05:34 ] |
Post subject: | |
Danke ![]() |
Page 1 of 1 | All times are UTC |
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group https://www.phpbb.com/ |