bmwkraftur.is
https://www.bmwkraftur.is/spjall/

E30 325i Coupe shadowline, SELDUR
https://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=10&t=24030
Page 1 of 5

Author:  Geirinn [ Fri 31. Aug 2007 11:20 ]
Post subject:  E30 325i Coupe shadowline, SELDUR

Þessi bíll er til sölu.

Image

BMW 325i Coupe
Númer: PT596
Árgerð 1989
Lachsilber metallic
MtechII kit
Strutbrace að framan
Pluss áklæði (ökumannssæti mjög slitið)
Samlitir speglar
Shadowline + svört nýru
Samlituð stefnuljós að aftan
Nýleg smókuð framljós (keypt á Schmiedmann)
Nýlegur rafgeymir (70 Ah minnir mig)
Svartur toppur
Lækkaður 60/40
EKKI LSD
Ekinn 305.xxx

ABS (bilað)
Álfelgur 7,5x16" að framan og 9x16" PowerTec / brockbb1 replicas
Toyo dekk, mjög heil að aftan, lítið eftir af framdekkjunum.

7,5x16" að framan og 9x16"að aftan.

215/45/16 að framan og aftan og því eru afturfelgurnar GERMAN STYLE. Afturfelgurnar eru djúpar.

Rafmagns sóllúga
Rafmagn í speglum (bilað)
Sportsæti
Vökvastýri
Ógeðslegt race stýri

Sony CDX-F7710 MP3/CD
Frammí: Sony X-plod CS-V1641H hátalarar
Afturí: Rockford fosgate 6x9" hátalarar
Magnari
2x12" JBL keilur í boxi

Það sem er að:
Rammar í báðum sætum frammí brotnir.
Samlæsing opnar en læsir ekki, það þarf að læsa bílstjórahurð innanfrá.
Húddið er beyglað.
Innrabretti aftaná, hægra meginn er ryðgað.
Bensíntankur lekur, þó ekki mikið.
Ryð í töppum í gólfi.
Olía lekur með ventlalokspakkningu.
Skynjarinn fyrir hraðamælinn dettur inn og út (væntanlega eitthvað sambandsleysi).
Hægra framdekkið á það til að leka lofti þar sem ég keyrði á stein. Felgan er viðgerðarhæf þar sem hún er örlítið beygluð, sést varla.
Mtech II kittið er ekki á bílnum, ég er byrjaður að vinna það, lítur vel út, svuntan er rifin á 2 stöðum og ekkert mál að laga það, það vantar einhverjar smellur.

Það sem ég hef látið gera:
Tímareim og strekkjari (286.xxx)
Viftureimar
Pakkdósir á vél, báðar litlu og stóra
Ventlalokspakkning og ventlastilling (þrátt fyrir þetta þá fór hún aftur)
Skipti um miðjustokk og lét í staðinn stokk með hólfi
Skipti um rúðuupphalarann sem var brotinn
Vatnslás
Vatnsdæla
Kveikjuhamar
Kveikjulok
Kerti
Lausagangurinn lagaður (eitthvað slönguógeð sem var ekki nógu gott)
Skipti um bremsuklossa að aftan
Shortshifter og nýjar fóðringar í gírkassa
Drifskaptsupphengja
Nýr gírhnúður

Ekkert mál er að fá að skoða bílinn og prófa.

Ég vildi setja þetta upp þannig að menn vita u.þ.b. að hverju þeir eru að ganga.

350.000 kr er verðið.

SÍMI 6945343 eða EP. Endilega hringið og hittið.

Author:  Geirinn [ Fri 31. Aug 2007 11:23 ]
Post subject: 

Ég gleymdi að taka það fram að nýjir, ónotaðir poly mótorpúðar geta fylgt með eða selst sér.

Author:  Einarsss [ Fri 31. Aug 2007 11:29 ]
Post subject: 

Virkilega flottur bíll og verðið er bara í lagi!

Author:  mattiorn [ Fri 31. Aug 2007 11:34 ]
Post subject: 

nýlegri myndir?

Author:  Geirinn [ Fri 31. Aug 2007 11:40 ]
Post subject: 

mattiorn wrote:
nýlegri myndir?


Á ekkert nýrra en þetta, ég bendi á að KITTIÐ er ekki á bílnum, það er bara racelímband í staðinn. Kittið selst að sjálfsögðu með :wink:

Author:  Einarsss [ Fri 31. Aug 2007 12:19 ]
Post subject: 

Ha er það ekki á ? afhverju?

Author:  Geirinn [ Fri 31. Aug 2007 12:22 ]
Post subject: 

einarsss wrote:
Ha er það ekki á ? afhverju?


Eins og stendur í auglýsingunni þá er ég búinn að taka það af til þess að pússa það niður fyrir sprautun :)

Author:  Einarsss [ Fri 31. Aug 2007 12:29 ]
Post subject: 

úpps örruglega það eina sem ég las ekki í auglýsingunni

Author:  fleon [ Fri 31. Aug 2007 14:32 ]
Post subject: 

klikkað flottur bíll :O ég vil fá fleirri myndir.

Author:  Geirinn [ Fri 31. Aug 2007 14:37 ]
Post subject: 

fleon wrote:
klikkað flottur bíll :O ég vil fá fleirri myndir.


Hringdu í mig og fáðu að skoða hann ef þú hefur áhuga á kaupum.

Author:  Uvels [ Sat 01. Sep 2007 13:20 ]
Post subject: 

looks nice,and price too is wery good :wink:

Author:  Geirinn [ Sat 01. Sep 2007 16:26 ]
Post subject: 

Sá sem hringdi í mig í gær má endilega vera í bandi aftur.

Til í að sýna bílinn í dag, sem og aðra daga :lol:

Author:  HPH [ Sat 01. Sep 2007 16:31 ]
Post subject: 

kíktu upp á braut á morgunn þarg geta fleiri skoðað hann og þar er hann líka á heimavelli. :wink:

Author:  gstuning [ Sat 01. Sep 2007 16:52 ]
Post subject: 

þetta er gefins,
ef ég væri ekki að fara út myndi ég alvarlega pæla í að kaupa þetta eintak,
fá sér smá turbo í viðbót :)

Author:  Einarsss [ Sat 01. Sep 2007 16:59 ]
Post subject: 

gstuning wrote:
þetta er gefins,
ef ég væri ekki að fara út myndi ég alvarlega pæla í að kaupa þetta eintak,
fá sér smá turbo í viðbót :)



haha nkl


Ég væri alveg til í að kaupa hann bara af því verðið er svo gott!

*telj peninga*

Page 1 of 5 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/