bmwkraftur.is https://www.bmwkraftur.is/spjall/ |
|
BMW 750iL ´92 til sölu UPPFÆRT! https://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=10&t=2212 |
Page 1 of 3 |
Author: | basten [ Sat 02. Aug 2003 10:05 ] |
Post subject: | BMW 750iL ´92 til sölu UPPFÆRT! |
Bimminn minn er til sölu og nú á hann að seljast. Bíllinn er ekinn 194 þús km og er vélin í góðu standi og skiptingin er öll endurnýjuð. Hann er með buffalo-leðri, topplúgu, cruise control,air-bag, A/C og nánast öllu sem hægt er að hafa í bílnum. Þetta er svokallaður "Shadowline" Bimmi og eina krómið á honum eru nýrun. Bíllinn er svona dökkblár-fjólublár á litinn Hann er reyndar á ljótum 15" BMW felgum. Uppfært. Hann er ekki lengur á ljótum felgum heldur er hann kominn á 18 orginal BMW felgur með Pirelle P-Zero dekkjum. Ef menn vilja heldur er séns að hann verði afhentur með 17" Alpina felgum, en gallinn við það er að miðjurnar vantar. Verð er 750 þús. stgr. Verð erl. þangað til 23.6. þannig að þangað til er hægt að senda mér e-mail eða Pm hérna á spjallinu. Uppl. í síma 847-4747, Siggi siggijoi@yahoo.com ![]() ![]() ![]() ![]() |
Author: | Alpina [ Sun 03. Aug 2003 16:44 ] |
Post subject: | |
ekkert að þessu verði Sv.H |
Author: | Haffi [ Sun 03. Aug 2003 17:28 ] |
Post subject: | |
Ekki vera feiminn..... myndir! |
Author: | basten [ Mon 04. Aug 2003 16:10 ] |
Post subject: | |
Ég skal reyna að setja inn mynd af honum fljótlega. Ég gleymdi hinsvegar að minnast á það að ég gef góðan staðgreiðsluafslátt af bílnum (hann verður að fara, var að kaupa íbúð) ![]() |
Author: | basten [ Tue 12. Aug 2003 01:10 ] |
Post subject: | |
Bimminn er að fara í yfirhalningu í vikunni þar sem skipt verður um framdempara og gorma að aftan og ýmislegt annað smotterí lagað. Í fyrra var skipt um bremsudiska og klossa allan hringinn auk þess sem skiptingin var tekin upp og skipt um allt innvolsið í henni. Einnig var þá skipt um flestar pakkningar á vélinni. Þessi bíll er, að mínu mati, góð kaup. Þegar bíllinn kemur úr yfirhalningunni mun ég setja myndir af honum inn á vefinn. Verðið á honum er sem áður 770 þús og er negotiable. Siggi |
Author: | Guest [ Tue 12. Aug 2003 23:39 ] |
Post subject: | |
basten wrote: auk þess sem skiptingin var tekin upp og skipt um allt innvolsið í henni.
Bara að forvitnast, er þetta 750iAL ? Fæst þetta kannski eingöngu sjálfskipt ![]() ![]() PS. Flott simanr. |
Author: | basten [ Wed 13. Aug 2003 06:47 ] |
Post subject: | |
Já þetta er 750iAL, finnst samt óþarfi að taka "A-ið" fram, auk þess sem það stendur 750iL aftan á honum. Svo er líka V12 merki að aftan (kannski óþarfi líka) |
Author: | benzboy [ Wed 13. Aug 2003 10:34 ] |
Post subject: | |
basten wrote: Svo er líka V12 merki að aftan (kannski óþarfi líka)
Ef það er V12 merkið sem ég sá aftan á svona bíl um daginn og kannast ágætlega við af hliðunum hjá mér finnst mér það talsvert meira en óþarfi ![]() |
Author: | Schulii [ Wed 13. Aug 2003 14:04 ] |
Post subject: | |
benzboy wrote: basten wrote: Svo er líka V12 merki að aftan (kannski óþarfi líka) Ef það er V12 merkið sem ég sá aftan á svona bíl um daginn og kannast ágætlega við af hliðunum hjá mér finnst mér það talsvert meira en óþarfi ![]() Ég skil þig ekki alveg benzboy, ertu að meina að þetta emblem sé frá mercedes?? ef svo er skil ég hvað þú meinar |
Author: | benzboy [ Wed 13. Aug 2003 17:15 ] |
Post subject: | |
Já það er best að skýra þetta aðeins nánar. Svona til að byrja með vil ég taka fram að þetta er ekki diss á BMW. Ég sá s.s. 750 bíl um daginn sem var með V12 merki á skottlokinu (veit ekki hvort það var þessi). Það var Mercedes merki (leiðréttið mig endilega ef þið eruð ekki sammála). Málið er að þessi merki eru mjög auðþekkjanleg á því að V-ið rennur eiginlega saman við 1 á þeim (kemst því miður ekki inn á ebay til að linka á mynd af þessu en þetta er alltaf til sölu þar) auk þess sem ég veit ekki til þess að BMW hafi verið að merkja bíla með þessu. Mér finnst þetta svona álíka asnalegt og að setja Chevy kross á Ford |
Author: | Djofullinn [ Wed 13. Aug 2003 17:34 ] |
Post subject: | |
Það er reyndar hægt að fá V12 merki á BMW sem líta alveg eins út og 323i merkin etc. |
Author: | iar [ Wed 13. Aug 2003 17:45 ] |
Post subject: | |
Og svona til að halda áfram að tala um eitthvað allt annað en þennan ágætis bíl sem er hér til sölu þá sýnist mér nýji 760iL bíllinn komi með V12 merki á frambrettinu (veit ekki hvort það er standard eða option). http://www.canadiandriver.com/articles/pw/03760li.htm http://newsmotoring.news.com.au/dailyte ... 02,00.html |
Author: | GHR [ Wed 13. Aug 2003 20:30 ] |
Post subject: | |
BMW eru líka að selja V12 merki, mörgum finnst þau bara of stór og hæfa bílunum ekki nógu vel og þess vegna kaupa margir V12 merki frá Mercedes ![]() ![]() |
Author: | benzboy [ Wed 13. Aug 2003 21:56 ] |
Post subject: | |
BMW 750IA wrote: BMW eru líka að selja V12 merki, mörgum finnst þau bara of stór og hæfa bílunum ekki nógu vel og þess vegna kaupa margir V12 merki frá Mercedes
![]() ![]() Auðvitað á maður bara að fá sér það sem manni finnst snyrtilegt og fallegt sjálfum en þó ég sé nú ekki beinlínis meðlimur í stock police finnst mér bara of langt gengið að vera með emblem af öðrum bílategundum |
Author: | basten [ Wed 13. Aug 2003 23:30 ] |
Post subject: | |
Það er alveg rétt hjá þér að V12 merkið hjá mér er frá MB. Það var á bílnum þegar ég fékk hann og ég hef ekki þorað að taka það af bílnum þar sem ég veit ekki hversu lengi það hefur verið á bílnum. Svo hefur sá sami og setti V12 merkið sett alveg eins merki á stokkinn við sjálfskiptinguna (svoldið overkill). ![]() En bíllinn er hinsvegar góður og lofa ég að setja myndir þegar búið er að skvera bílinn af. Þá skora ég á menn að hafa samband við mig og taka testdrive á honum (ég varð allavega veikur þegar ég prófaði hann fyrst) ![]() |
Page 1 of 3 | All times are UTC |
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group https://www.phpbb.com/ |