bmwkraftur.is https://www.bmwkraftur.is/spjall/ |
|
E34 525i - BEINSKIPTUR - loaded >SELDUR< https://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=10&t=19433 |
Page 1 of 3 |
Author: | Logi [ Tue 09. Jan 2007 15:28 ] |
Post subject: | E34 525i - BEINSKIPTUR - loaded >SELDUR< |
BMW 525i kom af færibandinu 14.09.1992. Litur: STERLINGSILBER METALLIC (244) Innrétting: SCHWARZ LEDER (0203) Afgreiddur með eftirtöldum búnaði: 209 LIMITED SLIP DIFFERENTIAL (25%) – læst drif 245 STEERING COLUMN ADJUSTMENT ELEC – rafmagnfærsla á stýri (upp og niður, fram og aftur). Eini E34 sem ég veit um með þessum búnaði 291 BMW LM SCHMIEDERAD/KREUZSPEICH - líklegast verið afgreiddur með 15" cross spoke felgum 314 HEATED WINDSCREEN WASHER NOZZLES – upphitaðir rúðusprautu stútar 339 SATIN CHROME – ekkert króm nema nýrun 401 SLIDING/VENT ROOF, ELECTRIC – rafmagnstopplúga 411 WINDOW LIFTS, ELECTRIC – rafmagn í rúðum 415 SUNBLIND FOR REAR WINDOW – gardína í afturglugga 423 FLOOR MATS, VELOUR – taumottur (original var skipt út 2004) 428 WARNING TRIANGLE – viðvörunarþríhyrningur 458 SEAT ADJUSTMENT, ELECTRIC. F DRIVER/PASS – rafstillt sæti ökum. og farþ. 465 THROUGH-LOAD SYSTEM – niðurfellanleg aftursæti 481 SPORT SEATS F DRIVER/FRONT PASSENGER - sport sæti frammí 494 SEAT HEATING F DRIVER/FRONT PASSENGER – hiti sætum 498 HEADRESTS IN REAR, MECHANIC. ADJUSTABLE – hauspúðar afturí 500 HEADLIGHT WASHER SYS/INTENSIVE CLEANING – þvottakerfi fyrir aðalljós og þokuljós 510 HEADLIGHT BEAM-THROW CONTR. F LOW BEAM - ??? 520 FOGLIGHTS - þokuljós 534 AUTOMATIC AIR CONDITIONING – sjálfvirk loftkæling 553 ON-BOARD COMPUTER IV W REMOTE CONTROL - aksturstölva 564 INTERIOR LIGHT PACKAGE – inniljósapakki (lesljós frammí og afturí) 571 BOOSTED POWER SUPPLY – stærri alternator 660 BMW BAVARIA REVERSE RDS – BMW kassettutæki (hefur verið skipt út fyrir Blaupunkt) 676 HIFI LOUDSPEAKER SYSTEM – Hifi hátalarakerfi 704 M-SPORT SUSPENSION – M fjöðrun (nýir Bilstein-sport demparar og BavAuto gormar settir í fyrir ári síðan) 708 M-SPORT LEATHER STEERING WHEEL II – M-tech II sport stýri 801 GERMANY VERSION – Þýskalandsútgáfa (skráður hér á landi 07.06.2004) 945 BERUECKS. PREISABHAENGIGKEIT - ??? Auk þess búnaðar sem talinn er upp hér að ofan eru í bílnum aftengjanlegur dráttarkrókur og fjarstýrðar samlæsingar. Bæði original BMW! Einnig leðurgírhnúður. Skúra-Bjarki flutti bílinn inn og seldi í júlí 2004, ég keypti svo bílinn í lok des. 2004. Síðan þá er ég búin að skipta um dempara, gorma, púst (miðjukút og aftasta), stýrisenda, neðri spyrnurnar báðum megin og efri bílstjóramegin að framan, ventlalokspakkningu og kannski eitthvað fleira smotterí sem ég man ekki... Bíllinn fór í hjólastillingu í desember og þá var einnig skipt um olíu á drifinu. Í síðustu viku skipti ég um bremsudiska og klossa að framan. Þessi eðalvagn er búinn að vera í góðu viðhaldi frá upphafi (þjónustubók fylgir að utan). Eigendur í þýskalandi voru fjórir. Fyrst BMW sem átti bílinn í tæpt ár, svo maður fæddur ’59 í tæp 4 ár næst maður fæddur ’46 í rétt rúmt ár og svo að lokum maður fæddur ’39 í 5 ár. Þegar ég eignaðist þennan var hann ekinn 194 þús, en stendur núna í 234 þús km. Þrátt fyrir það er hann í toppstandi, mótorinn brennir ca 1 lítra af olíu á milli olíuskipta (nota 5w40 Shell) og gírkassinn er eins og nýr! Mældist 200 hö og 240nm í dyno hjá TB 2005. Bíllinn er núna á negldum Good-Year dekkjum af stærðinni 205/65-15. Slatti af nöglum og mjög gott grip. Felgurnar eru BMW Styling 14 (framleiddar af BBS) 15x7” Sumarfelgurnar er BMW Styling 5 (BBS) 17x8”. Dekkin voru keypt síðasta vor, ekin ca 10 þús BFGoodrich g-Force Sport 235/45-17. Myndir sem ég fann í fljótheitum: ![]() ![]() ![]() ![]() Verð 650.000 Nánari uppl. Hér eða í ep. |
Author: | gstuning [ Tue 09. Jan 2007 15:46 ] |
Post subject: | |
291 BMW LM SCHMIEDERAD/KREUZSPEICH Crossspoke felgur |
Author: | Logi [ Tue 09. Jan 2007 16:11 ] |
Post subject: | |
gstuning wrote: 291 BMW LM SCHMIEDERAD/KREUZSPEICH
Crossspoke felgur Thank you! Þetta hefur verið uppfært |
Author: | Danni [ Tue 09. Jan 2007 16:35 ] |
Post subject: | |
SKIPTI????????? |
Author: | Logi [ Tue 09. Jan 2007 16:38 ] |
Post subject: | |
Danni wrote: SKIPTI?????????
Það má skoða það, skiptir öllu hvað um er að ræða! |
Author: | ///M [ Tue 09. Jan 2007 16:45 ] |
Post subject: | |
Keyptiru ekki ný háspennukefli í hann í usa? ![]() ![]() |
Author: | gunnar [ Tue 09. Jan 2007 17:35 ] |
Post subject: | |
Þetta er ekki mikið verð ![]() |
Author: | saemi [ Tue 09. Jan 2007 17:35 ] |
Post subject: | |
Þetta er BARA flottur bíll. Eins og ég hef sagt áður, þá er þetta besta blanda af performance og budget bíl sem ég veit um. Eyðir litlu og sæmilega kraftmikill. Þessi samsetning af aukahlutum er líka einstaklega smekkleg. Viðhaldið frábærlega vel. Ég persónulega myndi velja milli 525i, M5 og 540i ef ég ætlaði að fá mér E34. Þessi hefur klárlega vinninginn varðandi eyðslu ![]() |
Author: | Alpina [ Tue 09. Jan 2007 17:42 ] |
Post subject: | |
Jafnvel miðað við ansi nýlegan bíl er þetta ...svo... fásinnu vel búinn bíll að engu tali tekur að þylja það upp ps......92 E34------>> rafmagn í stýri ![]() ![]() ![]() án vafa einn albest aukahluta-búni E34 sem komið hefur til landsins að mínu viti,, man eftir 525 IX 4d ,bsk, sem var einnig með stóra pakkanum í einu og öllu |
Author: | Djofullinn [ Tue 09. Jan 2007 18:34 ] |
Post subject: | |
Hef skoðað þennan bíl hjá Loga og er hann verulega flottur! Mjög skemmtilega búinn líka |
Author: | aronjarl [ Tue 09. Jan 2007 21:40 ] |
Post subject: | |
langar í þennan bíl mjöög mikið.. ![]() ![]() |
Author: | moog [ Tue 09. Jan 2007 22:30 ] |
Post subject: | |
Bara flottur bíll. Fékk að prófa hann þegar Skúra-Bjarki var að selja hann og er þessi bíll virkilega góð blanda af lúxus og krafti. M50 vélin er gríðarskemmtileg. Gangi þér vel með söluna ![]() |
Author: | X-ray [ Wed 10. Jan 2007 03:55 ] |
Post subject: | |
571 BOOSTED POWER SUPPLY – ??? = stærri altinator... til þess að fæða rafbúnaðinn í bílnum hjá þér... er með sama hjá mér í E32 any ways geggjaður bíll... akstur sem einginn þarf að hafa áhyggjur af þessir bílar verða bara betri með aldrinum... |
Author: | Knud [ Wed 10. Jan 2007 04:21 ] |
Post subject: | |
Hef oft séð þennan, lítur vel út minn E34 540 er líka með þessum rafmagnsfærslum í stýri ![]() |
Author: | Logi [ Wed 10. Jan 2007 12:22 ] |
Post subject: | |
Var að fatta það núna að það vantar CRUISE CONTROL á fæðingarvottorðið ![]() |
Page 1 of 3 | All times are UTC |
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group https://www.phpbb.com/ |