Jæja ætla aðeins að kanna viðbrögðin sem ég fæ, er ekkert æstur í að selja.
E36 316i '95
Ég eignaðist hann í Júní 2005 og var hann þá ekinn 125 þús km.
Núna er hann ekinn ~142 þús.
Ég hef hugsað um hann gjörsamlega eins og barnið mitt, bónað mjög reglulega og læt hann sjaldann sjást skítugann.
Síðan ég keypti hann er ég búinn að endurnýja mjög margt, td.:
Dempara og gorma allann hringinn
Frammljós, Depo angel eyes
Aftur ljós, Depo hvít/rauð
Stefnuljós, glær og einnig frá Depo
Það er ný viftureim og viftureimarhjól
Nýr gírhnúður
og alveg hellingur fleira
Bíllinn er á 17" bjahja felgum og á 215/45/17 dekkjum á sumrin, og einnig fylgja með 15" vetrarfelgur á nagladekkjum.
Undir framstuðaranum er svunta sem er minnsta mál í heimi að kippa undan yfir veturinn, en gerir hann alveg hrikalega flottann
Hann er samlitur, og var sprautaður að stórum hluta seinasta haust vegna grjótbarnings og hagkaupsdælda. Frammendinn var svo sprautaður nýlega vegna tjóns sem ég lenti í, og var viðgerðin á því 100% og allt keypt nýtt í bílinn. Öll sprautun fór fram í alvöru sprautunarklefa, ekkert bílskúrsbrask hér á bæ
Liturinn á bílnum heitir Moreagrün Metallic og er mjög fallegur original BMW litur.
Það eru filmur í 7 rúðum frá ICE og þær eru í pottþéttu standi eins og við er að búast af þeim ICE mönnum.
Innréttingin er svört, og sætin eru ekki leðruð.
Þessi bíll hefur reynst mér ótrúlega vel, og er örugglega einn besti bíll sem hægt er að hugsa sér til að reka með skóla, eyðir litlu, aðeins um 10 lítrum innanbæjar og 6-8 lítrum í langkeyrslu.
Rúmar vinina líka vel á rúntinum og hentar mjög vel fyrir einhverja sem eru að fá bílpróf og koma til með að eyða næsta árinu á rúntinum
Ásett verð er
650 þúsund kr.
Ég bý í kópavogi ef menn vilja fá að skoða.
Nánari upplýsingar hér eða í síma 8696722
kv. Aron Andrew
Nokkrar myndir:
Á þessum myndum er hann á 16" felgum sem ég notaði bara til bráðabirgða, seljast ekki með nema um það sé samið sérstaklega.
Hérna eru svo nokkrar af honum á 17" felgunum.
15" felgurnar
