Til sölu er þessi glæsilegi bíll:
Hann er skráður 09.93 og ekinn núna tæpa 147þ km., beinskiptur, skoðaður '04 án athugasemda, ný dekk að framan ca 70% prófíll að aftan 17" dekk, ný smurður og nýjar spindilkúlur að framan beggja vegna. BMW specialisten skiptu um öðru megin en TB settu hina í, ég skrúfaði "control arminn" úr sjálfur. Einnig nýr rafgeymir. Bíllinn var að koma frá Þýskalandi og lakkið er því mjög gott. Ekki tjónabíll. Tveir eigendur úti 29 ára og 30 ára þegar þeir eignuðust hann og bíllinn var staðsettur í miðju landinu langt frá sjó og einnig mjög langt frá Ölpunum þannig að hann þekkir ekki salt. Bíllinn var afgreiddur frá BMW með eftirfarandi aukabúnaði:
Sportstýri
Topplúgu
Rafmagni í rúðum að framan
Sportsætum fyrir bílstjóra og farþega í framsæti
Hæðarstillingu á framljósum
Kösturum (þokuljósum)
Hitamæli og stafrænni klukku (lítil BoardComputer)
Inniljósapakka
HiFi hátalarakerfi
M Sportfahrwerk
Sérvalinn litur (Macaoblau-metallic) og samlitaður frá verksmiðju
Sérvalinn litur í loftið í dökkgráu
Þetta er toppbíll í mjög góðu standi hann steinliggur á 17" felgunum og er alltaf sprækur en eyðir ekki of miklu. Undir 9 utanbæjar en 11-12 innanbæjar eftir því hversu menn eru þungir á fótinn eflaust hægt að koma honum í 13. Allt sem við kemur kraminu er orginal þ.e. engar breytingar en útlitslega er búið að setja á hann dökkgrá stefnuljós að framan og á hliðarnar einnig eru samlitar augabrýr á honum. 225/45ZR17 að framan en 235/45ZR17 að aftan.
Ásett verð er 860þús að sjálfsögðu eins og hann með 17" felgunum!
Upplýsingar hjá mér í S: 895 7866 eða í gegnum einkapóst.
Bíllinn er einnig auglýstur í DV í dag 7. júní