bmwkraftur.is
https://www.bmwkraftur.is/spjall/

Nýupptekinn 1988 518i shadowline (E-28)
https://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=10&t=1595
Page 1 of 2

Author:  saemi [ Thu 29. May 2003 02:01 ]
Post subject:  Nýupptekinn 1988 518i shadowline (E-28)

Núna er bíllinn aftur til sölu, búið að gera við það sem var að honum.

BMW 518i shadowline 1988, ekinn 230.000km

Bíllinn er dökkgrásanseraður, af svokallaðri shadowline útgáfu þar sem ekkert króm er á bílnum sem venjulega var, t.d. á stuðurum og afturljósum (ofl.).

Buffalo leðurinnrétting (kemur úr 7-línu)
Sportstýri
Rafmagn í framrúðum
Topplúga
Samlæsingar
Snúningshraðamælir (var ekki staðalbúnaður)
Þokuljós
4x Álfelgur (BMW) með nýlegum sumardekkjum
4x Álfeglur (BMW)


1 eigandi frá upphafi!
Akureyrarbíll, svo til ekkert ryð!


Þessi bíll glansar eins og hann hafi verið keyptur í gær, jæja ókei, fyrradag þá. Nýlega búið að sprauta hann að framan (smá tjón) með nýju húddi og grilli (veit ekki um fleira sem var skipt um þá). Ég setti leðurinnréttingu í hann sem var upphaflega í 732i bíl en er búið að breyta fyrir E-28. Eins og að vera í sófasettinu heima, bara skemmtilegra.

Það sem er glænýtt í bílnum er:

Allt nýtt í bremsum að aftan (bremsuborðar, bremsuskálar ásamt handbremsubörkum).
Ný gúmmí í afturfjöðrun (subframe bushings)
Nýjir demparar að aftan
Nýskoðaður

Ég er með reikninga fyrir þessu öllu og það sést að þetta er nýtt. Þetta eru varahlutir upp á c.a. 40.000 kall (fyrir utan vinnu).


Þessi bíll fer aðeins fyrir sanngjarnt verð, sem er 250.000 þús. STGR. Annars hef ég þetta bara fyrir konubíl, alveg tilvalið dæmi. Eyðir engu og konan elskar leðursætin út af lífinu :P

Bíllinn er í RVK fyrir þá sem vilja skoða.

Sæmi 699-2268 smu@islandia.is

Author:  saemi [ Thu 29. May 2003 21:42 ]
Post subject: 

Image
Image
Image
Image
Image
Image
Image
Image
Image

Author:  Benzari [ Thu 29. May 2003 23:11 ]
Post subject: 

:drool: :drool: GLÆSILEGUR

Hlakka til að skoð'ann

Author:  Schulii [ Thu 29. May 2003 23:34 ]
Post subject: 

hvað er með þennan sæma.. á hann lager af þessum gömlu gullmolum??
(einn nýr)

Author:  saemi [ Fri 30. May 2003 00:01 ]
Post subject: 

... já .. þetta er sjúkdómur á lokastigi. Ég er að reyna að hætta, en þetta bara hleðst á mig :?

Sæmi safnari

Author:  Gunni [ Fri 30. May 2003 00:09 ]
Post subject: 

hehe þú hljómar eins og fíkill, er að reyna að hætta :burnout:

Author:  bebecar [ Fri 30. May 2003 09:42 ]
Post subject: 

Déskoti myndi þessi henta mér fínt - verst ég á ekki pening. Mér hefur alltaf fundist þessir E28 Shadowline flottir.

Author:  saemi [ Fri 30. May 2003 17:33 ]
Post subject: 

Pjeníng spjeníng... ! Það er aukaatriði í svona málum :lol:

Annars er ég eiginlega strax farinn að sjá eftir að hafa auglýst bílinn, maður ætti eiginlega að hafa hann fyrir konubíl sko :?

Sæmi

Author:  bebecar [ Fri 30. May 2003 19:29 ]
Post subject: 

Hvernig er það er ekki hægt að fá víkjandi lán hjá þér?

Author:  saemi [ Fri 30. May 2003 19:33 ]
Post subject: 

víkjandi lán... hvað er nú það! eitthvað ofan á brauð?

Author:  bebecar [ Fri 30. May 2003 20:08 ]
Post subject: 

Ég held að Steingrímur Hermansson hafi fundið það upp - mjög hentugt lán fyrir mig :wink:

Það virkar þannig að maður fær lán og byrjar ekki að borga af því fyrr en maður er búin að borga öll hin lánin (semsagt aldrei).

Það voru nokkuð mörg fyrirtæki á landsbyggðinni sem fengu víkjandi lán á sínum tíma.

Annars var ég að spá - viltu ekki bara eiga hann og selja hann svo í haust - ég á kannski frekar pening fyrir honum þá :D

Mig langar voðalega í hann og þetta hentar fullkomlega - versta er að ég tími varla að láta þennan hvíta og það væri purrrrrfect að eiga bæði þennan hvíta og svo 518 E28...

Author:  saemi [ Fri 30. May 2003 20:22 ]
Post subject: 

Jámm.. þú segir nokkuð.

Ég þarf að fara að íhuga þetta. Það virðist vera svo mikill áhugi fyrir bílnum sko! Hmmmm... Maður ætti bara að hækka verðið svo enginn vilji kaupa hann :P

Sæmi

Author:  bebecar [ Fri 30. May 2003 20:50 ]
Post subject: 

:lol:
En heyrðu, hvað varð um M535i bílinn sem þú ætlaðir að búa til?

Ég gæti vel hugsað mér að það væri mögulegt fyrir mig að svinga þessu í haust!

Author:  hlynurst [ Fri 30. May 2003 21:05 ]
Post subject: 

Þessi bíll er ótrúlega vel með farinn! Ættir að setja aðeins meira á hann vegna þess... Maður finnur ekki svona vel farinn bíl nú til dags á þessu verði. :?

Author:  saemi [ Fri 30. May 2003 21:47 ]
Post subject: 

hlynurst wrote:
Þessi bíll er ótrúlega vel með farinn! Ættir að setja aðeins meira á hann vegna þess... Maður finnur ekki svona vel farinn bíl nú til dags á þessu verði. :?


Mjámm.. þú segir nokkuð.. Ég er alveg að hallast á þá skoðun. Verst bara að ég álpaði þessu útúr mér. hehe

M535i bíllinn. Það er ekkert að gerast í því máli nei. Ég ætla fyrst að klára önnur dæmi (528i ásamt 745i) áður en ég fer að garfa í því.

Nú á ég bara 745i bílinn eftir :) Svo verður það M5 / M535i. Veit ekki ennþá alveg hvað ég ætla að gera! Það er svo freistandi að eiga þann grip barasta og nota hann sem fornbíl eftir 4 ár! Hversu kúl er það! Borga skít og kanil fyrir að keyra hann.

Var að spá í jafnvel að keyra hann bara í vetur sem M5 bíl og setja 518i merki aftan á hann. Það er bara svo mikill húmor sko. En.. ætli ég fari ekki út í eitthvað nýrra. Mig er farið að langa svolítið til þess. Nýjasti bíll sem ég hef átt ever er 1988 módel af E28!

Mig langar agalega í E34 M5 eða E39 V8 í haust!.. ég veit ég á bara ekki eftir að geta beðið þangað til með enter puttann!

Page 1 of 2 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/