bmwkraftur.is https://www.bmwkraftur.is/spjall/ |
|
1986 528i (E-28) - nýuppgerður. https://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=10&t=1594 |
Page 1 of 2 |
Author: | saemi [ Thu 29. May 2003 01:36 ] |
Post subject: | 1986 528i (E-28) - nýuppgerður. |
BMW 528i 1986. Þessi bíll var upphaflega 520ia, en var breytt í Maí 2003 í 528i. Ekinn um 180.000 km. Bíllinn er Grænsanseraður (Achatgrun) og lakkið er gott á honum. Hann hefur greinilega verið heilsprautaður einhverntíman fyrir ekki svo löngu, sennilega framtjón þar sem húddið er nýlegt. Ekkert stórt samt. Dökkgræn innrétting sem lítur mjög vel út. Leðursæti. Hvergi rifið úr sætum og innréttingin er mjög fín. Aksturstalva Sport stýri (leður í toppstandi) Dráttarkúla Krómbogar (ef þú vilt) Þokuljós. Litað gler (brúnt) Samlæsingar Vökvastýri (að sjálfsögðu) 8x álfelgur með dekkjum Diskabremsur að aftan Nýr Jensen CD spilari (ef bíllinn selst bráðlega og ég verð ekki búinn að setja hann í annan bíl) 4 gíra sjálfskipting Vélin er M30 2.8L, 184hö með L-jetronic innspýtingu. Ég tók þessa vél sjálfur upp fyrir u.þ.b. 30.000km síðan (1999). Skipti um stimpilhringi, sveifaráslegur, og stangarlegur. Heddið var tekið upp hjá Vélalandi. Allt varðandi rafkerfið var tekið í gegn (spíssarnir mældir, kaldræsibúnaðurinn yfirfarin, kveikjan yfirhöluð ofl). Allar hosur endurnýjaðar (BMW) í kæli- og vacuumbúnaði. Það er allt endurnýjað í bremsubúnaði og fjöðrun að aftan í bílnum, nýir handbremsubarkar, handbremsuborðar, hlífar að innanverðu sem bremsuborðarnir festast á, bremsudælur uppteknar (ný gúmmí og málaðar), nýjir gúmmípúðar í upphengju afturöxuls. Bremsur að framan eru í fínu standi. Pústið er í lagi, afturhluti mjög góður, fremsti kútur er verstur ásamt öðru rörinu úr pústgreininni. Það á eftir allavega 2 ár eða svo (kostar nýtt kannski 20.000 kall). Tvöfalt kerfi alveg afturúr. Ég skipti um innra bretti í bílnum (sauð nýtt í) þar sem það var eiginlega eini staðurinn sem ryð var í bílnum. Undirvagninn er góður og bremsu- bensínrör í fínu lagi. Framendinn fyrir neðan húdd er nýsprautaður, ásamt báðum frambrettum og framhurð v/m. Einnig er búið að laga örfáa ryðbletti sem voru á boddíinu. Bíllinn er nýskoðaður (29.05.03), með tveim athugasemdum. Það sem fannst að var brotið gler í þokuljósum, ásamt gúmmíi sem er rifið á einum stýrisenda. Bíllinn er samt með fulla skoðun, ekki endurskoðun. Bíllinn er í RVK fyrir þá sem vilja skoða. Fyrir þennan vagn ætla ég að fá 170.000.- STGR Sæmi 699 2268 smu@islandia.is |
Author: | arnib [ Thu 29. May 2003 01:56 ] |
Post subject: | |
Þú ert bara í gjafastarfsemi með þetta sæmi minn ![]() |
Author: | saemi [ Thu 29. May 2003 02:05 ] |
Post subject: | |
Láttu mig vita, það er búið að fara mánuður í þetta hjá mér! Ef ég ætti að rukka fyrir tímann sem það tók mig að gera þetta, þá færi þessi bíll sko ekki undir hálfri millu! ussussussss.. vetrarfríið fór bara bing í þetta ! Jæja, maður varð að gera þetta til að hreinsa til á lagernum, ekki hægt að vera með allt þetta drasl. En.. ég veit það þýðir ekkert að setja meira á þetta, þá selst þetta ekkert. Það er ekki eins og þetta sé nýtt eða Toyota ![]() Sæmi sveitti |
Author: | saemi [ Thu 29. May 2003 21:38 ] |
Post subject: | |
![]() ![]() ![]() ![]() ![]() ![]() ![]() ![]() ![]() ![]() |
Author: | Schulii [ Thu 29. May 2003 23:29 ] |
Post subject: | |
Skuggalega flottur bíll maður.. ég trúi ekki að það sé ekki hægt að fá meira fyrir hann.. shit maður, þá fæ ég ekki rassgat fyrir minn ![]() |
Author: | saemi [ Fri 30. May 2003 00:03 ] |
Post subject: | |
Æjj, en þessi bíll er samt fjarskafallegur. Það er svona eitt og annað sem mætti vera betra í honum. En.. samt fyrir þetta verð. Sæmi |
Author: | Haffi [ Fri 30. May 2003 00:54 ] |
Post subject: | |
URRRRRRRRRRRRRRRRRR það var því miður boðið of LÁGT í minn bíl í dag annars væri ég meira en maður í að kaupa hann! Auglýsi minn í helgarblaðinu þannig að ég ætti nú að losna við hann. Er þetta ekki topp bíll? Þorir alveg að selja hann innan klúbbsins ? ![]() |
Author: | Haffi [ Fri 30. May 2003 02:02 ] |
Post subject: | |
saemi wrote: Æjj, en þessi bíll er samt fjarskafallegur. Það er svona eitt og annað sem mætti vera betra í honum.
En.. samt fyrir þetta verð. Sæmi Hvað er það sem mætti vera betra í honum? Ég er reyndar að leita mér að E34 því að mér finnst nú SORP að keyra E36 miðað við E34 ![]() En mér finnst líka mjög gott að keyra E28 hef átt einn. E28 528ia 87 - ID-230 held að hann sé innan klúbbsins. |
Author: | saemi [ Fri 30. May 2003 05:43 ] |
Post subject: | |
Með fjarskafallegur meina ég nú bara útlitið. Ekki það að það sé eitthvað að honum, bara það er fullt af smotterí sem telur. Það verður bara að sjá bílinn til að skilja hvað ég meina. EN þetta er samt fínn bíll. Það er bara svona þgar maður er orðin pikkí eins og ég ![]() Sæmi |
Author: | saemi [ Sat 31. May 2003 17:03 ] |
Post subject: | |
Þetta tók ekki langan tíma. Bíllinn er seldur. Sæmi glaði |
Author: | hlynurst [ Sat 31. May 2003 17:31 ] |
Post subject: | |
Fyrsti farinn... nokkrir eftir. ![]() |
Author: | bebecar [ Sat 31. May 2003 20:27 ] |
Post subject: | |
Heitasta helv... Til hamingju með söluna, nú fer ég að svitna maður! Mig langar svo í 518 bílinn... Ertu heima á morgun? |
Author: | saemi [ Sat 31. May 2003 22:43 ] |
Post subject: | |
Hehehe, já ég er heima á morgun. Fer um hádegið, þú getur rennt við milli 10 og 11:30. Fer í ammælisboð um hádegið sko. Verð svo bissí fram á kvöld. Gettu hver á afmælið annars ![]() Sæmi |
Author: | bebecar [ Sat 31. May 2003 23:17 ] |
Post subject: | |
Vonandi færðu eitthvað nice í afmælisgjöf! ![]() Ég kíki við uppúr 10. |
Author: | saemi [ Sat 31. May 2003 23:30 ] |
Post subject: | |
Flott! P.S. það má alltaf gefa mér gamla BMW bíla .. ég er svolítið svag fyrir þeim.... |
Page 1 of 2 | All times are UTC |
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group https://www.phpbb.com/ |