bmwkraftur.is https://www.bmwkraftur.is/spjall/ |
|
BMW 730ia (735ia) 1991 E32 AA-397 SELDUR https://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=10&t=15083 |
Page 1 of 2 |
Author: | saemi [ Tue 18. Apr 2006 23:21 ] |
Post subject: | BMW 730ia (735ia) 1991 E32 AA-397 SELDUR |
BMW 730ia til sölu. Bíllinn var upphaflega 735ia, en var breytt um daginn í 730ia. Þetta er með nýrri bílum af þessarri týpu hér á landi, kemur á götuna 1991. Ekinn 213.000 Ljósgrár að lit, sanseraður. Númerið er AA-397, hefur verið auglýstur áður hér á spjallinu, því miður eru ekki neinar myndir ennþá hér sem ég fann. Ég er í smá vandræðum með að pósta myndum í augnablikinu en þær koma bráðlega. Bíllinn er frekar vel búinn. Svart leður, ekki með rafmagni. Allt órifið og í fínu standi. Skriðstillir, spólvörn, topplúga, ABS (þetta virkar allt). Svo eins og venjulega í þessum bílum er rafmagn í rúðum og samlæsingar, stóra aksturstölvan, valstilling á sjálfskiptingunni ofl. Bíllinn er með endurskoðun sem verður farin innan viku og það er búið að gera við eftirfarandi: Liðka upp bremsur að framan Nýtt í handbremsu, nýjir borðar og barkar Nýjar fóðringar í afturfjöðrun Nýjar pústupphengjur Nýjar balansstangafestingar Nýjir bremsuklossar Nýr kælivökvi Nýr bremsuvökvi Á aðeins eftir að herða á handbremsunni og svo fer ég með hann í skoðun aftur. Boddíið er mjög heilt, það er dæld á húddinu, það er það ljótasta við hann. Svo þarf að fara og bletta í eitt og annað, en að megninu til er lakkið fínt Hægt er að fá með honum 17" felgur, 10" að aftan og 8.5" að framan fyrir 40.000.- aukalega. Einhver dekk á þeim en ekkert til að hrópa húrra fyrir. Þetta eru svona Bjahja style felgur. Mjög djúpar að aftan og kúl felgur. Svo er líka hægt að semja um alls konar öðruvísi felgu og dekkjamál, ýmislegt í boði. Bottom line. Þetta er solid og efnilegur bíll. Það þyrfti að henda í hann 100.000.- eða svo til að gera hann alveg gullfallegan, en það er líka hægt að setja í hann 10.000.- kall, kaupa lakk og bón, hreinsa hann vel og þá er hann mjög snyrtilegur og fínn. Bíllinn selst á stálfelgum og koppum á 280.000.- Sæmi, 699-2268 /smu@islandia.is |
Author: | íbbi_ [ Tue 18. Apr 2006 23:42 ] |
Post subject: | |
hei gamli minn! er búið að breyta honum í 730? ![]() |
Author: | saemi [ Tue 18. Apr 2006 23:46 ] |
Post subject: | |
Já, við gerðum úr honum 730ia, því miður hálft í hvoru. Hann er núna með vél og skiptingu úr þínum 730i gamla. |
Author: | Svingur [ Wed 19. Apr 2006 03:41 ] |
Post subject: | |
Hvar er hægt að skoða bílinn ? |
Author: | saemi [ Wed 19. Apr 2006 08:41 ] |
Post subject: | |
Í Reykjavík, austurbænum |
Author: | Coney [ Wed 19. Apr 2006 09:16 ] |
Post subject: | |
ertu nokkuð með myndir til að smella hérna inn ![]() |
Author: | saemi [ Wed 19. Apr 2006 09:26 ] |
Post subject: | |
Í Reykjavík, austurbænum. Hann stendur í augnablikinu við Snekkjuvog 12. |
Author: | saemi [ Wed 19. Apr 2006 09:27 ] |
Post subject: | |
Xenon90 wrote: ertu nokkuð með myndir til að smella hérna inn
![]() Ég legg til að þú lesir auglýsinguna, svarið er þar ![]() |
Author: | Coney [ Wed 19. Apr 2006 22:58 ] |
Post subject: | |
saemi wrote: Xenon90 wrote: ertu nokkuð með myndir til að smella hérna inn ![]() Ég legg til að þú lesir auglýsinguna, svarið er þar ![]() Tók ekki eftir þessu ![]() |
Author: | IngóJP [ Wed 19. Apr 2006 23:04 ] |
Post subject: | |
Hef skoðað þennan bíl sá hann síðast fyrir sirka 10-12 dögum.... Eins og Sæmi segir þá er innréttingin heil... Allaveganna þá á fólk ekki að vera svikið af þessum bíl |
Author: | Bjarki [ Wed 19. Apr 2006 23:35 ] |
Post subject: | |
Ég og Sæmi breyttum þessum bíl í 730iA. Þessi bíll er heilt á litið mjög góður og einstaklega skemmtilegur litur og svo setur svarta leðrið punktinn yfir i'ið! Ég tók dælurnar að framan upp, nýjir klossar að framan, diskarnir þar góðir, afturdiskarnir góðir og nýjir handbremsuborðar ásamt börkum, skipti um afturfóðringarnar o.fl. Bíllinn er mjög þéttur í akstri og þægilegur í alla staði ekki verra að vera með spólvörnina/skriðstillirinn í vetrarfærðinni. Pústið lítur vel út. Bíllinn er mjög clean að innan sem utan. |
Author: | íbbi_ [ Thu 20. Apr 2006 00:47 ] |
Post subject: | |
þetta var mjög góður bíll! og whaaa þetta er hálf kinkí.. er búið að hræra saman báðum E32 bílunum sem ég átti? ![]() |
Author: | srr [ Thu 20. Apr 2006 01:09 ] |
Post subject: | |
íbbi_ wrote: þetta var mjög góður bíll!
og whaaa þetta er hálf kinkí.. er búið að hræra saman báðum E32 bílunum sem ég átti? ![]() To make the über e32 ![]() |
Author: | 98.OKT [ Fri 28. Apr 2006 20:45 ] |
Post subject: | |
Eru þessar vélar ekki að eyða einhverjum 16-18 lítrum á 100? Og er ennþá hægt að skoða hann í snekkjuvoginum? |
Author: | íbbi_ [ Fri 28. Apr 2006 21:07 ] |
Post subject: | |
bíll sem ég átti með akkurat þessari vél sem er í bílnum hékk yfirleitt í 16 innanbæjar, þessi vél var mjög góð.. búið að fara í efri helmingin á henni mjög nýlega |
Page 1 of 2 | All times are UTC |
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group https://www.phpbb.com/ |