bmwkraftur.is
https://www.bmwkraftur.is/spjall/

BMW 325i e36 bsk. árg. 94
https://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=10&t=13598
Page 1 of 2

Author:  Hallipals [ Mon 23. Jan 2006 14:19 ]
Post subject:  BMW 325i e36 bsk. árg. 94

Hef til sölu mjög góðan bíl, um er að ræða BMW 325i árg. 94. Bíllinn er í góðu ásigkomulagi og með öllum nauðsynlegum búnaði. Bíllinn er svartur að lit og sést nánast ekkert á lakki. Hann er 192 hp. Það eru 17" oz felgur á ágætum dekkjum, 235/40/17 að framan og 245/40/17 að aftan og svo fylgja nánast ónotuð 15" nagladekk á bmw hjólkoppum. Hann er lækkaður með jamex lækkunargormum og dempurum í samræmi við lækkun. Í bílnum er fullkomin aksturstölva sem að sýnir m.a eyðslu, hitastig, hvað þú getur keyrt marga km eftir á tanknum, klukku, og að ef eitthvað bilar þ.e.a.s ef að t.d vantar rúðupiss eða ljósapera er farin sem dæmi og fl. Það eru einnig kastarar í honum. Það er opið pústkerfi í bílnum ásamt endakút og svo er sérsmíðað spoiler aftan á skottloki. Bíllinn er mjög vel með farinn og þrifin og bónaður reglulega. Meðaleyðsla hefur verið um 12-14 l/100, fer eftir keyrslu og hitastigi. Nýr súrefnisskynjari og kerti.
Myndir: http://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?t=12766

Uppl. í síma 847-5150

E-mail: skvaldur@visir.is

Möguleg skipti á dýrari/ódýrari

Author:  arnibjorn [ Mon 23. Jan 2006 14:23 ]
Post subject: 

Verðhugmynd?

Author:  Hallipals [ Mon 23. Jan 2006 14:40 ]
Post subject:  325

Skjóta bara tilboði í gripinn

Author:  skylinee [ Mon 23. Jan 2006 18:58 ]
Post subject: 

Hvað er hann keyrður ?

Author:  Danni [ Mon 23. Jan 2006 19:54 ]
Post subject: 

Ekki leður eða topplúga?

Author:  arnibjorn [ Mon 23. Jan 2006 19:55 ]
Post subject: 

Af hverju skoðið þið ekki þráðinn sem að hann gefur þarna upp... :roll:

Author:  Raggi M5 [ Mon 23. Jan 2006 19:59 ]
Post subject: 

arnibjorn wrote:
Af hverju skoðið þið ekki þráðinn sem að hann gefur þarna upp... :roll:


Alveg lágmark að taka framm hvað bifreiðin sé ekin nú í dag :!:

Author:  arnibjorn [ Mon 23. Jan 2006 20:04 ]
Post subject: 

Raggi M5 wrote:
arnibjorn wrote:
Af hverju skoðið þið ekki þráðinn sem að hann gefur þarna upp... :roll:


Alveg lágmark að taka framm hvað bifreiðin sé ekin nú í dag :!:


Jájá alveg sammála því... en þessi þráður sem að hann gefur upp er ekki nema 2 mánaða gamall.. getur ekki verið mikið keyrður frá því :)
En þetta er alveg rétt hjá þér :wink:

Author:  Hallipals [ Tue 24. Jan 2006 00:31 ]
Post subject:  325i

Já gleymdi aðalatriðinu, en hann er ekinn 176 þús og það er ekki leður en það er rafknúinn topplúga sem að opnast á tvö vegu.

Author:  Geirinn [ Tue 24. Jan 2006 00:53 ]
Post subject: 

Aðal aðal aaaðalatriðið er verðið ;)

Komdu með verð. Ef það er eitthvað vit í því þá gæti þekkt einn sem er til í reynsluakstur og skoðun.

Author:  Hallipals [ Tue 24. Jan 2006 01:45 ]
Post subject:  325i

Staðgreitt fyrir vagninn: 720 þús!

Author:  Dogma [ Wed 25. Jan 2006 01:18 ]
Post subject: 

er hann beinskiptur? í rvk?

Author:  Hallipals [ Wed 25. Jan 2006 09:34 ]
Post subject:  325

Jú eins og stendur í fyrirsögninni þá er hann beinskiptur og já hann er í Reykjavík, nánar tiltekið í seljahverfinu. Endilega bjalla í mig og koma að skoða.

Author:  Hallipals [ Mon 30. Jan 2006 16:24 ]
Post subject:  325i

T.T.T Bíllinn fæst á sanngjörnu verði, ep fyrir nánari upplýsingar um það!

Author:  Sleeping [ Mon 30. Jan 2006 17:13 ]
Post subject: 

þú ert með epp frá mér sæti

Page 1 of 2 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/