bmwkraftur.is https://www.bmwkraftur.is/spjall/ |
|
BMW e34 530iA (M30) *update* https://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=10&t=11027 |
Page 1 of 1 |
Author: | Lindemann [ Sat 09. Jul 2005 11:51 ] |
Post subject: | BMW e34 530iA (M30) *update* |
*edit* uppfærði auglýsinguna aðeins og setti inn viðbót neðar í þræðinum. Jæja, ég ákvað að prófa hvort það væri einhver áhugi fyrir bílnum. Árg. 1989 skoðaður '06 Ekinn ca. 222þús km Ryðlaus, hefur verið stórann hluta ævi sinnar fyrir norðan. Litur: Delphin metallic Sjálfskiptur Svart leður Rafmagn í topplúgu og rúðum Rafmagn í sætum Aksturstölva Vél: M30b30; 3,0L 188hp og 260NM Fjarlægjanleg dráttarkúla 16" orginal BMW álfelgur með nýlegum sumardekkjum Einnig fylgja 5 stk þokkaleg nagladekk Aiwa 4x52w geislaspilari sem spilar mp3 Ég er nýlega búinn að skipta um stýrisenda hægra megin að framan og báða gormana að aftan. Líklega fer að koma tími á demparana að aftan líka. (Bíllinn fer í sprautun 18.júlí og þar á að sprauta framendann, brettin og líklega allar hurðarnar.) - Búið ![]() ![]() ![]() ![]() ![]() Verð: Tilboð, Ég athuga alveg skipti á ódýrari/dýrari helst BMW. Ef ekki þá eitthvað annað rwd með smá vott af afli. Ég er örugglega að gleyma einhverju, en þá er bara að spyrja hérna, í PM eða í síma 865-9811 (Jakob) |
Author: | JOGA [ Sat 09. Jul 2005 12:05 ] |
Post subject: | |
Væri einhver mögileiki á því að fá hjá þér myndir af græjunni ? Og ertu ekki með einhverja verðhugmynd sem hægt væri að hafa í huga ? Takk, takk |
Author: | Lindemann [ Sat 09. Jul 2005 12:09 ] |
Post subject: | |
Myndir komnar, svo er bara að bjóða ![]() |
Author: | Lindemann [ Sun 10. Jul 2005 02:26 ] |
Post subject: | |
Skoðunarferill Dags Tegund Skoðunarstöð Skoðunarmaður Niðurstöður Nánar 12.04.2005 Aðalskoðun Aðalskoðun Gretar Þór Sæþórsson Án athugasemda 18.05.2004 Endurskoðun Verkstæði Starfsmaður verkstæðis Án athugasemda 18.05.2004 Aðalskoðun Frumherji Sauðárkróki Böðvar H. Finnbogason Frestur 03.07.2003 Aðalskoðun Frumherji Akureyri Sigursteinn Þórsson Án athugasemda 05.07.2002 Aðalskoðun Frumherji Akureyri Sigþór Ármann Ingólfsson Án athugasemda 10.08.2001 Aðalskoðun Frumherji Akureyri Sigþór Ármann Ingólfsson Án athugasemda 08.08.2001 Boðun í skoðun af lögr. Lögreglan á Akureyri Lögreglan á Akureyri Frestur 13.06.2000 Aðalskoðun Frumherji Akureyri Þorsteinn Friðriksson Án athugasemda 31.08.1999 Aðalskoðun Frumherji Akureyri Ingólfur Þorsteinsson Án athugasemda 29.01.1998 Aðalskoðun Frumherji Akureyri Rafn Vatnsdal Axelsson Án athugasemda 13.01.1997 Aðalskoðun Frumherji Hesthálsi Kristinn Karlsson Án athugasemda 25.09.1996 Aðalskoðun Aðalskoðun Hörður Harðarson Án athugasemda 24.07.1995 Endurtekin aðalskoðun Frumherji Hesthálsi Svanberg Sigurgeirsson Án athugasemda 29.05.1995 Aðalskoðun Frumherji Hesthálsi Gestur O Karlsson Frestur 19.11.1994 Endurskoðun Verkstæði Starfsmaður verkstæðis Án athugasemda 18.11.1994 Endurskoðun Verkstæði Starfsmaður verkstæðis Án athugasemda 11.11.1994 Aðalskoðun Frumherji Hesthálsi Sigurjón Halldórsson Frestur 23.08.1993 Aðalskoðun Frumherji Hesthálsi Halldór Halldórsson Lagfæring 26.08.1992 Aðalskoðun Frumherji Hesthálsi Halldór Halldórsson Án athugasemda 16.06.1989 Skráningarskoðun Óþekkt skoðunarstöð Án athugasemda |
Author: | Lindemann [ Wed 13. Jul 2005 22:08 ] |
Post subject: | |
1. eigandi: fæddur '44, keypti 16.06.1989 2. eigandi: Kjötbankinn ehf, keypti 29.12.1995 3. eigandi: B&L hf, keypti 18.12.1996 4. eigandi: fæddur '57, keypti 30.01.1997 (hér kom bíllinn til Akureyrar ![]() 5. eigandi: fæddur '67, keypti 17.05.2000 6. eigandi: fæddur '79, keypti 11.07.2003 7. eigandi: fæddur '79, keypti 29.08.2003 8. eigandi: fæddur '83, keypti 19.05.2004 9. eigandi: fæddur '86, keypti 21.01.2005 (ég - hér kom bíllinn suður aftur ![]() |
Author: | Jónas [ Wed 20. Jul 2005 21:46 ] |
Post subject: | |
Bara að spá, hvað er svona dreki að nota innanbæjar? ![]() |
Author: | Lindemann [ Thu 21. Jul 2005 23:56 ] |
Post subject: | |
Þetta fer alveg með sæmilegt af bensíni, ca. 18L/100km innanbæjar Fór með 9,5L/100km seinast þegar ég fór útfyrir bæinn á honum |
Author: | Ahugamaður [ Tue 26. Jul 2005 18:59 ] |
Post subject: | |
Hvað er verðmiðinn að hlóða uppá? |
Author: | Lindemann [ Sun 11. Sep 2005 03:18 ] |
Post subject: | |
Jæja, var eiginlega hættur við að selja en nú langar mig í annað svo ég ákvað að prófa aftur. Núna er búið að sprauta: framenda, húdd, bæði frambretti og allar hurðar. Það er töluverð mislitun í honum þar sem lakkið var orðið svo gamalt að það var ómögulegt að ná nákvæmlega sama litnum... en ég ætla að massa hann til að sjá hvort þetta lagist eitthvað. Það er ein rispa á hvoru frambretti sem kom þegar hann var settur saman, en það verður lagað seinni part mánaðarins. Hér koma allavega einhverjar nýjar myndir: ![]() Hérna sést mislitunin mjög vel. ![]() ![]() Og svo ein að innan, ![]() |
Author: | anger [ Mon 12. Sep 2005 21:10 ] |
Post subject: | |
vá 18 lítrar í alvöru ? minn m5 eyðir 14.6 akkurat nuna :S mest sem eg hef komið honum í er 17 |
Author: | Lindemann [ Tue 13. Sep 2005 15:46 ] |
Post subject: | |
Já, M30 vélarnar hafa aldrei verið talda eyðslugrannar.. fyrir utan það að ég keyri alls engan kellingarakstur, á mjög erfitt með að hemja bensínfótinn ![]() Svo eru M30 vélarnar náttúrulega ELDgömul hönnun og því ekki með bestu bensínnýtni sem gerist.... Voru notaðir í e24 þegar 630CS kom. Það er auðvitað aðallega ein ástæða fyrir að vélin sé notuð svona lengi, og það er áreiðanleiki, svo er hún líka mjög einföld og viðgerðarkostnaður minni en ég mörgum öðrum vélum. En eins og ég segi, það er vel hægt að ná þessari tölu niður... en til hvers að eiga svona bíl ef maður ætlar svo bara að keyra sparakstur. ![]() |
Author: | Óli [ Wed 14. Dec 2005 09:36 ] |
Post subject: | |
Er þessi en til sölu ??? ![]() |
Author: | Tommi Camaro [ Wed 14. Dec 2005 12:06 ] |
Post subject: | |
Mér finnst það líklegt þar sem hann er með hann en i undirskriftinn fallegur bíll |
Author: | Lindemann [ Wed 14. Dec 2005 12:46 ] |
Post subject: | |
Ég er reyndar alveg hættur að reyna að selja hann. Búinn að eyða slatta í hann sem ég fæ aldrei til baka og er líka orðinn nokkuð sáttur við hann ![]() En að sjálfsögðu er allt til sölu fyrir rétt verð. Má alveg bjóða. |
Author: | Joolli [ Thu 15. Dec 2005 23:57 ] |
Post subject: | |
Virkilega sætur bíll, sá þig um daginn og talaði svo við þig. Einn af fallegri E34 á götunni í dag. Var á dökkbláa E34 525 bílnum. |
Page 1 of 1 | All times are UTC |
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group https://www.phpbb.com/ |